Sævar Skaptason

 

 
Sævar Skaptason
hefur alla tíð verið mikið fyrir útivist. Hann byrjaði að starfa við ferðaþjónustu árið 1981 og var þá skálavörður í skála Ferðafélagsins í Langadal, Þórsmörk, til ársins 1986. Yfir sumartímann árin 1989 og 1990 starfaði hann einnig sem skálavörður í Landmannalaugum.

Sævar fór síðan í leiðsöguskólann og starfaði sem leiðsögumaður með þýska ferðamenn hér heima í fjögur sumur. Hann hefur búið í Þýskalandi og unnið þar á ferðaskrifstofu sem sérhæfði sig í ferðum til Íslands. Talar reiprennandi þýsku.

Sævar hefur verið virkur félagi í Hjálparsveit Skáta í Kópavogi síðan 1975. Hans helstu áhugamál er útivist af ýmsu tagi, eins og gönguferðir, skíðaferðir, hjólaferðir, skokk og fleira í þeim dúr. Hann hefur farið sem fararstjóri í fleiri skíðaferðir og gönguferðir, en auk þess er hann mikill hlaupari og hefur m.a. tekið þátt í maraþoninu á Kínamúrnum, Tíbetmaraþoninu í 3.800 m hæð yfir sjó og Boston maraþoninu.


Frá árinu 1998 hefur Sævar verið framkvæmdastjóri Ferðaþjónustu bænda.
 


Árið 2012 fer Sævar í ferðirnar:


 
Umsagnir farþega um Sævar:


„Sævar er frábær fararstjóri, vinalegur, þægilegur og með hlutina á hreinu."

„Sævar var með gott skipulag, tíminn vel nýttur og með reynslu sem hlaupari."

„Sævar er léttur og skemmtilegur......ekkert vesin !"

„Sævar er frábær fararstjóri og félagi.  Hann er góður skíðamaður og leiðbeinir eftir þörfum.  Hann er ábyggilegur, skapgóður og hugsar vel um hópinn sinn."

„Góður fararstjóri, með gott viðmót og veitir frábæra þjónustu."

 

Sævar við markið í Tíbetmaraþoninu 2008



Flýtileiðir




Skipta um leturstærð