Sigrún Valbergsdóttir

Sigrún Valbergsdóttir

Sigrún Valbergsdóttir er fædd í Hafnarfirði og alin upp í Reykjavík. Sem barn dvaldi hún öll sumur í Svarfaðardal en á unglingsárunum rak móðir hennar sumarhótel í Grundarfirði og þar gekk hún um beina á daginn en upp til fjalla þegar kvöldaði.

Eftir stúdentspróf frá Verzlunarskólanum og leikarapróf frá Leiklistarskóla Þjóðleikhússins fluttist hún ásamt manni sínum og syni til Þýskalands, þar sem þau dvöldu í tæpan áratug við nám og störf. Við háskólann í Köln lagði Sigrún stund á leikhúsfræði og þjóðháttafræði.

Eftir heimkomuna hefur hún einkum starfað sem leikstjóri og sett upp yfir 50 leikrit en einnig komið að leiklistar- og menningarmálum sem framkvæmdastjóri, kynningarstjóri, þáttastjórnandi, rithöfundur, þýðandi og kennari. Í rúma tvo áratugi hefur hún eytt sumrum í óbyggðum sem fararstjóri þýskra og íslenskra gönguhópa, ýmist á Hornströndum eða á Arnarvatnsheiði. Hún hefur einnig farið fyrir sögugöngum Ferðafélags Íslands á slóðum Íslendingasagna í öllum landshlutum. Undanfarin ár hefur hún kennt verðandi gönguleiðsögumönnum í Leiðsöguskóla Íslands.

Sigrún hefur verið fararstjóri hjá Bændaferðum í aðventuferðum til Þýskalands, Austurríkis og Ítalíu, einnig í Gardavatnsferðum og gönguferðum um Austurríki, Suður-Tíról og Færeyjar.

Umsagnir farþega

Sigrún gefur greinargóð fyrirmæli, upplýsti vel um staðina og hafði góðan húmor.

Sigrún er frábær fararstjóri. Hún gefur sig 100% í þetta og virðist hafa gaman af, er alltaf til taks og sagði skemmtilega frá.

Frábær fararstjóri, fræðandi, aðstoðar eftir þörfum. Hafði mjög góða samvinnu við bílstjóra.

Sigrún er ljúf manneskja sem er einstakega fróð og kemur öllu til skila á mannamáli.

Sigrún er einn albesti fararstjóri sem við höfum ferðast með. Hugsar vel um hópinn, fróð og sagði skemmtilega frá.




Póstlisti