Sverrir Gíslason er fæddur í Reykjavík uppúr miðri síðustu öld. Hann er rafeindavirkjameistari og Þúsundþjalasmiður, starfar sem verktaki í fjarskiptum og við annað sem tengist byggingaframkvæmdum. Þess má geta að í 13 ár vann hann sem tæknimaður hjá Ríkisútvarpinu.
Hann hefur frá blautu barnsbeini ferðast mikið í frístundum og vegna starfa sinna dvalið töluvert í Frakklandi og Sviss og einnig búið um eins árs skeið í Suður – Þýskalandi.
Sverrir hefur hjólað víða um Ísland og leiðsagt erlendum ferðamönnum í hjóla-, göngu- og jeppaferðum um landið. Hann hefur meðal annars leiðsagt breskum hjólahópum um hálendi Íslands fyrir hópadeild Ferðaþjónustu bænda við góðan orðstýr.
Sverrir er einstaklega laginn við að takast á við óvæntar aðstæður og getur gert við nánast hvað sem er. Hann á auðvelt með mannleg samskipti og hefur góða nærveru.
Árið 2012 fer Sverrir í hjólaferðina Hjólað og siglt 28. júlí - 4. ágúst