5. – 12. maí 2012 ÖRFÁ SÆTI LAUS!
Fararstjóri: Jens Ruminy
Trítlað og siglt er skemmtileg ferð sem naut mikilla vinsælda á
síðasta ári, en færri komust að en vildu. Í þessari ferð siglum við á fljótunum Saar, Mósel og Rín og förum daglega í 8 - 10 km langar gönguferðir. Ferðin hefst á flugi til Frankfurt, þaðan sem haldið er inn í Rínardalinn til Rüdesheim, eins vinsælasta ferðamannabæjar Þýskalands. Gistum þar í 3 nætur. Þaðan verður farið í gönguferðir og gefst tækifæri til að skoða sig um, heimsækja söfn og fara í vínsmökkun. Því næst er ekið til Strassborgar og farið í skoðunarferð þar áður en haldið er til Saarlouis í Saardalnum, þar sem skipið MS Modigliani bíður okkar. Gistum á skipinu í 4 nætur. Á morgnana göngum við um fjölbreytt landsvæði, s.s. vínakra, skóglendi og á stígum eftir hamraveggjum. Við upplifum stórkostlegt landslag og njótum útsýnis yfir bæi, ár, dali, vínakra og kastala. Eftir hádegi njótum við þess að sigla og slaka á og virða fyrir okkur tilkomumikla fegurð þessara svæða. Eftir að skipsferðinni lýkur í Strassborg er komið að heimferð til Íslands. Þessi ferð er fyrir alla sem hafa gaman af að hreyfa sig daglega, sigla og njóta lífsins í góðum hópi í fagurri náttúru.
