Portofino og Cinque Terre

 

26. maí – 2. júní 2012     UPPSELT!
Fararstjóri: Guðrún Sigurðardóttir

 
Við kynnum hér spennandi gönguferð um tvær af fallegustu gönguleiðum Miðjarðarhafsins, Portofino skagann og Cinque Terre ströndina. Náttúrufegurðin er ólýsanleg. Brattir klettar og höfðar, þaktir ilmandi og litríkum miðjarðarhafsgróðri, spegla sig í túrkisbláum sjónum. Gangan er farin í byrjun sumars þegar gróðurinn er hvað fallegastur og hafgolan kælir í sólskininu. Allir helstu bæirnir eru skoðaðir, en dvalið í einum þekktasta þeirra, Santa Margherita Ligure, á 4* hóteli. Portofino skaginn, sem dregur nafn sitt af þeim fræga bæ Portofino, er allur undir náttúruvernd vegna gróðurs og dýralífs og hér er náttúrufegurðin hvað mikilfenglegust. Gengið er um allan skagann og komið í hina ævintýralegu bæi Camogli og San Fruttuoso-víkina. Seinni hluta ferðar er síðan gengið í Cinque Terre sem er þjóðgarður og er á heimsminjaskrá UNESCO vegna einstakra minja um líf fyrr á öldum sem einkenndist af fiskveiðum og vínrækt. Göngurnar eru við allra hæfi og ávallt á góðum göngustígum, en hlutar þeirra geta verið nokkuð brattir. Einungis er gengið með dagpoka.
 

 

 

 
26. maí               Flug til Mílanó og Portofino
Brottför frá Keflavík kl. 7.30. Mæting í Leifsstöð í síðasta lagi 2 klst. fyrir brottför. Lending í Mílanó kl. 13.20 að staðartíma. Fararstjórinn tekur á móti hópnum á flugvellinum og er haldið með rútu beinustu leið niður að strönd Miðjarðarhafsins til bæjarins Santa Margherita Ligure sem stendur austan megin í Portofino höfðanum. Gist í miðbænum í 7 nætur. Heimasíða hótelsins er: www.parkhotelsuisse.com
 
27. maí              Santa Margherita - Rapallo
Við byrjum á því að skoða okkur um í bænum Santa Margherita sem er í senn glæsilegur og rómantískur, enda hefur hann verið vinsæll af listamönnum lengi. Við skoðum miðbæinn, kirkjur og villur en göngum síðan af stað eftir ströndinni yfir í næsta bæ, Rapallo. Á leiðinni göngum við framhjá glæsilegum villum og miðjarðarhafsgróðri en þegar komið er til Rapallo skoðum við bæinn, helstu kirkjur og einnig strandlengjuna. Hægt er að ganga sömu leið tilbaka eða taka bátinn til Santa Margherita.
Göngutími ca. 4 klst. Létt ganga um bæinn og á milli þeirra.  
 
28. maí               Portofino
Í dag fylgjum við mjög fallegum göngustíg sem liggur utan í höfðanum til nágrannabæjarins Portofino. Leiðin liggur eftir göngustígum upp úr bænum þar sem sjá má garðrækt bæjarbúa en síðan njótum við villts gróðursins. Frá hlíðinni er fagurt útsýni yfir Tigulio-flóann. Vegurinn liggur niður að Parodi-ströndinni og þaðan eftir einstaklega fallegum göngustíg í hina frægu vík Portofino. Hér liggja glæsilegar snekkjur alls staðar að úr heiminum við bryggju og hið fræga Portofino torg þar upp af. Við göngum upp fyrir bæinn og alla leið fram á fremstu brún skagans þar sem vitinn trónir. Eftir stopp í bænum göngum við aðra leið tilbaka, þ.e. meðfram glæsilegri ströndinni á fallegum göngustíg. Einnig er hægt að taka bát tilbaka. Göngutími ca. 4 klst. Hækkun ca. 200 m. Auðveld ganga. 
 
29. maí               Camogli – San Fruttuoso
Dagurinn byrjar með stuttri lestarferð (5 mín.) yfir í bæinn Camogli sem er staðsettur vestan megin við Portofino skagann. Camogli hefur verið fiskimannabær frá miðöldum og er einn sérstakasti bærinn í Ligúríu. Eftir að hafa gengið um skemmtilegan miðbæinn tökum við stefnuna upp á höfðann og eftir um 40 mín. erum við komin upp í bæjarkjarnann San Rocco. Gönguleiðin hér er ótrúlega falleg þar sem hún liggur um verndað svæði með útsýni yfir sjóinn og eftir allri ströndinni. Gengið er um í dæmigerðum miðjarðarhafsgróðri utan í höfðanum með bláan sjóinn í bakgrunni. Þegar leiðin fer að lækka birtist San Fruttuoso víkin sem ýmsir telja fallegasta staðinn við allt Miðjarðarhafið. Hér er gamalt klaustur og lítil strönd þar sem yndislegt er að hvíla sig eftir gönguna og kæla sig í sjónum. Héðan er tekinn bátur tilbaka til Santa Margherita.
Göngutími ca. 4 klst. Hækkun ca. 450 m. Góður göngustígur, tröppur upp fyrsta hlutann en síðan í gegnum skóglendi. Lækkun 450 eftir skógarstíg.  
 
30. maí              Cinque Terre - Þorpin fimm
Nú höldum við til Cinque Terre þorpanna og eftir stutta lestarferð komum við til bæjarins Monterosso al Mare og erum við þá komin í Cinque Terre þjóðgarðinn sem er á Heimsminjaskrá UNESCO, sökum einstakra menningarmi nja. Við tökum daginn í að ganga hinn fræga göngustíg sem liggur um þorpin fimm. Leiðin er í heild sinni 11 km og auðveld, nokkrir staðir svolítið brattir, en þá er gengið upp tröppur. Við komum í öll þorpin, frá Monterosso al Mare til Vernazza, Corniglia, Manarola og Riomaggiore og skoðum þau. Gönguleiðirnar á milli eru ýmist utan í klettahlíðum eða um vín- og sítrónuræktarlönd. Tökum lest tilbaka.
Göngutími ca. 5 klst. Hækkun tæplega 500 m og lækkun ca. 500 m. Þægilegir göngustígar, að miklum hluta til tröppur. 
 
31. maí              Ruta di Camogli - Portofino
Gangan í dag byrjar í Ruta í 250 m hæð fyrir ofan Camogli og þangað förum við með strætisvagni. Við göngum mjög fallega leið um skóginn upp í 500 m og héðan höfum við glæsilegt útsýni yfir Camogli og Paradísarflóann allt til Genova. Við höldum síðan áfram yfir höfðann þar til útsýnið opnast í austur yfir Tigulio-flóann um villtan miðjarðarhafsgróðurinn. Leiðin fer síðan að halla niður á við og við komum niður á enda skagans þar sem hinn frægi bær Portofino liggur við lokaða vík. Tökum bát eða strætisvagn tilbaka.
Göngutími ca. 4,5 klst. Hækkun ca. 250 m. Auðveld ganga. 
 
1. júní               Sigling meðfram ströndinni til Porto Venere
Ef veður leyfir siglum við í dag meðfram allri Cinque Terre ströndinni, framhjá öllum þorpunum og suður fyrir skagann þar til við komum inn á Golfo dei Poeti (Skáldaflóann) og í litla bæinn Porto Venere sem nýtur frábærrar staðsetningar í ævintýralega fallegu umhverfi. Við skoðum bæinn, helstu kirkjurnar og göngum upp að kastalanum áður en siglt er tilbaka.
Göngutími ca. 1 klst um bæinn. 
 
2. júní               Heimferð
Eftir morgunverð er farið með rútu út á flugvöll í Mílanó og flogið tilbaka kl. 14.20. Lending í Keflavík kl. 16.35.
 
Erfiðleikaflokkur: 
Létt gönguferð.
 
Forsendur:
Hér er um gönguferð að ræða og þó að ferðin sé létt gönguferð, jafnvel fyrir byrjendur, þá eru engu að síður brekkur og tröppur á gönguleiðunum. Almennt séð eru góðir göngustígar. Sem viðmiðun má segja að farþegar ættu auðveldlega að geta gengið á Úlfarsfell, Helgafell í Hafnarfirði eða sambærileg fell. Þess má jafnframt geta að það fylgir því mikil ánægja að æfa fyrir gönguferð af þessu tagi og farþegar njóta sjálfrar ferðarinnar betur ef æft er fyrir ferð.
 
Fararstjóri getur fært dagskrárliði á milli daga eftir þörfum þegar komið er á staðinn.

 
 

 
 

Verð: 219.900 kr. á mann í tvíbýli.               Mikið innifalið – athugið sérstaklega!
Aukagjald fyrir einbýli er: 33.900 kr.
 
Lágmarksfjöldi er 18 manns og hámarksfjöldi 24 manns.
 
Innifalið:
• Flug með Icelandair til Mílanó og flugvallarskattar
• Rútuferð frá Mílanó til Santa Margherita og tilbaka út á flugvöll
• Gisting í 7 nætur á 4* hóteli í Santa Margherita samkvæmt landsmælikvarða
• Hálft fæði allan tímann
• Drykkir með kvöldverði ( ½ flaska vatn & ¼ flaska borðvín)
• Íslensk fararstjórn
 
Ekki innifalið:
Lestarferðir og siglingar (siglingin 1. júní kostar ca. € 30). Hádegisverðir og annar tilfallandi kostnaður á göngunum. Forfalla- og ferðatryggingar. 
 
 

 Bændaferðir starfa samkvæmt Almennum alferðaskilmálum SAF.

 
 

 

 


Flýtileiðir




Skipta um leturstærð