Nokkur orð um Dólómítana
Eins og áður segir eru Dólómítarnir ekki einn samfelldur fjallgarður heldur skiptist hann í fimm svæði og sérhvert þeirra státar af frægum fjallstindum en oftast er um að ræða risaháa og snarbratta klettakastala sem rísa einir og sér á gífurlega tignarlegan hátt. Fjallgarðurinn ber naf
n sitt af Déodat de Dolomieu, frönskum jarðfræðingi, sem fyrst skýrði frá steininum dólómít, karbónat steintegund, sérlega magnesíumríkt setberg úr kalki og þaðan kemur hinn einkennandi ljósi litur. Frægt er hér fyrirbærið „Enrosadira“ en það sést oft undir kvöld, þegar kvöldsólin varpar síðustu geislum dagsins á tindana, þá verða gráhvítir klettarnir rósbleikir á litinn. Um Dólómítana liggur Brennerskarðið og út frá því hliðardalir eins og hinir þekktu Gardena-, Fiemme- og Fassadalirnir. Dólómítarnir liggja suður af landamærum Ítalíu og Austurríkis og margar orrustur og stríð liðinna alda hafa verið háðar í fjalllendinu. Á svæðinu eru töluð 3 tungumál, ítalska, þýska og hið sérstæða mál „ladino“ sem er ævafornt afbrigði latínu, en það er aðeins talað hér og á tveimur öðrum svæðum.
7. júlí Flug til Mílanó og Campitello í Dólómítafjöllunum
Brottför frá Keflavík kl. 16.50. Mæting í Leifsstöð í síðasta lagi 2 klst. fyrir brottför. Lending í Mílanó kl. 22.40 að staðartíma (+2 klst). Fararstjórinn tekur á móti hópnum á flugvellinum og síðan er ekið sem leið liggur til Campitello í Dólómítafjöllunum, en aksturinn tekur um það bil 4 klst. Komið seint á hótelið þar sem gist verður í 7 nætur. Sjá flipa hér við hliðina með upplýsingum um hótelið. Heimasíða hótelsins.
8. júlí Campitello di Fassa
Rólegur dagur, gengið um bæinn og næsta nágrenni og síðan er farið í u.þ.b. 3ja tíma göngu upp í hlíðarnar fyrir ofan bæinn.
9. júlí Sasso Piatto og Sasso Lungo
Í dag göngum við upp við Sella fjallgarðinn sem margt skíðafólk þekkir, á svæði sem er á milli Gardenadalsins og Fassadalsins. Náttúrufegurðin er stórkostleg, snarbrattir klettar sem rísa upp frá gróðurlendi þöktu lerki- og furuskógum. Einnig opnast hér uppi mikið útsýni yfir hæstu tindana og niður í dalina. Við förum með kláf upp í Col Rodella í 2400 m hæð og höldum þessari hæð að mestu leyti allan tímann. Gangan er löng, u.þ.b. 6 - 7 tímar en létt. Einnig má eingöngu ganga hringinn um Sasso Piatto og þá er gangan rúmir 4 tímar.
10. júlí Hringurinn um Croda da Lago – Cortina D‘Ampezzo
Nú verður farið yfir á annað svæði, kennt við Cortina í Am pezzo-dal. Ekið er með rútu yfir há fjallaskörð þar til komið er í Ampezzo-dalinn og í skarðinu Giau byrjar gangan í 2.236 m hæð. Það er lítil hækkun á þessum göngudegi (ca 150m) en við lok göngunnar er komið niður í 1700 m hæð. Gangan er mjög falleg og lan dslagið stórbrotið. Á bakaleiðinni stoppum við í bænum Cortina, sem er frægasti bærinn á svæðinu og þykir einn sá fínasti í öllum Ölpunum. Hann varð þegar á 18. öld þekktur þegar lagður var vegur frá Feneyjum til Innsbruck einmitt hér. Það var síðan árið 1956 með vetrarólympíuleikunum sem hér voru haldnir, að frægð h
ans barst víðar.
11. júlí Catinaccio
Heils dags gönguferð um eitt frægasta fjallskarðið, Catinaccio sem á þýsku nefnist Rosengarten. Skarðið er umkringt frægum tindum líkt og Kesselkogel sem er þeirra hæstur eða 3002 m, Rosengartenspitze, Vajolet-turnunum og fleirum. Þetta eru dæmigerðir Dólómítatindar sem rísa þverhníptir upp úr skarðinu, tignarlegir og hrikalegir. Við förum með strætisvagni til Pera di Fassa og þaðan með annari rútu til Gardeccia þaðan sem gangan byrjar í 1448 m hæð en einnig má taka aðra rútu uppí 1850 m hæð. Hæsti punkturinn í þessari göngu er 2770 m þannig að þetta er sá göngudagur sem tekin er mest hæð.
12. júlí Lavaredo tindarnir þrír – Tre Cime di Lavaredo
Lavaredo tindarnir þrír eru sennilega frægastir allra tinda svæðisins, stundum kallaðir „hin ævintýralega heilaga þrenning“, og margir telja þá toppinn á Dólómítunum og eins konar tákn þeirra. Við munum ganga hringinn í kringum þá en klettatindarnir sjálfir eru löngu frægir í sögu fjallaklifurs. Gangan er auðveld en veitir útsýni á þessa miklu náttúrusmíði og eins opnast mikil víðátta í allar áttir. Svæðið er mjög þekkt fyrir steingervinga sem hér hafa fundist en einnig var það mikilvægt í fyrri heimsstyrjöldinni því hér var háð hatrömm orrusta milli Ítalíu og Austurríkis um landamæri ríkjanna. Ekið er með rútu uppí 2320 m hæð og þaðan genginn hringurinn sem fer hæst í 2454 m og tekur um 4 tíma. Á bakaleiðinni er ekið um hið fallega Misurina vatn.
13. júlí San Martino hringurinn – Pala di San Martino
Síðasti göngudagurinn er um hinn tignarlega San Martino fjallgarð sem er sá stærsti og einnig sá syðsti. Gangan er löng, svo til engin hæðarhækkun, en krefst nokkurrar varúðar á köflum og verið getur að snjóbreiður verði á vegi okkar. Ekið er með rútu þangað sem lagt er af stað með kláfi uppí 2633m en hæsti hluti göngunnar er 2743m.
14. júlí Frjáls dagur - heimferð
Frjáls dagur fram að brottför seint í eftirmiðdaginn. Síðan er ekið út á flugvöll og flogið heim kl. 23:40 og lending í Keflavík kl. 01.55 eftir miðnætti eða þann 15. júlí.
Fararstjóri getur fært til milli daga eftir því sem þörf þykir þegar komið er á staðinn.
Sjá allar upplýsingar um verð og innifalið á næsta flipa hér fyrir ofan.