2. júní Flug til Mílanó og Siena
Brottför frá Keflavík kl.7.30. Mæting í Leifsstöð í síðasta lagi 2 klst. fyrir brottför. Lending í Mílanó kl. 13.20 að staðartíma (+2 klst.), þar sem hópurinn hittir fararstjórann. Haldið með sérrútu frá Mílanó niður eftir Ítalíuskaganum til Siena þar sem komið er snemma kvölds og gist í gamla miðbænum. Kvöldmatur og ganga um bæinn. Siena er best varðveitti miðaldabær Evrópu, eitt allsherjar meistarastykki lista og arkitektúrs. Við skoðum glæsilega dómkirkju bæjarins og hið heimsfræga „Il Campo“ sem er aðaltorg bæjarins þar sem fram fara hinar ótrúlegu „Palio“ kappreiðar.
3. júní Santa Colomba – gönguferð til Strove
Eftir að hafa klárað skoðunarferðina um Siena ökum við með sérrútu til Santa Colomba og þar hefst gangan til Strove. Við göngum um hinn fallega Montagnola Senese skóg sem er heimkynni villisvína. Við komum í gamla bæjarkjarnann Strove en þennan dag göngum við um 12 km. Hér er gist í tvær nætur á skemmtilegu, litlu hóteli í gamalli villu en matseldin er einnig ein af skrautfjöðrum hótelsins.

4. júní Strove – Monteriggioni – Strove
Í dag göngum við út frá Strove um skóga og engi og upp á hæðina þar sem hinn ævintýralegi smábær Monteriggioni trónir, umgirtur varnarmúrum og varðturnum frá miðöldum. Á leiðinni göngum við framhjá klausturminjum þar sem pílagrímarnir gistu á „Suðurgöngu“ sinni. Ganga dagsins er um 14 km.
5. júní Strove – Colle val d'Elsa
Kveðjum Strove og höldum í átt að bænum Colle val d‘Elsa, en bærinn hefur verið þekktur allt frá miðöldum fyrir kristalsframleiðslu. Við munum ganga upp í gamla bæinn sem er efst á hæðinni en hér er gist í tvær nætur. Göngum þennan dag um 10 km.
6. júní Colle val d'Elsa – San Gimignano
Leiðin í dag liggur um rómantískar vínekrur og eftir leið pílagrímann
a, Via Francigena. Fyrir augu bera glæsilegir turnar San Gimignano efst á hæðinni við sjóndeildarhringinn. Í dag státar bærinn af 14 turnum en alls munu þeir hafa verið 72 þegar þeir voru flestir en þeir bera vitni ríkidæmis og valda aðalsmannafjölskyldna fyrri tíma. Bærinn liggur á gömlum etrúskum bæjarkjarna frá 3. öld fyrir Krist en núverandi bær byggðist upp á miðöldum vegna staðsetningar sinnar á pílagrímaleiðinni sem liggur hér um. Ganga dagsins er um 14 km og sérrúta flytur okkur tilbaka til Colle val d‘Elsa. Þetta kvöld borðum við á skemmtilegum veitingastað sem nýtir einungis sérvalið hráefni af svæðinu sem er eldað samkvæmt gömlum hefðum, sannkölluð matarmenningarupplifun!
7. júní San Gimignano – Sensano - Volterra
Við byrjum á því að aka með sérrútu til San Gimignano og hér leggjum við af stað um villt gróðurlendi, Vernaccia vínekrur og hávaxinn eikarskóg. Komum á áningarstaðinn Sensano í miðju skóglendinu en héðan er sérlega víðsýnt yfir hinar dæmigerðu Toskana hæðir. Sérrúta sækir hópinn hingað og ekur til Volterra þar sem gist er síðustu tvær næturnar. Áður en við förum frá Sensano munum við snæða kvöldverð á dæmigerðum sveitaveitingastað í dásamlegu umhverfi. Bærinn Volterra byggir á þrjú þúsund ára menningu og er innan tveggja miðaldamúra. Bærinn er einnig þekktur fyrir alabasturvinnslu. Gönguleiðin er um 14 km.

8. júní Sensano - Volterra
Sérrúta ekur okkur til Sensano og þaðan göngum við síðasta spottann til Volterra. Í lok göngunnar sem er um 12 km. njótum við þess að slappa af í Volterra og njóta frábærs kvöldverðar á veitingastaðnum „Gamla líran“ sem sérhæfir sig í framreiðslu gæða-landbúnaðarafurða og er meðlimur „Slow Food“ samtakanna.
9. júní Volterra – Mílanó
Lagt af stað snemma morguns til Mílanó og brottför er þaðan klukkan 14.20. Lending í Keflavík kl. 16.35 að staðartíma.
Forsendur: 
Hér er um gönguferð að ræða og þó að ferðin sé létt til miðlungserfið gönguferð, þá eru engu að síður brekkur á gönguleiðunum. Almennt séð eru góðir göngustígar. Sem viðmiðun má segja að farþegar ættu auðveldlega að geta gengið á Úlfarsfell, Helgafell í Hafnarfirði eða sambærileg fell. Þess má jafnframt geta að það fylgir því mikil ánægja að æfa fyrir gönguferð af þessu tagi og farþegar njóta sjálfrar ferðarinnar betur ef æft er fyrir ferð.
Fararstjóri getur fært dagskrárliði á milli daga eftir þörfum þegar komið er á staðinn.
Verð: 282.750 kr. á mann í tvíbýli. Mikið innifalið – athugið sérstaklega!
Aukagjald fyrir einbýli er: 45.150 kr.
Innifalið: 
• Flug til Mílanó og flugvallarskattar
• Rútuferð til og frá flugvelli í Mílanó
• Rútuferð frá Siena til Santa Colomba
• Rútuferð frá San Gimignano til Colle val d‘Elsa
• Rútuferð frá Colle val d‘Elsa til San Gimignano
• Rútuferð frá Sensano til Volterra
• Rútuferð frá Volterra til Sensano
• Gisting í 7 nætur á sérvöldum hótelum í Toskana
• Morgunverður
• 4 kvöldverðir á hótelum
• 3 kvöldverðir á sérvöldum veitingastöðum í Toskana, þannig að hópurinn kynnist matarmenningu svæðisins sem best
• Drykkir með kvöldverði ( ½ flaska vatn & ¼ flaska borðvín)
• Íslensk fararstjórn
Ekki innifalið:
Hádegisverðir og annar tilfallandi kostnaður á göngunum. Forfalla- og ferðatryggingar.
Bændaferðir starfa samkvæmt Almennum alferðaskilmálum SAF.