2. ágúst Flug til München – Bad Tölz
Flogið frá Keflavík með Icelandair kl. 07.20. Mæting í síðasta lagi 2 klst. fyrir brottför. Lending í München kl. 13.05 að staðartíma (+ 2 klst). Farið með lest frá flugvelli beint til Bad Tölz en við fáum hjólin afhent þar. Bærinn Bad Tölz liggur við ána Isar við rætur Alpajallanna og er hluti af gamalli verslunarleið. Í bænum er að finna gömul verslunarhús með einstaklega fallegum myndskreytingum sem mikil prýði er af. Vert er að skoða minjasafn Bad Tölz og kirkjuna María Himmelfahrt. Gist á hóteli í miðbænum.
3. ágúst Bad Tölz – Fischbachau
Hjólaleið dagsins liggur um svolítið krefjandi en mjög heillandi leið um fjöll og dali að vötnunum Tegernsee og Schliersee. Þetta eru tvö kristaltær alpavötn í einstaklega fallegu fjallaumhverfi. Til að byrja með hjólum við um mýrarsvæði en munum síðan hjóla upp í móti til Marienstein sem er í 865 m hæð. Þegar upp er komið munum við hjóla hjá einstökum golfvelli þaðan sem hægt er að njóta útsýnis yfir hinn breiða dal Inntal og nærliggjandi fjallgarða. Gististaðurinn okkar er við fjallið Wendelstein, en á toppi fjallsins er veður- og stjörnuskoðunarstöð. Áætluð dagleið 50 km.
4. ágúst Fischbachau – Chiemsee 
Þennan dag verður hjólað um svæði sem hefur verið notað sem tökustaður fyrir margar kvikmyndir og sjónvarpsþætti. Mörg lítil heillandi fjallaþorp, kýr á beit á engjum og fallegu fjöllin eru sannkallað augnakonfekt fyrir ferðalanga. Við munum hjóla yfir mýrarsvæði og yfir ána Inn, sem er ein stærsta á Alpafjallanna. Við komum við í heilsubænum Bad Feilnbach og í þorpinu Neubeuern sem þykir eitt það fallegasta í Bæjaralandi. Hjólum með ánni Inn um tíma og meðfram mjög fallegu vatni sem heitir Simssee á leið okkar til Prien þar sem gist verður í tvær nætur. Áætluð dagleið 60 km.
5. ágúst Dagur við Chiemsee
„Bæverski sjórinn“ Chiemsee er stærst allra vatna í Bæjaralandi og þriðja stærsta vatn Þýskalands (80 km2). Á vatninu eru þrjá eyjar og við það stendur höllin Herrenchiemsee sem síðasti konungur Bæjaralands, Ludwig II, lét byggja að fyrirmynd hallarinnar í Versölum. Hægt er að fara í siglingu á vatninu og skoða t.d. klaustrið Frauenwört á eyjunni Fraueninsel eða fara í hressandi hjólaferð meðfram vatninu.
6. ágúst Chiemsee – Traunstein 
Við erum stödd á hinu sögulega svæði Chiemgau og höfum nú þegar getað virt „heimafjall“ svæðisins, Kampenwand, fyrir okkur frá mörgum hliðum. Þennan dag byrjum við á því að hjóla til Bernau og þaðan í gegnum þorpin Grassau og Bergen. Á leiðinni frá Bergen er vatnaverksmiðjan Adelholz, þar sem eitt vinsælasta ölkelduvatn Þýskalands er framleitt. Hjólum nokkurn spöl upp í móti en síðan niður í móti og komum í Alpaþorpið Siegsdorf. Síðustu kílómetrar dagsins liggja mestmegnis eftir flatlendi og endastöð okkar er bærinn Traunstein. Þar er margt hægt að skoða s.s. St. Oswald kirkjuna frá 13. öld, bæjarsafnið og fallega Lindsbrunninn frá 1526. Gist í Traunstein. Áætluð dagleið 45 km.
7. ágúst Traunstein – Salzburg
Síðasti hjóladagurinn liggur um gamla „saltleið“ en salt var fyrr á tímum kallað „hvíta gullið“. Eftir fyrstu 10 kílómetrana hjólum við niður í móti til þorpsins Teisendorf. Þar er bruggaður bjór, sem þykir einn sá allra besti í heiminum. Við kíkjum kannski í brugghúsið og smökkum á bjórnum en allt frá árinu 1516 hafa verið lög í gildi sem eiga að tryggja hreinleika bjórsins. Síðustu kílómetrarnir til Salzburg eru auðveldir en á leiðinni hjólum við í gegnum þorpið Anger þar sem við skoðum okkur um. Gist í Salzburg í tvær nætur. Áætluð dagleið 45 km.
8. ágúst Dagur í Salzburg
Þennan dag höfum við góðan tíma til að skoða okkur um í Salzburg, fæðingarborg Mozart, sem er fjórða stærsta borg Austurríkis. Borgin er þekkt fyrir byggingar í barokkstíl og var skráð á heimsminjaskrá UNESCO árið 1996, en Salzburg er í hugum margra sannkölluð perla Austurríkis. Í borginni er margt hægt að skoða t.d . Mirabellgarðinn og kastalann Hohensalzburg, en þar var hluti kvikmyndarinnar Söngvaseiðs eða „Sound of Music“ tekin upp. Stórkostlegt útsýni er þaðan yfir Salzburgerland og borgina. Eins er hægt að ganga eftir Getreidegasse sem er með elstu og þekktustu götum borgarinnar, en þar er mjög áhugavert Mozartsafn.
9. ágúst Salzburg – München – Keflavík
Eftir morgunverð verður farið af stað út á flugvöll með rútu. Brottför frá flugvellinum í München kl. 14.05 og lending í Keflavík kl. 16.00.
Erfiðleikaflokkur: Létt til miðlungserfið hjólaferð. Áætlaðar dagleiðir 45-60 km.
Forsendur: Ferðin er að megninu til létt þó erfiðari kaflar séu inn á milli. Ferðin hentar því vel fólki í góðu formi. Hvort sem er í sína fyrstu hjólaferð til útlanda eða þeim sem vilja fara í ferð sem er ekki mjög erfið.
ATH: Fyrirtækið í Þýskalandi sem skipuleggur hjólaferðina er með umhverfisvæna stefnu og býður þess vegna ekki upp á farangursflutning á milli hótela.
Verð: 208.300 kr. á mann í tvíbýli. Mikið innifalið – athugið sérstaklega!
Aukagjald fyrir einbýli er 16.400

Innifalið í þátttökugjaldinu:
• Flug með Icelandair til München
• Flugvallarskattar og gjöld
• Lestarferð frá flugvellinum í München til Bad Tölz
• Gisting í tveggja manna herbergi í 7 nætur á 3* stjörnu hótelum
• Morgunverður
• 6 kvöldverðir
• Rútuferð frá Salzburg til flugvallar
• Upplýsingafundur með fararstjóra fyrir ferð
• Íslensk fararstjórn
Ekki innifalið:
Leiga á hjólum: Cityhjól ca. 10.500 kr. eða Trekking hjól ca. 15.500 kr. Hjólatöskur. Hádegisverðir. Kvöldverður síðasta kvöldið. Aðgangseyrir á söfn. Sigling á Chiemsee ca. € 13.