12. ágúst Flug til München - Innsbruck
Flug með Icelandair frá Keflavík kl. 07.20 og lending í München kl. 13.05 að staðartíma.
Á flugvellinum bíður okkar rúta sem flytur okkur til Innsbruck í Austurríki en ferðin tekur um 2 tíma. Þeir sem leigja sér hjól fá þau afhent við komuna til Innsbruck. Gist á hóteli í Innsbruck.
13. ágúst Innsbruck - Rattenberg ca. 50 km 
Í dag hefst hin eiginlega hjólaferð meðfram ánni Inn. Lagt er af stað frá ólympíubænum Innsbruck og hjólað til gler- og kristalsbæjarins Rattenberg. Hjólað er að mestu meðfram árbakkanum og er umhverfið stórbrotið á leiðinni, há fjöll á báða vegu. Segja má að náttúran og sagan togist á á þessari leið, en áin Inn þjónaði á öldum áður mikilvægu hlutverki á þessu svæði í flutningi á timbri, salti ofl. og má enn sjá merki þess í bæjunum.
14. ágúst Rattenberg - Rosenheim ca. 60 km
Áfram er haldið meðfram ánni Inn, framhjá gömlum höllum og köstulum í áttina að landamærum Þýskalands. Áður en við yfirgefum Austurríki heimsækjum við bæinn Kufstein, en þar er að finna fallegan kastala með frægu orgeli og ummerki eru að finna í gamla miðbænum um stríðsátök liðinna alda. Í gegnum Kufstein liggja landamærin sem skilja að Austurríki og Þýskaland og við endum daginn í þýska bænum Rosenheim þar sem við gistum næstu 2 nætur.
15. ágúst Rosenheim – Chiemsee ( frjáls dagur)
Í dag munum við fara að Chiemsee vatninu sem er einn af aðal ferðamannastöðunum í Bæjaralandi. Þar eru m.a. þekktar eyjar sem bera nöfnin Herra- og Frúareyjan. Við munum taka ferju út í eyjarnar en á Herraeyjunni er að finna einn af köstulum Lúðvíks II konungs, en á Frúareyjunni er gamalt nunnuklaustur sem áhugavert er að skoða. Fy

rir þá sem vilja nota daginn til að hjóla þá liggur góður hjólastígur hringinn í kringum Chimsee vatnið ( allur hringurinn er ca. 95 km).
16. ágúst Rosenheim - Waldkraiburg ca. 60 - 65 km
Nú er landslagið tekið að breytast og fjöllin móta ekki landslagið eins og í upphafi ferðar. Hér tekur við skógivaxið land og akrar meðfram lygnri ánni. Hér er hjólaleiðin mjög góð og því ætti þetta að vera þægilegur dagur. Hjólum í gegnum bæinn Wasserburg, en áin Inn myndar lykkju umhverfis gamla miðbæinn sem er einn af elstu bæjum í Bæjaralandi. Við endum daginn í Waldkraiburg þar sem stærsta púðurframleiðsla Þjóðverja var í seinni heimstyrjöldinni.
17. ágúst Waldkraiburg – Braunau ca. 60 km
Í dag komum við aftur að landamærum Austurríkis og hjólaleiðin hefur færst í austurátt. Enn fylgjum við ánni Inn sem hefur verið okkar tryggi ferðafélagið mestan hluta leiðarinnar. Við hjólum í gegnum áhugaverða bæi eins og Mühldorf, Alt- og Neuötting, Markt og endum daginn í Braunau sem er hve þekktastur fyrir að vera fæðingarbær Hitlers.
18. ágúst Braunau - Passau ca. 60-65 km
Í dag hjólum við síðasta hluta leiðarinnar. Frá Braunau er hjólað í gegnum mikið náttúruverndarsvæði sem er m.a. mikilvægt varp- og vetrargriðland vatnafugla. Við munum einnig hjóla í gegnum miðbæinn í Schäring og skoðum þar fallegt torg sem set

ur sérkennilegan svip á miðbæinn. Hjólaferðin endar í borginni Passau þar sem árnar Inn og Dóná mætast.
19. ágúst Heimferð
Lagt verður af stað fyrir hádegi frá Passau á flugvöllinn í München. Brottför frá München kl. 14.05 og lending í Keflavík kl. 16.00 að staðartíma.
Erfiðleikaflokkur: Létt hjólaferð
Forsendur: Hún telst fremur auðveld og hentar því sérlega vel þeim sem eru að fara í hjólaferð til útlanda í fyrsta skipti og einnig þeim sem vilja fara í ferð sem er ekki mjög erfið en náttúran og umhverfið er hreint ótrúlegt. Rétt er að geta þess að á leiðinni eru miklir möguleikar á útúrdúrum þannig að ef fólk vill puða svolítið þá er það líka hægt.
Sjá allar upplýsingar um verð og innifalið á næsta flipa hér fyrir ofan.