Guðrún Sigurðardóttir er fædd og uppalin í Hlíðunum, Reykjavík. Hún kom fyrst til Ítalíu 1980 í framhaldsnám og hefur verið þar að mestu leyti síðan, bjó í næstum 3 áratugi við Como vatn og býr nú til skiptis á Ítalíu og á Íslandi.
Hún hefur verið fararstjóri með Íslendinga víðs vegar um Ítalíu og víðar í fjölda ára. Einnig hefur hún unnið sem leiðsögumaður með Ítali á Íslandi.
Guðrún er útskrifuð úr leiðsögumannaskólanum hér á Íslandi. Eftir Masterspróf frá Bocconi viðskiptaháskólanum í Mílano í hagfræði ferðamála hefur hún unnið að skipulagningu ferða til Íslands og er eigandi helstu ferðaskrifstofu í Íslandsferðum á Ítalíu.
Hún hefur búið á Ítalíu í meira en 25 ár og þekkir því alla króka og kima. Guðrún hefur þægilega framkomu og talar að sjálfsögðu bæði reiprennandi íslensku og ítölsku. Hún er skipulögð og er óhætt að segja að þarna sé hún á heimavelli.
Árið 2012 fer Guðrún í eftirtaldar ferðir:
- Portofino og Cinque Terre 26. maí - 2. júní
- Hrífandi Toskana 2. - 9. júní
- Göngugleði við Gardavatn 9. - 16. júní
Umsagnir farþega um Guðrúnu:

„Er vel undirbúin, kann vel skil á verkefninu og er tilbúin að ræða breytingar.“
„Mér finnst hún traust, skipulögð, jákvæð, alþýðleg og skemmtileg. Náði vel til hópsins og samlagaðist okkur ferðalöngunum.“
„Er létt og skemmtileg og einstaklega fróð um land og þjóð.“
„Mæli tvímælalaust með Guðrúnu. Hún er skipulögð en samt afslöppuð. Notaleg manneskja sem got er að vera nálægt og sem gefur af sér.“
„Er með allt á hreinu og veitir hópnum góða þjónustu.“
„Góður fararstjóri sem leiðsegir og leiðbeinir hópnum af röggsemi.“
„Guðrún er mjög góður fararstjóri sem heldur vel utan um alla hluti og hugsar vel um sitt fólk.“