Gönguferðir

 
 

Trítlað & Siglt


5. – 12. maí 2012
Fararstjóri: Jens Ruminy
 

Trítlað og siglt er skemmtileg ferð sem naut mikilla vinsælda á síðasta ári, en færri komust að en vildu. Í þessari ferð siglum við á fljótunum Saar, Mósel og Rín og förum daglega í 8 - 10 km langar gönguferðir. Ferðin hefst á flugi til Frankfurt, þaðan sem haldið er inn í Rínardalinn til Rüdesheim, eins vinsælasta ferðamannabæjar Þýskalands. Gistum þar í 3 nætur. Þaðan verður farið í gönguferðir og gefst tækifæri til að skoða sig um, heimsækja söfn og fara í vínsmökkun. Því næst er ekið til Strassborgar og farið í skoðunarferð þar áður en haldið er til Saarlouis í Saardalnum, þar sem skipið MS Modigliani bíður okkar. Gistum á skipinu í 4 nætur. Á morgnana göngum við um fjölbreytt landsvæði, s.s. vínakra, skóglendi og á stígum eftir hamraveggjum. Við upplifum stórkostlegt landslag og njótum útsýnis yfir bæi, ár, dali, vínakra og kastala. Eftir hádegi njótum við þess að sigla og slaka á og virða fyrir okkur tilkomumikla fegurð þessara svæða. Eftir að skipsferðinni lýkur í Strassborg er komið að heimferð til Íslands. Þessi ferð er fyrir alla sem hafa gaman af að hreyfa sig daglega, sigla og njóta lífsins í góðum hópi í fagurri náttúru.
 

 

Portofino & Cinque Terre


26. maí – 2. júní 2012     UPPSELT!
Fararstjóri: Guðrún Sigurðardóttir
 

Við kynnum hér spennandi gönguferð um tvær af fallegustu gönguleiðum Miðjarðarhafsins, Portofino skagann og Cinque Terre ströndina. Náttúrufegurðin er ólýsanleg. Brattir klettar og höfðar, þaktir ilmandi og litríkum miðjarðarhafsgróðri, spegla sig í túrkisbláum sjónum. Gangan er farin í byrjun sumars þegar gróðurinn er hvað fallegastur og hafgolan kælir í sólskininu. Allir helstu bæirnir eru skoðaðir, en dvalið í einum þekktasta þeirra, Santa Margherita Ligure, á 4* hóteli. Portofino skaginn, sem dregur nafn sitt af þeim fræga bæ Portofino, er allur undir náttúruvernd vegna gróðurs og dýralífs og hér er náttúrufegurðin hvað mikilfenglegust. Gengið er um allan skagann og komið í hina ævintýralegu bæi Camogli og San Fruttuoso-víkina. Seinni hluta ferðar er síðan gengið í Cinque Terre sem er þjóðgarður og er á heimsminjaskrá UNESCO vegna einstakra minja um líf fyrr á öldum sem einkenndist af fiskveiðum og vínrækt. Göngurnar eru við allra hæfi og ávallt á góðum göngustígum, en hlutar þeirra geta verið nokkuð brattir. Einungis er gengið með dagpoka.
 


 

Um firði og fjöll í Færeyjum


28. maí – 4. júní 2012
Fararstjóri: Sigrún Valbergsdóttir
 

Í þessari einstöku gönguferð um Færeyjar þræðum við gamlar gönguleiðir milli byggðarlaga, göngum upp á fjöllin Rógvukoll, Fjallið Lítla og Slættaratind (700 - 800 m) eftir því sem veður og útsýni bjóða upp á. Einkenni ferðarinnar eru hressandi dagleiðir og sögulegur fróðleikur í bland. Gengið verður yfir í Gásadal sem var einangraðasta byggðin í Færeyjum allt til ársins 2006. Sigling til Mykines sem er ægifögur klettaey, sú vestasta af eyjunum átján, og býður upp á dýrlegar gönguleiðir. Farið verður til Saksunar en þar er að finna fyrrum bóndabýlið Dúvugarð, sem nú er minjasafn og munum við skoða það. Vinalega þorpið, Tjörnuvík, bíður okkar en þaðan er útsýni til Risans og Kellingarinnar, sem eru tveir drangar yst á flóanum milli Austureyjar og Straumeyjar. Farið verður í skemmtilega síðdegisgöngu í Þinganesi undir leiðsögn ásamt skoðunarferð um Kirkjubæ. Gist verður á farfuglaheimilum / gistihúsum þar sem eru uppbúin rúm. Engan farangur þarf að bera, aðeins dagpoka með nesti og aukafatnaði. Hér gefst gullið tækifæri til að njóta útivistar, hreyfa sig og skoða söguslóðir hjá nágrönnum okkar og vinum, Færeyingum.

 


 

Hrífandi Toskana

2.  – 9. júní 2012
Fararstjóri: Guðrún Sigurðardóttir
 

Ævintýralegir miðaldabæir sem gnæfa yfir hæðótt landslagið, minjar frá tímum Etrúskanna, ólífu- og vínekrur og síprustrjágöng. Þetta er aðeins hluti af því sem ber fyrir augu okkar á þessari göngu. Leiðin liggur um hið dæmigerða og heimsþekkta Toskana-landslag og hér erum við í hjarta héraðsins, þar sem flestir frægustu staðirnir eru. Við göngum frá Siena, þar sem við gistum fyrstu nóttina og endum í Volterra, en á leiðinni gistum við í tvær nætur á hverjum stað. Rúta flytur farangurinn á milli gististaða og einnig farþega þegar við á en gengið er eftir göngustígum og á sveitavegum. Leið okkar liggur að hluta til um Via Francigena, sem er hin þekkta Rómarleið. Þetta var frægasta og mikilvægasta leið pílagrímanna á suðurgöngu sinni til Rómar og jafnvel alla leið til Jerúsalem. Víðförlasti pílagrímurinn lagði upp frá Íslandi, Nikulás ábóti í Munkaþverárklaustri og á leið okkar mun nafn hans bera oft á góma. Við byrjum í miðaldabænum Siena sem státar m.a. af einu fallegasta og frægasta torgi í heimi. Frá litla bæjarkjarnanum Strove er gengið til Monteriggioni sem trónir efst á hæð, umlukinn varnarmúr frá miðöldum en hér er eins og tíminn hafi staðið í stað í margar aldir. Við gistum í tvær nætur í Colle di Val d‘Elsa, oft kallaður kristalsbærinn og þaðan liggur leiðin í enn einn af frægustu bæjum Toskana og Ítalíu, San Gimignano. Hann er frægur fyrir turnana sem fyrirmannafjölskyldur á miðöldum reistu til að sýna ríkidæmi sitt og völd. Frá San Gimignano liggur leiðin um villtan gróður Volterra hæðanna og endar í samnefndum bæ sem er frægur allt frá tímum Etrúskanna. Flestar næturnar gistum við á litlum og skemmtilegum gististöðum sem hafa hið dæmigerða Toskana yfirbragð. Alla leiðina munum við njóta hinnar heimsþekktu Toskana matar- og vínmenningar sem ýmsir telja hápunktinn á lífsins lystisemdum og á matseðlunum okkar verður að finna bland af því besta sem héraðið býður uppá. Á göngu okkar verður hægt stoppa á vínbúgörðum og smakka á vínum og á kvöldin gefst kostur á ítalskri matarkynningu og kennslu í matreiðslu.

 

 
  

Göngugleði við Gardavatn

9.  – 16. júní 2012
Fararstjórar: Guðrún Sigurðardóttir & Jóhanna Marín Jónsdóttir
 

Gardavatn er af heimamönnum oft kallað „Miðjarðarhaf norðursins“ því það er engu líkara en hér sé lítið brot af Miðjarðarhafinu mitt á milli Alpanna og Po-sléttunnar. Gardavatnið hefur verið margrómað í aldanna rás fyrir mikla náttúrufegurð en á sér einnig langa sögu sem endurspeglast í byggingum og menningu við vatnið. Við dveljum í 7 nætur í bænum Riva del Garda og þykir mörgum þetta fallegasta bæjarstæðið við vatnið. Í Riva er skemmtilegur, gamall miðbær og mjög stórt, opið svæði við ströndina þar sem bæði er hægt að synda og liggja og njóta lífsins. Ferðin samanstendur af áhugaverðustu gönguleiðunum við vatnið. Farnar verða göngur frá Riva, meðal annars á hið fræga Monte Baldo fjall og í einn fallegasta dal Dólómítanna, Val di Genova, en þangað förum við með sér rútu. Við notum almenningssamgöngur þegar því verður við komið, rútur og ferjur þegar siglt er um vatnið. Göngurnar eru við hæfi þeirra sem eru vanir að ganga. Almennt er aðeins 250 m hækkun eða lækkun að undanskildum Genovadalnum en þar er gönguleiðin samt sem áður mjög þægileg. Dagleiðirnar eru flestar hringferðir, þannig að við njótum fjölbreytts útsýnis allan daginn. 

 

 

 
Útivist við Achensee

21.  – 28. júní 2012
Fararstjóri: Steinunn H. Hannesdóttir
 

Dalurinn Achental er umlukinn tignarlegum fjöllum á nánast alla vegu og er þekktur fyrir einstaka náttúrufegurð. Í þessari ferð er áhersla lögð á að njóta útivistar á þessu yndislega alpasvæði. Við munum gista á hóteli í bænum Pertisau, eins þriggja bæja við Achensee vatnið. Þaðan er stórglæsilegt útsýni yfir vatnið, dalinn og fjöllin allt í kring, en vatnið og dalurinn mynda mörkin á milli Karwendel fjallgarðsins til vesturs og Brandenberg Alpanna til austurs. Þetta umhverfi býður upp á fjölbreytta útivistarmöguleika og hreyfingu. Byrjað verður hvern dag á léttri leikfimi og teygjum við allra hæfi. Áhugaverðar gönguferðir munu skipa mikilvægan sess en einnig verður kennd stafganga sem eykur styrk í efri hluta líkamans meira en hefðbundin ganga. Til að ná meiri yfirferð verður farið í hjólaferðir um svæðið og við hótelið verður síðan boðið upp á vatnsleikfimi svo eitthvað sé nefnt. Meðal staða sem verða skoðaðir er Gramai-Alm þjóðgarðurinn í Karwendel fjöllunum sem er í 1263 m hæð, en þar er tilvalið að fá sér léttan hádegisverð og skoða osta- og pylsusel frá 16. öld. Þessi ferð hentar öllum sem vilja njóta hressandi útvistar í einstöku umhverfi!

 

 

Trítlað um Keisarafjöllin

23.  – 30. ágúst 2012
Fararstjóri: Sigrún Valbergsdóttir
 

Tíról í Austurríki er aðaláfangastaður okkar í þessari ferð. Mikil náttúrufegurð einkennir þetta svæði og er einstakt að dvelja hér á þessum árstíma. Eftir flug til München liggur leið okkar til Tíról, nánar tiltekið til þorpsins Walchsee við Walchsee vatnið sem er í 668 m hæð við rætur Keisarafjallanna. Þar gistum við í 7 nætur á glæsilegu 4* hóteli í austurrískum stíl þar sem boðið er upp á góðan og heilsusamlegan mat ásamt heilsulind með sundlaug. Ferðin verður byggð upp með skemmtilegu samblandi af léttum gönguferðum á vel merktum göngustígum ásamt því að kynnast stafgöngu, vatnsleikfimi og léttum teygjuæfingum. Fararstjóri mun trítla með hópnum í skipulögðum gönguferðum frá hótelinu ásamt því að skipuleggja sjálfur léttar gönguferðir um þetta einstaklega fallega og áhugaverða svæði. Walchsee er einstaklega snotur, lítill bær og er staðsettur við fallegt vatn þar sem hægt er að sóla sig og baða á heitum dögum. 

 


 

Trítlað um töfraheim Tíróls


30. ágúst - 6. september 2012
Fararstjóri: Jón Hálfdánarson
 

Héraðið Tíról í Austurríki er þekktast fyrir einstaka fjallafegurð, tírólabúninga og hatta, fjölbreyttan landbúnað þar sem bændur reka ennþá í sel og ekki má gleyma öllum útivistarmöguleikunum. Ferðinni er að þessu sinni heitið til bæjarins Gerlos í fjallaríki Kitzbühel og Zillertaler Alpanna. Í þessum áhrifamikla fjallaheimi Tíról teygja sig hvorki meira né minna en 5 hliðardalir með ótal gönguleiðum en ferðin samanstendur af blöndu léttra gönguferða sem henta vel fyrir alla þá sem njóta þess að stunda útivist. Eftir flug til München er ekið sem leið liggur til Gerlos en bærinn liggur í 1250 m hæð í Zillerdalnum, þar sem sumarnæturnar eru ferskar og dagarnir hæfilega heitir. Gist verður á rómantísku 3* fjallahóteli í 7 nætur. Næstu daga gefst göngugörpum tækifæri til að stunda hressandi hreyfingu og fyllast krafti og ánægju í sannkölluðum töfrum Tíróls. Trítlað verður eftir fjölbreyttum gönguslóðum þessa einstaka alpasvæðis í skipulögðum ferðum frá hótelinu og inn á milli stundaðar léttar æfingar og teygjur. Flestar skíðalyftur og kláfar svæðisins eru opnar yfir sumartímann, sem eykur möguleikann á því að haga dagleiðunum eftir getu hvers og eins. Eftir ánægjulega útiveru er síðan upplagt að láta þreytuna líðu úr sér í heilsulind hótelsins. 
 




Flýtileiðir




Skipta um leturstærð