Einar Stefánsson

 
 
Einar K. Stefánsson er 46 árs verkfræðingur og hefur starfað s.l. 22 ár hjá VSÓ Ráðgjöf. Hann er alinn upp við ferðalög og útivist. Gekk til liðs við Hjálparsveit Skáta í Kópavogi 1985 og starfaði þar mest sem formaður undanfaraflokks sveitarinnar við fjallabjörgunarstörf o.þ.h. Fór á vegum sveitarinnar á tveggja vikna fjallabjörgunarnámskeið í Glennmore Lodge í Skotlandi 1987 og fór síðan klifurleið á Ben Nevis, hæsta fjall Skotlands.  Sumarið 1988 fór Einar með sveitarfélaga klifurleið á Mt. Blanc eftir Brenva hryggnum frá Ítalíu og niður til Chamonix en í þeirri ferð voru fjöllin Chardonne, Argentiere og Matterhorn jafnframt sigruð. 
 
„Vorið 1989 fórum við fjórir félagar í sveitinni og fórum West Rib klifurleiðina Mt. McKinley í Alaska (6200 m). Sumarið 1990 fór ég ásamt félaga í hjálparsveit Skáta í Reykjavík til Pamir fjallanna í Sovétríkjunum. Gengum á fjallið Pik Lenin (7.200 m) en náðum ekki tindi Pik Kommunisma (7.500 m). Fórum aftur til Pamir 1992. Þá voru Sovétríkin hrunin og lýðveldin Kirgistan og Tadsikistan orðin sjálfstæð. Klifum þá Pik korchenvskayja (7150m).“
 
„Var í framhaldsnámi í Danmörku 1991-1993 og ferðaðist þá m.a. til Noregs og gekk á Surtningssua 3. hæsta fjall Noregs sumarið 1993. Fórum til Himalaya haustið 1995 og klifum Cho Oyu (8.200 m) og urðum þá fyrstir íslendinga til að klífa 8.000 m fjall. Vorið 1997 klifum við Evererst (8.848 m) og árið 2001 kleif ég fjallið Kinabalu (4.100 m) ásamt konunni o.fl. og er það á eyjunni Borneo og hæsta fjall í SA Asíu. Síðan þá hef ég klifið Úlfarsfell, Esjuna og Hvannadalshnúk o.fl. íslensk fjöll.“

Einar fór fyrir hóp Ferðaþjónustu bænda árin 2007 og 2008 á hæsta fjall V-Evrópu Mont Blanc (4.807 m) og tókust þær ferðir einstaklega vel. Sökum þess hversu brött leiðin er á Monte Rosa er einn leiðsögumaður fyrir hverja þrjá þátttakendur. Með okkur í för verða því einnig þrautþjálfaðir fjallaleiðsögumenn með sérþekkingu á þessu svæði.
 


 
 

Umsagnir farþega um Einar: 
 
 
„Hann er frábær fararstjóri, þaulreyndur fjallamaður og traustur.“
 
„Einar er án efa einn reyndasti fjallamaður landsins, frábær fararstjóri sem er engu að síður alltaf til í að sprella svolítið.“
 
„Fararstjóri sem veit nákvæmlega hvað hann er að gera, lætur sér annt um farþegana og er sannkallur reynslubolti.“
 
„Einar er bara frábær fararstjóri – svo einfalt er það.“
 
„Hann er þægilegur og skemmtilegur og alltaf tilbúin að leysa vandamál ef upp koma.“

 
 
  
 
 

 
 



Flýtileiðir




Skipta um leturstærð