9. ágúst Flug til München – Herrsching am Ammersee
Flogið frá Keflavík með Icelandair kl. 07.20. Mæting í síðasta lagi 2 klst. fyrir brottför. Lending í München kl. 13.05 að staðartíma (+ 2). Farið með lest frá flugvelli beint til Herrsching en við fáum hjólin afhent þar. Bærinn er staðsettur við eitt af stærstu vötnum Bæjaralands sem heitir Ammersee. Einstaklega falleg fjallasýn í björtu veðri. Gist á hótel við Ammersee.
10. ágúst Herrsching – Weilheim – Murnau
Í dag hefst hin eiginlega hjólaferð og við ferðumst á stálhestum okkar á rólegum götum í gegnum lítil bæversk þorp. Leiðin liggur í gegnum Weilheim héraðið í áttina til Murnau sem er fallegur bær við rætur Alpanna, rétt við vatnið Staffelsee. Staffelsee er hreint og tært vatn og er vinsæll baðstaður og hér gistum við í eina nótt. Áætluð dagleið 50 km.

11. ágúst Murnau – Garmisch Partenkirchen – Mittenwald
Áfram er haldið í gegnum stærsta mýrarsvæði Mið-Evrópu staðsett í sal Alpanna. Hjólum meðfram Loisach á hjóla- og göngugötunni til Garmisch Partenkirchen. Frábært útsýni á stærstu fjöll Þýskalands. Hjólavegurinn er mest meðfram aðalgötunni á leiðinni til Mittenwald, bæjar við rætur Karwendelfjallana. Gistum í 2 nætur í Mittenwald.
Áætluð dagleið 50 km.
12. ágúst Hinterautal í Karwendel
Í dag munum við hjóla meðfram ánni Isar til Scharnitz og inn dalinn Hinterautal, en sú leið er lokuð allri bílaumferð. Einstaklega fallegt útsýni til Kalksteinsfjallanna, Karwendelberge. Hjólað aðeins lengra inn í dalinn, hvílt og hjólað sömu leið tilbaka. Áætluð dagleið 50 km.
13. ágúst Mittenwald – Lenggries – Bad Tölz
Í dag höldum við ferð okkar áfram í sal Alpanna, meðfram ánni Isar til stöðuvatnsins Sylvenstein-Stausee, sem er kristaltært og einstaklega fallegt stöðuvatn. Kjörið að fá sér sundsprett. Hjólum seinnihluta dagleiðarinnar á rólegum götum alla leið til Bad Tölz, fallegs smábæjar í barokkstíl. Gist í 2 nætur í Bad Tölz. Áætluð dagleið 60 km.
14. ágúst Bad Tölz – Tegernsee – Bad Tölz
Í dag hjólum við að einu af fallegri alpavötnunum sem heitir Tegernsee, njótum fagurs útsýnis og þess að skoða okkur um í fallegum fjallaþorpum. Á bakaleiðinni heimsækjum við nunnuklaustrið Reutberg og þekkt brugghús þar. Áætluð dagleið 60 km.
15. ágúst Bad Tölz – Wolfratshausen – München
Við kveðjum Alpana og hjólum meðfram Isar í gegnum bæinn Wolfratshausen til München. Þar skilum við hjólunum og og gistum síðustu nóttina í höfuðborg Bæjaralands. Kvöldverður er ekki innifalinn þetta kvöld, svo það er upplagt að fara saman út að borða. Áætluð dagleið 60 km.
16. ágúst Heimferð
Eftir morgunverð verður farið af stað út á flugvöll með lest. Brottför frá flugvellinum í München kl. 14.05 og lending í Keflavík kl. 16.00.
Erfiðleikaflokkur: Létt til miðlungserfið hjólaferð. Áætlaðar dagleiðir 50-60 km.
Forsendur: Ferðin er að megninu til létt þó erfiðari kaflar séu inn á milli. Ferðin hentar því vel fólki í góðu formi. Hvort sem er í sína fyrstu hjólaferð til útlanda eða þeim sem vilja fara í ferð sem er ekki mjög erfið. Hjólað verður 330 km samtals.
ATH: Fyrirtækið í Þýskalandi sem skipuleggur hjólaferðina er með umhverfisvæna stefnu og býður þess vegna ekki upp á farangursflutning á milli hótela.
Verð: 188.800 kr. á mann í tvíbýli. Mikið innifalið – athugið sérstaklega!
Aukagjald fyrir einbýli er 19.450 kr.

Innifalið:
• Flug með Icelandair til München
• Flugvallarskattar og gjöld
• Lestarferð frá flugvellinum í München til Herrsching
• Gisting í tveggja manna herbergi í 7 nætur á 3* stjörnu hótelum
• Morgunverður
• 6 kvöldverðir
• Upplýsingafundur með fararstjóra fyrir ferð
• Íslensk fararstjórn
Ekki innifalið:
Leiga á hjólum: Cityhjól ca. 10.500 kr. eða Trekking hjól ca. 15.500 kr. Hjólatöskur. Hádegisverðir. Kvöldverður síðasta kvöldið.