Julia Böttger er 35 ára íþróttafræðingur og einkaþjálfari.
Áður tilheyrði ég þeim hópi fólks sem fannst leiðinlegt að hlaupa. Þar til ég sameinaði ástríðu mína til fjallanna og hreyfiþörf mína og hóf að hlaupa upp og niður fjöll. Því þrengri, tæknilega erfiðari og brattari stígarnir eru, því skemmtilegri eru hlaupin og er auðvelt að gleyma stund og stað og erfiðinu sem fylgir. Ég hóf að hlaupa á malbiki árið 2001 og tók þátt í hinu og þessu borgarmaraþoni (t.d. í München, Berlín og Vín), en á milli þess tók ég þátt í nokkrum ólympískum þríþrautum. Síðan frá árinu 2006 hef ég hlaupið á fjöll. Fyrsta alvöru fjallahlaupið sem ég tók þátt í var Karwendel-hlaupið við Mittenwald og þar á eftir Zugspitz-hlaupið. Mér til óvæntrar ánægju náði ég góðum tíma og þetta var virkilega skemmtilegt. Þar sem tíminn í fjöllunum líður svo hratt, urðu leiðirnar mínar alltaf lengri og lengri og það kom að því að ég tók þátt í ultra fjallahlaupi, aðallega vegna þess að þar er bæði hlaupið upp á við og niður í móti. Vegna þátttöku minnar í Transalpine hlaupinu 2007 var ég tekin inn í liðið Salomon Trailrunning Team og frá árinu 2010 hef ég hlaupið með Salomon Team International. Ég hef hlaupið í fjölmörgum ultra-hlaupum og þess á milli unnið í eigin verkefnum.
Ég hef unnið sem hlaupasérfræðingur og einkaþjálfari í 3 ár. Ég nam íþróttafræði í München og hef oft skipulagt Trailrunning æfingabúðir í Ölpunum.
Eigin verkefni:
Hraðhlaup yfir eyjuna Tenerife frá austri til vesturs (mars 2009).
Mín leið frá Lenggries yfir Alpana til Chamonix, alltaf meðfram Ölpunum (sumar 2010). U.þ.b. 800 km og 42000 upphækkun. Alein með bakpokann minn.
Árangur:
Zugspitz Ultratrail (2011) 1. sæti
Salomon 4 Trails (2011) 2. sæti
Tor des Geants (2010) 2. sæti
Ultratrail Serra de Tramuntana (2010) 1. sæti
Transgrancanaria (2010) 4. sæti
Corsica Coast Race (2009) 1. sæti
Wendelstein Berglauf (2009) 1. sæti
Chiemgauer 100 (2008) 1. sæti
Traunsee Bergmarathon (2008) 2. sæti
Immenstädter Gebirgsmarathon (2007 / 2008) 1. og 2. sæti
Velebit Ultra Trail (2007) 2. sæti
Transalpine-Run (2007)
Zugspitzlauf (2006) 4. sæti
Nánari upplýsingar um Juliu er að finna á slóðinni: http://trailschnittchen.jimdo.com/