Íris Marelsdóttir er 48 ára sjúkraþjálfari. Hún útskrifaðist frá HÍ 1986 og hefur starfað sem sjúkraþjálfari hér heima og í Bandaríkjunum, meðal annars sem yfirsjúkraþjálfari á Reykjalundi og á Hjarta- og lungnastöðinni í Reykjavík.
Árið 2006 hóf hún störf hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og vinnur þar að áætlanagerð vegna heimsfaraldurs inflúensu í náinni samvinnu við embætti sóttvarnalæknis.
Yfir sumartímann hefur hún starfað sem landvörður á Rangárvallaafrétti með aðsetur í Hvanngili á Syðra – fjallabaki og á námsárunum var hún landvörður í Þórsmörk.
Útivist hefur alltaf átt hug hennar allan og hún stundar gönguskíði og svigskíði á veturna en gönguferðir, kajakróður og útilegur yfir sumartímann. Hún hefur verið virkur félagi í Hjálparsveit skáta í Kópavogi síðustu 25 ár.
Íris fór sem fararstjóri í fyrstu gönguskíðaferðina á vegum Ferðaþjónustu bænda til Seefeld árið 2005 og tókst sú ferð með eindæmum vel, en hún hefur verið fararstjóri í gönguskíðaferðum Bændaferða síðan þá, ásamt eiginmanni sínum Árna Ingólfssyni.
Árið 2012 fer Íris í ferðina: Á gönguskíðum við Lermoos 21. - 28. janúar.
Umsagnir farþega um Írisi:
„Hún hefur allt til að bera sem góður fararstjóri. Alltaf hægt að leita til hennar, hún hefur metnað fyrir starfinu og að allir séu ánægðir.“
„Hún er einstaklega alúðleg í allri framkomu og umhyggjusemi fyrir öllu og öllum.“
„Hún er alltaf jákvæð og hressir mann því við ef eitthvað er þungt í manni. Einnig er ekki of mikið fararsrjóra stress i henni maður fær að vera frjáls og njóta sín á eigin forsendum.“
„Íris er traustur farastjóri. Hún er hjálpleg og hefur þann eiginleika að þjappa fólkinu saman.“
„Íris hefur ávallt góða yfirsýn yfir hópinn og er auk þess úrræðagóð og elskuleg
sem fararstjóri.“
„Íris er vel skipulögð, skemmtileg og frábær fararstjóri.“