Jón Hálfdanarson

 

 
Jón Hálfdanarson er fæddur í Reykjavík 1947, þar sem hann ólst upp og gekk í skóla. Eftir stúdentspróf frá Menntaskólanum í Reykjavík hélt hann til náms í Þýskalandi. Við Háskólann í Göttingen tók hann diplómpróf í eðlisfræði og síðar doktorspróf. Síðan vann hann nokkur ár við kennslu og rannsóknir við Eðlisefnafræðistofnun Háskólans í Göttingen áður en hann réðst til starfa hjá Íslenska járnblendifélaginu á Grundartanga sem þá var að hefja rekstur. Hjá því fyrirtæki sem nú heitir Elkem Ísland vann Jón í aldarfjórðung, lengst af sem forstöðumaður rannsókna.
 
Síðustu árin hefur Jón kennt við Háskóla Íslands og starfað sem ráðgjafi. Hann hefur lengi stundað gönguferðir um fjöll og firnindi. Síðan 2005 hefur hann verið leiðsögumaður fyrir þýskumælandi gönguhópa um hálendi Íslands. Jón bjó á sínum tíma ellefu ár í Þýskalandi og hefur síðustu árin tekið þráðinn aftur upp og ferðast mikið um Þýskaland. Hann hefur flutt fyrirlestra um Ísland á ferðakynningum í Þýskalandi, m.a. tvisvar í Garmisch Partenkirchen.  
 

 
 
 


 

 
Árið 2012 fer Jón í ferðina: Sumar 17 - Trítlað um töfraheima Tíróls 30. ágúst - 6. september 

 

 
 



Flýtileiðir




Skipta um leturstærð