Þórður Höskuldsson

 

 
Þórður Höskuldsson
 er fæddur árið 1966, er viðskiptafræðingur en ferðalög hafa lengi verið áhugamál hans. Eitt af þeim farartækjum sem nýst hafa á þessum ferðalögum er reiðhjólið, en þar fara saman hæfilegur hraði, snerting við umhverfið og þægilegur ferðamáti.

Þórður á að baki fjölda ferða sem  hjólandi fararstjóri í ferðum með erlenda gesti á Íslandi  og með íslendinga á framandi slóðum.
 
Hann hefur lagt að baki þúsundir kílómetra á hjólhesti á hjólastígum og sveitavegum í Skandinavíu, Þýskalandi, Frakklandi, á Spáni og víðar. Það er því varla vafi á því að hjólahópurinn verður í góðum höndum og ekki skemmir fyrir að Þórður er sleipur í þýskunni.
 
 

 
 



Árið 2012 fer Þórður í hjólaferðina Á bökkum Dónár 12. - 21. júní. 

 

 
Umsagnir farþega um Þórð:Þórður Höskuldsson

„Þórður er þægilegur og skemmtilegur og alltaf tilbúin að leysa vandamál ef upp koma.“
 
„Einstaklega þægilegur og vel gerður maður.“
 
„Þórður leggur sig fram af alúð, skipulagður og umhyggjusamur félagi.“
 
„Hann er þægilegur og tekur vel á þeim aðstæðum sem koma upp í ferðunum.“
 
„Þórður er traustur, talar þýsku, leysir vel úr málum og er skemmtilegur félagi.“
 
„Hann er ratvís, úrræðagóður og skemmtilegur. Hreinlega fæddur í hlutverkið!!“
 



Flýtileiðir




Skipta um leturstærð