Sigurður Pétursson er fæddur 1960 í Reykjavík. Hann er rannsóknarlögreglumaður og menntaður golfkennari frá sænska golfkennaraskólanum og hefur stundað golf í nær 40 ár. Sigurður var í landsliði Íslands frá 1976 – 1990, gerðist svo atvinnumaður 1990 og kenndi golf í fullu starfi frá 1991 – 2000.
Hann hefur þrisvar orðið Íslandsmeistari í golfi eða árin 1982, 84 og 85 og einnig nokkrum sinnum verið valinn golfmaður ársins ásamt því að vera valinn íþróttamaður Reykjavíkur 1985.
Sigurður hefur verið fararstjóri í golfferðum til Túnis frá því að fyrsta ferðin var farin árið 1999, fyrst fyrir Ferðaskrifstofu Vesturlands og nú fyrir Bændaferðir.
Árið 2011 fer Sigurður í ferðina Golf í Túnis 18. - 27. febrúar.
Umsagnir farþega um ferðina
"Gaman að spila golf í Túnis, góðir golfvellir og góð fararstjórn."
"Nýr og framandi golfheimur. Túnisbúar mjög vingjarnlegir og aðbúnaður góður."
"Frábær félagsskapur með skemmtilegum fararstjóra."
"Túnis tók vel á móti hópnum! Gott skipulag og frábærir golfvellir."
"Vel skipulögð ferð með frábærum fararstjóra. Skemmtilegt land að fara til og öðruvísi en maður er vanur. Fjölbreyttir golfvellir."
"Gaman að kynnast Túnis. Elskulegir ferðafélagar og góður fararstjóri sem hristi hópinn vel saman. Hæfilega stór hópur þar sem „nýliðum“ leið vel í. Gaman að spila á mismunandi völlum."