Um firði og fjöll í Færeyjum

 

28. maí – 4. júní 2012
Fararstjóri: Sigrún Valbergsdóttir

 
Í þessari einstöku gönguferð um Færeyjar þræðum við gamlar gönguleiðir milli byggðarlaga, göngum upp á fjöllin Rógvukoll, Fjallið Lítla og Slættaratind (700 - 800 m) eftir því sem veður og útsýni bjóða upp á. Einkenni ferðarinnar eru hressandi dagleiðir og sögulegur fróðleikur í bland. Gengið verður yfir í Gásadal sem var einangraðasta byggðin í Færeyjum allt til ársins 2006. Sigling til Mykines sem er ægifögur klettaey, sú vestasta af eyjunum átján, og býður upp á dýrlegar gönguleiðir. Farið verður til Saksunar en þar er að finna fyrrum bóndabýlið Dúvugarð, sem nú er minjasafn og munum við skoða það. Vinalega þorpið, Tjörnuvík, bíður okkar en þaðan er útsýni til Risans og Kellingarinnar, sem eru tveir drangar yst á flóanum milli Austureyjar og Straumeyjar. Farið verður í skemmtilega síðdegisgöngu í Þinganesi undir leiðsögn ásamt skoðunarferð um Kirkjubæ. Gist verður á farfuglaheimilum / gistihúsum þar sem eru uppbúin rúm. Engan farangur þarf að bera, aðeins dagpoka með nesti og aukafatnaði. Hér gefst gullið tækifæri til að njóta útivistar, hreyfa sig og skoða söguslóðir hjá nágrönnum okkar og vinum, Færeyingum.
 

 

 

 

 
28. maí               Flug til Vágar – síðdegisganga í Gásadal
Brottför frá Reykjavík kl. 12.30. Mæting á Reykjavíkurflugvöll 1 klst. fyrir brottför. Lending á Vágaflugvelli kl. 15.00 að staðartíma (+1 klst). Þaðan verður ekið að farfuglaheimilinu Giljanesi á Vágum þar sem við gistum fyrstu þrjár næturnar. Við förum í síðdegisgöngu um gömlu póstleiðina yfir fjallið Rógvukollur (440 m) yfir í Gásadal. Þessi byggð var sú einangraðasta í Færeyjum og komst í vegasamband 2006 með göngum.
 
29. maí               Sigling til Mykines
Ef veður leyfir þá siglum við um klukkutíma siglingu frá Sörvági til Mykines sem er ægifögur klettaey; sú vestasta af eyjunum átján. Í Mykinesi gengur maður inn í tíma fyrri alda. Þar er byggðakjarni, ríkur af sögu og þar er mikil fuglaparardís, einkum er þar mikið um lunda og súlur. Við göngum um Mykinesbyggð og yfir brúna yfir Atlantshafið út að vitanum í Mykineshólma. Siglt til baka til Vága. 
 
30. maí               Fyrri hluti Saksunarvegar
Í Kálvalíð í Miðvági stendur hús frá 17. öld sem prestsekkjur í Miðvági bjuggu í. Þar bjó Beinta, sem talin er vera fyrirmynd Barböru úr samnefndri bók eftir Jörgen Frantz Jacobsen. Þarna lítum við inn áður en við ökum til Vestmanna um nýju göngin sem tengja Vága við Straumey. Göngum forna þjóðleið, Saksunarveg yfir í Saksunardal (10 km). Á leiðinni er Fjallið Lítla (572) sem býður upp á fagurt útsýni til Austureyjar. Úr Saksunardal er ekið um Kollafjörð til baka að Giljanesi í Vágum.
 
31. maí             Dúvugarður – seinni hluti Saksunarvegar
Nú kveðjum við Giljanes og ökum til Saksun. Þar var áður fyrr góð höfn, en þröng aðkoma milli ægifagurra, þverhníptra fjalla. Í Saksun er gamla bóndabýlið Dúvugarður sem er nú minjasafn og ætlum við að skoða það. Við göngum svo seinni hluta Saksunarvegar er liggur frá
Saksun yfir til Tjörnuvíkur, sérlega vinalegs þorps með útsýni til Risans og Kellingarinnar sem eru tveir drangar yst á flóanum milli Austureyjar og Straumeyjar. Um þau er til skemmtileg þjóðsaga sem tengist Íslandi. Í Tjörnuvík bíður rútan okkur og nú ökum við göngin undir Leirvogsfjörð, um Klaksvík og endum í nyrstu byggð Færeyja, Viðareiði. Þar gistum við á Hótel Norð næstu tvær næturnar.
 
1. júní                Gjógv – Eiði
Í dag ökum við til Gjógv, sem er lítil byggð nyrst á Austurey. Höfnin og umhverfið allt er rómað fyrir náttúrufegurð. Frá Gjógv er ekið að uppgöngustað á Slættaratind (882 m), hæsta fjalls Færeyja, og hann klifinn. Í góðu veðri sjást allar eyjarnar átjan af tindinum (10 km). Við bæinn Eiði bíður rútan okkar og við ökum til baka til Viðareiðis með viðkomu í Klaksvík.
 
2. júní                Funningur – Svínáir – Þórshöfn – síðdegisganga
Við kveðjum Norðureyjarnar og förum úr rútunni við bæinn Funning á Austurey. Þaðan göngum við inn eftir Funningsfirði, yfir Kvígandalskarð og niður á Svínáir. Þaðan er ekið til Þórshafnar þar sem við gistum síðustu tvær næturnar á Hótel Streym. Förum í síðdegisgöngu á milli gömlu húsanna í Þinganesi undir leiðsögn.
 
3. júní                Skoðunarferð um Kirkjubæ
Frjáls tími fyrir hádegi. Við göngum svo yfir fjallið til Kirkjubæjar (7 km), merkasta sögu- og minjastað eyjanna. Við förum í skoðunarferð um Kirkjubæ, m.a. er farið í Reykstofuna. Síðan er ekið aftur til Þórshafnar.
 
4. júní                Heimferð frá Vágum
Eftir skemmtilega og góða gönguferð um fjöll og firði Færeyja förum við með rútu til Vága. Brottför frá flugvellinum er kl. 11.00 og lending í Reykjavík kl. 11.30.
 
Fararstjóri getur fært dagskrárliði á milli daga eftir þörfum þegar komið er á staðinn.
 
 


 
 
 
Verð: 189.900 kr á mann                    Mikið innifalið – athugið sérstaklega!
Aukagjald fyrir einbýli á Hótel Norð og Hótel Streym er 19.200 kr. 
 
 
Innifalið í þáttökugjaldinu:
• Flug og flugvallarskattar
• Rúta alla dagana
• Gisting í 7 nætur með morgunverði
• Gisting í uppbúnum rúmum á farfuglaheimilinu í Giljanesi (3 nætur), Hótel Norð á Viðareiði (2 nætur) og á Hótel Streym í Þórshöfn (2 nætur).
• 5 kvöldverðir (Giljanesi og Hótel Norð)
• 6 nestispakkar
• Sigling út í eyjuna Mykines
• Leiðsögn um Þingnesið
• Íslensk fararstjórn
 
Ekki innifalið:
Aðgangseyrir í söfn (Kálvalíð, Dúvugarður, Roykstovan), kvöldverður 2 kvöld í Þórshöfn.
 
 

 Bændaferðir starfa samkvæmt Almennum alferðaskilmálum SAF.

 
 

 


Flýtileiðir




Skipta um leturstærð