Vernharður Anton Aðalsteinsson er fæddur árið 1947 og er alinn

upp á Siglufirði. Hann er bifvélavirki að mennt og hefur starfað við þá iðn í yfir 40 ár. Vernharður byrjaði að stunda skíði löngu áður en skíðalyfturnar komu sem skýrir kannski þetta endalausa þrek sem hann hefur. Þetta þrek hefur hann m.a. notað til að hlaupa um borg og bý sem og til fjalla síðast liðin 20 ár. Hann hjólar hvort sem er á mótorhjóli eða reiðhjóli, skíðar á svigskíðum sem gönguskíðum og stundar bæði skotveiði og stangveiði. Vernharður er mikill hundavinur og sést oft til hans á göngu með einn eða tvo í bandi.
Árið 2012 fer Vernharður í ferðina: Á gönguskíðum við Achensee í Tíról 21. – 28. janúar