
Ingi Hlynur fæddist árið 1983 á sjúkrahúsinu á Selfossi en ólst upp á Hellu. Hann fór 16 ára í Menntaskólann að Laugarvatni. Að honum loknum var dvölin framlengd og farið beint í íþróttafræði við ÍKHÍ á Laugarvatni. Ingi hefur frá blautu barnsbeini stundað hestamennsku, íþróttir og útivist. Hann er íþróttafræðingur að mennt og hefur starfað við þjálfun barna og fullorðinna.
Ingi Hlynur er með annað stigið í skíðakennslu frá Norska Skíðaskólanum og hefur starfað mikið við skíðakennslu undanfarin ár. Hann var einn vetur í Val d‘Isère í Frakklandi þar sem hann starfaði sem smárútubílstjóri vítt og breytt um frönsku Alpana. Tvo undanfarna vetur hefur hann síðan starfað í Voss í Noregi sem skíða-og snjóbrettakennari jafnframt því að ná sér í kennsluréttindi í þessum greinum. Hann á að baki yfir 200 tíma í skíða-og snjóbrettakennslu.
Ingi mun bjóða farþegum upp á skíðakennslu á meðan á ferðinni stendur og er gert ráð fyrir að þeir sem vilja geti fengið skíðakennslu í um 2 klst á morgnana.
Árið 2012 fer Ingi Hlynur í ferðina Svigskíði í Schladming í Austurríki 11. - 18. febrúar.