Rúnar Helgason

 

Rúnar Helgason er fæddur árið 1959, hann er Suðunesjamaður og hefur starfað sem Slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður frá árinu 1988. Hann er nú aðstoðar varðstjóri hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins.

Rúnar hefur ferðast mikið um Ísland akandi, gangandi og að sjálfsögðu hjólandi, en þess má geta að hann hjólar oft í vinnuna af Suðurnesjunum. Það er því óhætt að segja að hann sé mikið fyrir ýmiss konar útivist.

Frá árinu 2006 hefur Rúnar farið sem fararstjóri í margar hjólaferðir og fengið mikið lof fyrir. Hann er þægilegur í samskiptum og vanur að vinna í hópi.
 


Árið 2012 fer Rúnar í ferðirnar:


  
 
Umsagnir um Rúnar:
 
 
„Hann er skipulagður, úrræðagóður og öruggur. Hjálpfús og hugsar vel um samferðafólkið.“ 
 
„Hann veldur sínu starfi mjög vel, er góður fararstjóri og léttur í lund.“ 
 
„Mjög passasamur að öllum líði vel, lipur í mannlegum samskiptum, fljótur að laga hjólin ef á þurfti að halda og miðlar upplýsingum fljótt og vel.“ 
 
„Rúnar er mikill ljúflingur og á gott með samskipti við fólk.“ 
 
„Mjög þægilegt að ferðast með honum og öruggur í framkomu.“ 
 



Flýtileiðir




Skipta um leturstærð