Hjalti Kristjánsson

Hjalti Kristjánsson

Hjalti Kristjánsson er fæddur 1978. Er giftur og á tvö börn. Hann ólst upp í Kópavogi og hjá íþróttafélaginu Breiðabliki þar sem stundaðar voru margar íþróttir í mörg ár. Hjalti lauk M.Sc í þjálfunar- og lífeðlisfræðum frá USA en hann bjó og lærði í Sacramento Kaliforníu og La Crosse Wisconsin. Hjalti hefur unnið á Reykjalundi síðan 2002. Hann er einnig félagi í Hjálparsveit Skáta í Kópavogi. Hjalti hefur mikinn áhuga á allskyns hreyfingu, útiveru og ferðalögum innanlands sem utan. 

Umsagnir farþega

Líflegur, lausnarmiðaður og fróður.

Yfirvegaður, þjónustulundaður, umburðarlyndur og mjög skemmtilegur.

Er léttur í skapi, frábær félagi og úrræðagóður ef vandamál komu upp.

Hjalti er fullur af eldmóð og fær mín bestu meðmæli.

Sveigjanlegur, jákvæður og hugsar vel um hópinn.




Póstlisti