Göngugleði við Gardavatn

 

9. - 16. júní 2012 
Fararstjórar: Guðrún Sigurðardóttir & Jóhanna Marín Jónsdóttir 

 
Gardavatn er af heimamönnum oft kallað „Miðjarðarhaf norðursins“ því það er engu líkara en hér sé lítið brot af Miðjarðarhafinu mitt á milli Alpanna og Po-sléttunnar. Gardavatnið hefur verið margrómað í aldanna rás fyrir mikla náttúrufegurð en á sér einnig langa sögu sem endurspeglast í byggingum og menningu við vatnið. Við dveljum í 7 nætur í bænum Riva del Garda og þykir mörgum þetta fallegasta bæjarstæðið við vatnið. Í Riva er skemmtilegur, gamall miðbær og mjög stórt, opið svæði við ströndina þar sem bæði er hægt að synda og liggja og njóta lífsins. Ferðin samanstendur af áhugaverðustu gönguleiðunum við vatnið. Farnar verða göngur frá Riva, meðal annars á hið fræga Monte Baldo fjall og í einn fallegasta dal Dólómítanna, Val di Genova, en þangað förum við með sér rútu. Við notum almenningssamgöngur þegar því verður við komið, rútur og ferjur þegar siglt er um vatnið. Göngurnar eru við hæfi þeirra sem eru vanir að ganga. Almennt er aðeins 250 m hækkun eða lækkun að undanskildum Genovadalnum en þar er gönguleiðin samt sem áður mjög þægileg. Dagleiðirnar eru flestar hringferðir, þannig að við njótum fjölbreytts útsýnis allan daginn..

 

 

 
9. júní               Flug til Mílanó og Gardavatn
Brottför frá Keflavík kl.7.30. Mæting í Leifsstöð í síðasta lagi 2 klst. fyrir brottför. Lending í Mílanó kl. 13.20 að staðartíma (+2 klst.). Fararstjórinn tekur á móti hópnum á flugvellinum og er haldið með rútu beinustu leið að Gardavatni þar sem við gistum í 7 nætur. Á leiðinni ber ýmislegt áhugavert fyrir augu, tignarleg Alpafjöllin í fjarska, rómantískar vínekrur og svo auðvitað ýmis sjónarhorn á vatnið sjálft.
 
10. júní              Riva del Garda - Arco
Þennan sunnudag byrjum við á því að skoða okkur um í bænum Riva del Garda og næsta nágrenni. Göngum um gamla bæinn og skemmtilega ströndina, en Riva þýðir einmitt strönd.
Við tökum síðan strætisvagn yfir í nágrannabæinn Arco sem stendur í fögrum dal inn af vatninu. Bærinn er frægur fyrir að hafa verið vinsæll sumardvalarstaður hjá aðalsfólki Evrópu og tignarlegur kastalinn sem við heimsækjum, gnæfir yfir bænum á bröttum kletti í ævintýralegu umhverfi.
 
11. júní              Nago - Tempesta
Hefjum göngu dagsins í bænum Nago sem er í nokkurra kílómetra fjarlægð frá Riva del Garda. Þetta er mjög falleg og skemmtileg gönguleið í fjallshlíð við vatnið sem nefnist Busatte–Tempesta. Gönguleiðin var lögð utan í hlíðinni til að útsýnisins yrði sem best notið og þar sem leiðin liggur um klettabelti hafa verið byggðir rammgerðir stigar með handriði utan á bergið. Upphaf og endir göngunnar er um mjög fallegan göngustíg meðfram vatninu sem tengir bæina Riva og Torbole.
 
12. júní              Riva del Garda - Ledro dalurinn
Í dag göngum við eftir Ponale göngustígnum, sem er gamall vegur frá miðri 19. öld. Vegurinn tengir Riva del Garda og Ledro dalinn en var breytt í göngustíg eftir að byggð voru ný göng og vegur árið 1980. Gamla veginum var hins vegar endanlega lokað þegar að það féll á hann aurskriða 1999 en nokkrum árum síðar létu ferðamálayfirvöld breyta honum í göngustíg. Útsýnið frá stígnum er ægifagurt og dæmigert fyrir hinn fagra norðurhluta Gardavatnsins, en hér er vatnið hvað þrengst og líkist meira firði en stöðuvatni. Vegurinn liggur utan í þverhníptum klettum og göngum sem hafa verið höggvin í bergið, en er þó breiður og mjög þægilegur í göngu.
 
13. júní              Monte Baldo
Í dag göngum við á Monte Baldo eða Baldursfell sem er þekktasta og hæsta fjallið í fjallgarðinum við Gardavatn, 2.200 m. að hæð. Það er staðsett austan megin við vatnið. Yfirleitt nefnt í daglegu tali „smalafjallið“ vegna stórra beitarlanda en einnig „Ítalíugarðurinn“ vegna stórkostlegs fjölbreytileika í gróðurfari og mikils magns sjaldgæfra plöntutegunda, mörgum hverjum frá ísöld þegar toppur fjallsins stóð upp úr jöklinum eins og eyja. Göngum eftir hinum blómstrandi Ventarstíg sem er í sínum fegursta skrúða í byrjun sumars. Útsýnið er stórkostlegt en við tökum útsýniskláf sem snýst í hringi á toppinn. Gönguleiðin er því mest niður á við.
 
14. júní              Genova dalurinn
Í dag liggur leið okkar í hinn töfrandi Genova dal, en hann er í syðsta hluta hinna tignarlegu Dólómítafjalla. Svæðið sem við förum um er verndarsvæði og heitir Adamello-Brenta. Allt í kringum verndarsvæðið er hár og tignarlegur fjallgarður. Dalurinn er oft nefndur fossadalurinn vegna fjölda fallegra fossa sem steypast niður í hann úr bröttum fjallshlíðum. Á svæðinu hefur aldrei verið nein byggð þannig að gróður og fjölbreytt dýralíf hefur varðveist betur hér en á svæðunum í kring. Gönguleiðin sem við förum nefnist fossaleiðin og er vörðuð af mörgum fögrum fossum sem myndast í ám sem renna frá tveimur skriðjöklum efst í dalnum og steypast niður þverhnípta klettana. Sá frægasti heitir Nardis og er hann hæsti foss í Trentino héraði. Endum gönguna við fjallaskála og njótum útsýnisins áður en við höldum niður á við. Ekið er frá og til Riva del Garda með sér rútu. 
 
15. júní              Sigling á vatninu til Sirmione
Siglum yfir á syðri hluta vatnsins, með ferjunni sem siglir eftir endilöngu vatninu með stoppum í smábæjum. Siglum yfir til Sirmione skagans sem er einn af þekktari stöðum við vatnið. Þessi litli skagi teygir sig út í vatnið í syðsta hluta þess. Bærinn skartar víggirtum kastala og hengibrú og er engu líkara en að maður gangi inn í ævintýri frá miðöldum. Skoðum okkur um í bænum og göngum allan skagann fram á tá.
 
16. júní               Heimferð
Eftir morgunverð höldum við út á flugvöll í Mílanó. Brottför þaðan kl. 14.20. og lending í Keflavík kl. 16.35
 
Erfiðleikaflokkur: Létt til miðlungserfið gönguferð.
 
Forsendur: Hér er um gönguferð að ræða og þó að ferðin sé létt til miðlungserfið gönguferð, þá eru engu að síður brekkur á gönguleiðunum. Almennt séð eru góðir göngustígar. Sem viðmiðun má segja að farþegar ættu auðveldlega að geta gengið á Úlfarsfell, Helgafell í Hafnarfirði eða sambærileg fell. Þess má jafnframt geta að það fylgir því mikil ánægja að æfa fyrir gönguferð af þessu tagi og farþegar njóta sjálfrar ferðarinnar betur ef æft er fyrir ferð.
 
Fararstjóri getur fært dagskrárliði á milli daga eftir þörfum þegar komið er á staðinn. 
 


 
 
 
Verð: 214.600 kr. á mann í tvíbýli.                   Mikið innifalið – athugið sérstaklega!
Aukagjald fyrir einbýli er: 42.350 kr. 
 
 
Innifalið:
• Flug með Icelandair til Mílanó og flugvallarskattar
• Rútuferð frá Mílanó til Riva del Garda og tilbaka út á flugvöll
• Gisting í 7 nætur á Hotel Ambassador í Riva del Garda
• Hálft fæði allan tímann
• Drykkir með kvöldverði ( ½ flaska vatn & ¼ flaska borðvín)
• Íslensk fararstjórn
 
Ekki innifalið:
Siglingar á Gardavatni ca. € 18 og kláfur upp á Monte Baldo ca. € 12. Hádegisverðir og annar tilfallandi kostnaður á göngunum. Forfalla- og ferðatryggingar.
 
 

 Bændaferðir starfa samkvæmt Almennum alferðaskilmálum SAF.

 
 

 


Flýtileiðir




Skipta um leturstærð