 |
21. - 26. júní 2012 Fararstjóri: Sævar Skaptason
Fjallahlaup eru alvöru áskorun fyrir utanvegahlaupara og að hlaupa skýjum ofar er ógleymanleg upplifun. Markmið ferðarinnar er að taka þátt í fjallahlaupi í kringum hæsta fjall Þýskalands, Zugspitze, en tvær vegalengdir eru í boði, Supertrail 71,5 km og Ultratrail 103 km. Heildar hæðarbreytingar Ultratrail leiðarinnar eru 6027 metrar sem er auðvitað ótrúleg upplifun og áskorun fyrir reynda hlaupara. Fyrir aðra metnaðarfulla hlaupara sem vilja samt sem áður njóta Zugspitze svæðisins og láta reyna á hlaupahæfileikana í slíkri hæð, geta tekið þátt í styttra hlaupinu sem er Supertrail leiðin og heildar hæðarbreytingar í því hlaupi eru 3720 metrar. Hið tilkomumikla Zugspitze fjalllendi hefur alltaf verið mjög sérstök áskorun fyrir fjallgöngufólk og síðustu árin fyrir fjallahlaupara. Hér geta hlauparar fundið út hvar þeirra takmörk liggja, sett sér markmið og upplifað náttúruna í leiðinni. Saman er þetta það sem er svo heillandi við Salomon Zugspitz Ultratrail hlaupið. Þátttaka í hlaupunum gefur punkta í UTMB hlaupið. Flogið verður til München og haldið sem leið liggur til Garmisch - Partenkirchen þar sem gist verður í 5 nætur. |