12. júní Keflavík – München – Vín
Flogið frá Keflavík með Icelandair kl. 7.20. Mæting í Leifsstöð 2 klst. fyrir brottför. Lent í München kl.13.05 að staðartíma ( +2 klst.) Frá München förum við með lest til höfuðborgar Austurríkis Vínar en borgin er talin með glæsilegri borgum Evrópu. Vínarborg stendur á bökkum Dónár og nær yfir 415 ferkílómetra svæði. Við snæðum hádegisverð um borð í lestinni. Þegar við komum til borgarinnar komum við okkur fyrir á hótelinu þar sem gist er í 2 nætur.
13. júní Frjáls dagur í Vínarborg
Í dag verður frjáls dagur til að skoða sig um í borginni og er t.d. hægt að fara í ferð með hestakerru um borgina, fara á söfn, skoðunarferð um óperuhúsið og fá sér kaffi og Sachertertu. Einnig er hægt að leigja bæjarhjól og hjóla um borgina. Schönbrunn höllin sem er með fallegustu síðbarokkhöllum Evrópu er jafnframt mikið aðdráttarafl ferðamanna í Vín og ekki úr vegi að hjóla þangað og skoða hallargarðinn sem er í fullum blóma á þessum tíma. Um kvöldið væri hægt að kaupa miða á tónleika í þessari tónlistarborg.
14. júní Vínarborg – Bad Deutsch Altenburg
Þegar við höfum sótt reiðhjólin yfirgefum við Vínarborg eftir góðu hjólaleiðakerfi. Við hjólum eftir Hubertusdamm meðfram barrokkhöllinni Eckartsau til bæjarins Bad Deutsch Altenburg. Um kvöldið er svo möguleiki á skoðunarferð á uppgreftrarsvæði rómversku herbúðanna Carnuntum. Við gistum í Bad Deutsch Altenburg eða í Petronell-Carnuntum. Áætluð dagleið er um 55 km.
15. júní Bad Deutsch Altenburg – Bratislava - Mosonmagyarovar
Eftir suðurbökkum Dónár heldur leiðin áfram yfir gömlu landamærin í Hainburg til Austurrísku-Slóvakísku landamæranna. Á þessar leið fáum við að kynnast Slóvakíu og höfuðborginni Bratislava. Bratislava er eina höfuðborg heims sem á landamæri að tveimur löndum. Við þorpið Rajka höldum við til Ungverjalands þar sem við komum til áfangastaðar dagsins, bæjarins með óþjála nafnið, Mosonmagyarovar en hann er einnig oft nefndur 17 brúa bærinn. Mosonmagyarovar var í rauninni tveir bæir sem báru nafnið Magyaróvár og Moson. Sú síðar nefnda var höfuðborg Moson sýslu í tíð Ungverska konungsdæmisins, en Magyaróvár tók við því hlutverki á miðöldum og síðan voru þær sameinaðar árið 1939. Þar sem nafn borgarinnar er ansi langt og óþjált nota heimamenn almennt nafnið Óvár en aðkomumenn nafnið Moson. Gist í Mosonmagyarovar í eina nótt. Áætluð dagleið er um 60 - 70 km.

16. júní Mosonmagyarovar – Györ
Í dag hjólum við í gegnum mörg lítil og falleg sveitaþorp áður en við komum til áfangastaðar okkar, Györ. Borgin, sem var löngu fyrir Krist byggð Keltum, er í dag mikilvægasta borg norð-vestur Ungverjalands. Í Györ er fjölmargt að sjá og þar má meðal annars nefna miðbæinn sem er frá miðöldum þar sem árnar Raab og Mosoni-Duna mætast, biskupakastala með gotneskri Doczy-kapellu, 15. aldar dómkirkju og ráðhúsið í Györ. Gist í Györ í eina nótt. Áætluð dagleið er um 45 km.
17. júní Györ – Tata
Við yfirgefum Györ og hjólum í gegnum úthverfi bæjarins framhjá mörgum stórum iðnaðarsvæðum og hjólum áfram á láglendi í átt að mjúkum brekkunum í landslagi Transdanuien héraðsins. Á leið okkar til Tata förum við framhjá Babolna, þar sem bestu og spretthörðustu reiðhestar Ungverjalands eru ræktaðir. Þá munum við einnig sjá hið rómaða vatn „Alten See“. Gist í Tatabánya eða í nágrenni. Áætluð dagleið er um 60 km.

18. júní Tata – Esztergom
Ungverjalands megin liggur leiðin frá Tata til Esztergom eftir mörgum hæðum. Frá Komárom í Ungverjalandi hjólum við yfir Dónárbrú til Komárno í Slóvakíu þaðan sem við förum enn einu sinni yfir Dónárbrú og nú til bæjarins Esztergom sem er á hinum bakka Dónár. Gist í Esztergom í eina nótt. Áætluð dagleið er um 75 km.
19. júní Esztergom – Búdapest
Ein stærsta og tilkomumesta Kirkja Ungverjalands, Basilikan í Esztergom verður skoðuð í dag áður en við yfirgefum Biskupaborgina og hjólum í átt til bæjarins Visegrad sem er ríkur af hefðum. Þar munum við m.a. skoða rústir Renaissances hallar Matthiasar Corvinusar sem var kóngur í Ungverjalandi og Króatíu og síðar einnig í Austurríki og Bohemiu (Tékklandi) á 15. öld. Nú verður skipt um árbakka og hjólað eftir endilangri eyjunni Szentendre þar til við tökum svo ferju aftur tilbaka á suðurbakkann til listamannabæjar sem ber sama nafn, Szentendre. Héðan eru einungis örfáir kílómetrar til Búdapest en við njótum þess sem áður að á hér í þessum skemmtilega bæ sem er fullur af galleríum og vinnustofum listamanna og njótum andrúmsloftsins. Í Búdapest munum við dvelja á
fallegu hóteli í miðbænum sem auðveldlega er aðgengilegt á reiðhjóli. Hér munum við skoða Budaer kastalann ásamt öðrum fallegum og mikilfenglegum byggingum í þessari fornfrægu borg. Áætluð dagleið er um 70 km.
20. júní Frjáls dagur í Búdapest
Eftir dugnað síðustu daga á hjólinu munum við nú njóta Búdapest á eigin vegum. Frjáls dagur.
21. júní Búdapest – Frankfurt – Keflavík
Eftir morgunverð er frjáls tími fram að hádegi eða þangað til farið er á flugvöll með rútu eða lest. Brottför frá flugvellinum í Búdapest kl. 17.55 og lending í Frankfurt kl. 19.40. Brottför frá flugvellinum í Frankfurt kl. 22.30 og lending í Keflavík kl. 00.05 að staðartíma.
Verð: 239.300 kr. á mann í tvíbýli. Mikið innifalið – athugið sérstaklega!
Aukagjald fyrir einbýli er 31.800 kr.

Innifalið í þátttökugjaldinu:
• Flug með Icelandair til München
• Flugvallarskattar og gjöld
• Lestarferð frá flugvellinum í München til Vínar
• Gisting í tveggja manna herbergi í 9 nætur á hótelum og gistihúsum
• Morgunverður
• 7 kvöldverðir
• Leiga á hjólum
• Íslensk fararstjórn
Ekki innifalið:
Hádegisverðir. Kvöldverður 12. Júní og 20. júní. Ferð með lest eða rútu frá hóteli í Búdapest á flugvöllinn ca. € 7. Siglingar og aðgangseyrir á söfn.
Bændaferðir starfa samkvæmt Almennum alferðaskilmálum SAF.