Útivist við Achensee

  
21. – 28. júní 2012 ÖRFÁ SÆTI LAUS!
Fararstjóri: Steinunn H. Hannesdóttir

 
Dalurinn Achental er umlukinn tignarlegum fjöllum á nánast alla vegu og er þekktur fyrir einstaka náttúrufegurð. Í þessari ferð er áhersla lögð á að njóta útivistar á þessu yndislega alpasvæði. Við munum gista á hóteli í bænum Pertisau, eins þriggja bæja við Achensee vatnið. Þaðan er stórglæsilegt útsýni yfir vatnið, dalinn og fjöllin allt í kring, en vatnið og dalurinn mynda mörkin á milli Karwendel fjallgarðsins til vesturs og Brandenberg Alpanna til austurs. Þetta umhverfi býður upp á fjölbreytta útivistarmöguleika og hreyfingu. Byrjað verður hvern dag á léttri leikfimi og teygjum við allra hæfi. Áhugaverðar gönguferðir munu skipa mikilvægan sess en einnig verður kennd stafganga sem eykur styrk í efri hluta líkamans meira en hefðbundin ganga. Til að ná meiri yfirferð verður farið í hjólaferðir um svæðið og við hótelið verður síðan boðið upp á vatnsleikfimi svo eitthvað sé nefnt. Meðal staða sem verða skoðaðir er Gramai-Alm þjóðgarðurinn í Karwendel fjöllunum sem er í 1263 m hæð, en þar er tilvalið að fá sér léttan hádegisverð og skoða osta- og pylsusel frá 16. öld. Þessi ferð hentar öllum sem vilja njóta hressandi útvistar í einstöku umhverfi!
 
 

 

 

 
Svæðið
Sumardvöl við Achensee vatnið í Tíról svíkur svo sannarlega engan sem langar að njóta  útivistar í fallegu umhverfi. Á svæðinu er að finna stærsta þjóðgarð Austurríkis, Karwendel  þjóðgarðinn, sem er 730 km² að stærð og teygir hann sig frá 591 m.h. í 2749 metra hæð.  Í garðinum er að finna um 1305 plöntutegundir og yfir þrjú þúsund þekktar dýrategundir. Til þjóðgarðsins heyrir Gramai-Alm svæðið með blómstrandi engjum og hjörðum fallageita sem eru svo nálægt að það er næstum því hægt að snerta þær. Rómantískar gönguleiðir og stígar liggja t.d. í gegnum lerkiskóg, að fossi eða lítilli kapellu. Achensee vatnið með hvorki meira né minna en 482 milljón kúbíkmetrum af vatni er kristaltært og yndisfagurt og skapar einstakt umhverfi í bland við Rofan- og Karwendel fjallgarðana. Tilvalið er að fara í siglingu á vatninu á einu af skipum Achensee-skipafélagsins, sem fagnaði 120 ára afmæli árið 2007. Eins er hægt að skoða kirkjuna í Pertisau sem arkitektinn Clemens Holzmeister teiknaði, en hvern dag á hádegi og klukkan 18.00 má hlusta á Ave María hljóma úr kirkjuturninum.
 
Útivist
Um miðja 19. öld hófst ferðaiðnaðurinn í Pertisau og því byggir svæðið á langri hefð við að þjónusta ferðamenn. Fjöldinn allur af mismunandi gönguleiðum svæðisins hafa  löngum verið vinsælar af ferðamönnum því umhverfið er einstaklega fallegt. Í kringum Pertisau rísa tindarnir Sonnjoch, Lamsenspitze, Drostenkopf og Rappenspitze sem eru yfir 2000 metra háir og inni á milli er að finna skógi vaxna dali og alpabeitilönd. Á svæðinu geta göngugarpar valið um 500 km af merktum gönguleiðum og ættu því allir að geta fundið gönguleið við sitt hæfi. Eins er t.d. hægt að blanda saman göngu og lestarferð í 120 ára gamalli gufulest en þá er stigið um borð í lestina í  Jenbach, endað í Seespitz og gengið svo til baka meðfram Achensee til Pertisau. Boðið verður upp á skipulagðar gönguferðir með staðarleiðsögumanni ásamt íslenskum fararstjóra en auðvitað getur hver og einn hagað gönguferðum eftir eigin óskum og getu. Hægt er að taka kláf upp á Zwölferkopf fjallið í 1500 metra hæð, ganga þar góðan hring, njóta útsýnisins og snæða hádegisverð í ekta austurrískum fjallaskála. Einnig verður kennsla í stafgöngu þar sem gengið er með sérhannaða stafi. Stafganga eykur styrk í efri hluta líkamans meira en hefðbundin ganga og er áhrifarík leið til heilsuræktar fyrir fólk á öllum aldri. Svæðið við Achensee er einnig tilvalið fyrir hjólaferðir og má þar finna um 180 km af mismunandi hjólaleiðum. Það er t.d. hægt að hjóla á þægilegri hjólaleið kringum vatnið eða inn í einn af rómantísku alpadölum svæðisins svo eitthvað sé nefnt. Í upphafi dags verður boðið upp á létta og liðkandi leikfimi og síðar verður einnig vatnsleikfimi í hótelsundlauginni. Tilvalið að enda góðan hreyfidag í slökun þar.
 
Hótelið
Hótel Karlwirt er einstaklega notalegt 3 stjörnu  hótel í bænum Pertisau við vatnið Achensee í Austurríki. Hótelið  byggir á hefð frá 1794 og hefur verið rekið af sömu fjölskyldunni  yfir tímabil sem spannar fimm kynslóðir.  Herbergin á hótelinu eru öll með baði eða sturtu, sjónvarpi, síma, útvarpi, hárblásara, baðsloppi og svölum. Boðið er upp á morgunverðarhlaðborð að austurrískum hætti og kvöldverð með 4 rétta valmatseðli ásamt salathlaðborði. Einu sinni í viku býðst gestum að borða ekta svínasteik og taka að loknum málsverði þátt í dansskemmtun með austurrískri tírólamúsík. Hótelið hefur nýlega hafið að brugga sinn eiginn bjór og býðst gestum að skoða brugghúsið ásamt því að smakka á ostum svæðisins. Á hótelinu er 140 fermetra heilsulind með inni- og útisundlaug, finnsku gufubaði, nuddpotti og hvíldarsvæði þar sem tilvalið er að slaka á í lok dags.
 
Flugið
Flogið verður með Icelandair til München. Brottför frá Keflavík kl. 7.20 en mæting í Leifsstöð í síðasta lagi 2 klst fyrir brottför. Lending í München kl. 13.05 að staðartíma (+2 klst), en flugið tekur um 4 klst. Frá flugvellinum í München eru rétt um 140 km til Pertisau. Þegar við förum aftur heim þá leggjum við af stað út á flugvöll eftir morgunverð og fljúgum heim kl. 14.05 frá München. Lending á Íslandi kl. 16.00 að staðartíma. 
 
 


 
 
 
Verð: 166.100  kr. á mann í tvíbýli.                   Mikið innifalið – athugið sérstaklega!
Aukagjald fyrir einbýli 13.200 kr. 
 
 
Innifalið í þátttökugjaldinu:
• Flug með Icelandair og flugvallarskattar
• Ferðir á milli flugvallarins í München og hótelsins í Pertisau
• Gisting í tveggja manna herbergi með baði á þriggja stjörnu hóteli í Pertisau
• Morgunverðarhlaðborð
• Kökur með eftirmiðdagskaffinu
• Vel útilátinn kvöldverður ásamt salathlaðborði
• Aðgangur að öllu því sem heilsulindin hefur upp á að bjóða
• Leiðsögn staðarleiðsögumanns í gönguferðum
• Leiga á stafgöngustöfum í 1 dag
• Leiga á hjólum í 1 dag
• Íslensk fararstjórn
 
Ekki innifalið:
Aðgangseyrir inn á söfn og kirkjur. Kláfar eða stólalyftur upp á fjöll, leigubílaakstur, hádegisverður og þjórfé. 
 
Valfrjálst:
Sigling á Achensee ca. € 15 og aðgangseyrir í brugghús hótelsins með smakki á ostum ca. € 9. Kláfur upp á Zwölferkopf fjallið, ca. € 11,50.

 

 Bændaferðir starfa samkvæmt Almennum alferðaskilmálum SAF.

 
 

 


Flýtileiðir




Skipta um leturstærð