Æfingabúðir fjallahlauparans

 
7. – 14. júní 2012
Fararstjóri: Sævar Skaptason
Þjálfari: Julia Böttger

 
Fjallahlaup eru ekki bara hlaup heldur líka náttúruskoðun þar sem undur náttúrunnar fá hlauparann til að gleyma erfiðinu sem hlaupum um brött fjöll og djúpa dali fylgir. Höfuð markmið ferðarinnar er að njóta þess að hlaupa um Alpalandslag, um engi og tún, eftir skógarstígum, fjallastígum og upp á fjallatinda. Þessi ferð er því upplagður undirbúningur fyrir alla þá sem stefna á fjallahlaup á árinu og vilja kynnast leyndardómum fjallahlaupanna. Í skemmtilegum félagsskap þar sem sameiginleg áhugamál einkenna þátttakendur er hægt að miðla reynslu, verða betri í markmiðasetningu og fá leiðbeiningar hjá atvinnu fjallahlaupara sem hefur hlaupið um víða veröld og sérhæft sig í þjálfun fjallahlaupara. Hlaupaleiðir verða að sjálfsögðu valdar eftir getu og áhuga þátttakenda. Við dveljum á þægilegum alpahótelum við tvö af fallegustu vötnum Alpanna, Achensee og Tegernsee. Í lok dags er því hægt að slaka á í heilsulindum hótelanna og njóta góðrar máltíðar þar sem farið er yfir afrek dagsins, ásamt því að hlýða á áhugaverða fyrirlestra um m.a. fjallahlaup almennt, undirbúning og búnað.  

 

 

 

 
7. júní               Flug til München – Tegernsee
Flogið frá Keflavík með Icelandair kl. 07.20. Mæting í síðasta lagi 2 klst. fyrir brottför. Lending í München kl. 13.05 að staðartíma (+ 2 klst). Farið með rútu frá München sem leið liggur til Tegernsee en gera má ráð fyrir að rútuferðin taki rúmlega 1 klst. Sameiginlegur kvöldverður og upplýsingar um æfingaprógramm gefnar. Gist á hóteli við Tegernsee í 4 nætur.
 
8. júní                 Tegernsee
Eftir góðan nætursvefn er farið í morgunhlaup meðfram Tegernsee og síðan borðaður morgunmatur. Eftir það fáum við almenna kynningu á fjallahlaupi (trailrunning) og kynnumst bæði fræðilegum og praktískum æfingum áður en við höldum af stað í fyrsta fjallahlaupið. Eftir hádegi gerum við styrkjandi æfingar og teygjum vel á okkur. Síðan er hægt að slaka á í heilsulind hótelsins, fara í gufubað eða sund.
 
9. júni               Tegernsee
Eftir morgunmat förum við í fjallahlaup dagsins. Við slökum á eftir hlaupið, borðum kvöldmat og fáum síðan að sjá m.a. kvikmynd um Kilian´s Klassic og Zugspitz Ultratrail hlaupin. 
 
10. júní              Tegernsee
Morgunmatur og fjallahlaup. Slökun á hótelinu eftir góðan hlaupadag. 
 
11. júní              Tegernsee - Achensee
Við yfirgefum Tegernsee og höldum áleiðis til Achensee með rútu. Á leiðinni er hægt að skoða ostagerðina í Kreuth en restin af deginum er svo frjáls. Gisting við Achensee í 3 nætur.
 
12. júní               Achensee
Eftir morgunmat hlaupum við um áhugaverða slóð við Achensee og getum farið til baka yfir vatnið með skipi eða hlaupið alveg í kringum vatnið (ca. 23 km), allt eftir óskum hvers og eins. Eftir góðan dag er upplagt að láta þreytuna líða úr sér á heilsulind hótelsins.
 
13. júní                Achensee
Morgunmatur og fjallahlaup. Eftir kvöldmat er myndakvöld úr ferðinni okkar þar sem við getum rifjað upp það markverðasta liðinna daga og átt góða stund saman.
 
14. júní              Achensee – München – Reykjavík
Eftir morgunverð verður farið af stað út á flugvöll með rútu. Brottför frá flugvellinum í München kl. 14.05 og lending í Keflavík kl. 16.00.
 
 
Forsendur:
Ferðin hentar vönum hlaupurum sem geta hlaupið samfleitt í  90 – 120 mínútur. Þjálfarinn, Julia Böttger, er þrautreyndur fjallahlaupari og mun haga hlaupum og lengd þeirra eftir veðri og óskum þátttakenda. 
 


 
 
 
Verð: 197.800 kr. á mann í tvíbýli.                  Mikið innifalið – athugið sérstaklega! 
Aukagjald fyrir einbýli er 16.800
 
 
Innifalið í þátttökugjaldinu:
• Flug með Icelandair til München
• Flugvallarskattar og gjöld
• Rútferðir til og frá flugvelli í München
• Rútuferð frá Tegernsee til Achensee
• Gisting í tveggja manna herbergi í 7 nætur á 3* stjörnu hótelum
• Morgunverður
• 7 kvöldverðir
• Sérstakur hlaupaþjálfari
• Fyrirlestrar og íslensk fararstjórn
 
Ekki innifalið: 
Hádegisverðir.  Aðgangseyrir á söfn. Sigling á Achensee ca. € . 15 Aðgangseyrir í ostagerðina í Kreuth ca. € 5.

 
 
Bændaferðir starfa samkvæmt Almennum alferðaskilmálum SAF.

 


Flýtileiðir




Skipta um leturstærð