Svæðið
Zillertal Alparnir er þjóðgarður, en þegar ekið er til Lanersbach er fyrst ekið eftir Zillertal og síðan upp í Tuxertal sem er dalurinn fyrir innan. Þekktasti bærinn í Zillertal er án efa Mayrhofen sem margir Íslendingar þekkja sem skíðastað, en allt þetta svæði er tengt saman með lyftum, kláfum og strætóum. Tuxertal dalurinn sjálfur er um 8 km langur og þorpin eru 5, Tux-Vorderlanersbach, Tux-Lanersbach, Juns, Madseit og Hintertux. Við gistum í Tux-

Lanersbach. Þjóðgarðurinn er almennt séð í 1.000 m – 3.509 m hæð yfir sjó og er 379 km² að stærð. Garðurinn er þekktur fyrir fjölbreytt dýra- og plöntulíf, djúpar gjár, fossa og fjölbreytt landslag.
Gönguferðirnar
Frá hótelinu okkar verður farið í skipulagðar gönguferðir á hverju degi með leiðsögumönnum og það verður boðið upp á léttar, miðlungs- og erfiðar göngur. Hver og einn getur valið sér leið fyrir hvern dag eða hópurinn haldið saman, allt eftir því sem hentar hverjum og einum. Þekktustu staðirnir sem hægt er að ganga til eru Eggalm sem er í 1970 m, Hintertux bærinn, Hintertux fossarnir, Hintertux jökullinn, Rastkogel fjallið, Penkenjoch þar sem er mikið af seljum og Pfitscherjoch á Ítalíu. Þar sem við erum á þekktu skíðasvæði eru margar lyftur og kláfar sem einnig eru opin á sumrin fyrir göngufólk og munum við nýta okkur það. Hótelið er einnig með litlar rútur sem hægt er að nota og stundum tökum við strætó. Endanlegt yfirlit yfir gönguferðirnar sem verða í boði á hótelinu mun liggja fyrir áður en ferðin hefst og verður sent farþegum með ferðagögnunum, en yfirleitt er best að ákveða sig þegar á staðinn er komið.
Hótelið
Hotel Tuxertal er glæsilegt fjögurra stjörnu alpahótel í austurrískum stíl.

Hótelið er heimilislegt með 86 herbergjum og eru öll herbergin með sturtu/baðkari, sjónvarpi, öryggishólfi, hárþurrku og síma. Baðsloppar eru á herbergjum. Öll herbergin eru með svölum. Á hótelinu er einnig heilsulind með innisundlaug, gufu böðum og svæði þar sem gott er að slappa af og fá sér te eða ávaxtasafa eftir góðan dag í fjöllunum. Eins er boðið upp á setustofu þar sem m.a. er hægt að spila biljarð, fótboltaspil og borðtennis. Á hótelinu er hlýlegur veitingastaður ásamt bar og kaffistofu þar sem m.a. boðið er upp á girnilegan heimabakstur og ljúffenga ísrétti. Hótelið er staðsett í bænum Lanersbach. Um 15 mín. ganga er í miðbæinn og í næstu verslanir, en að auki er hægt að taka strætó til Mayrhofen sem er þekktasti og stærsti bærinn í Zillertal.
Hægt er að fá lánaða göngustafi á hótelinu sé þess óskað og fá kynningu á Nordic Walking. Að auki fá allir sérstakan göngupassa sem hægt er að stimpla á þeim áfangastöðum sem gengið er til. Göngukort

af svæðinu fáum við einnig á staðnum.
Flugið
Flogið verður með Icelandair til München þann 2. september. Brottför frá Keflavík kl. 7.20. Mæting í Leifsstöð 2 klst fyrir brottför. Lending í München kl. 13.05 að staðartíma (+2 klst), en flugið tekur um 4 klst. Frá flugvellinum í München eru 210 km til Zillertal og á hótelið í Lanersbach. Gera má ráð fyrir að rútuferðin taki því rúmlega 3 klst með stoppi.
Í lok ferðar er lagt af stað út á flugvöll eftir morgunverð og flogið heim kl. 14.05 frá München. Lending á Íslandi kl. 16.00 að staðartíma.
Sjá allar upplýsingar um verð og innifalið á næsta flipa hér fyrir ofan.