Anna Sigríður Vernharðsdóttir

 
 
Anna Sigríður Vernharðsdóttir fæddist árið 1969 og bjó í Kópavoginum fyrstu 37 ár ævinnar. Hún er hjúkrunarfræðingur og ljósmóðir og starfar á fæðingardeild Landspítala. Hún hefur verið félagi í Hjálparsveit skáta Kópavogi frá 1991 og var um tíma yfirleiðbeinandi Björgunarskólans í fyrstu hjálp. Anna Sigríður var ekki há í loftinu þegar hún steig fyrst á skíði en skíðamennska hefur verið áhugamál hennar síðan. Mest hefur hún verið á svigskíðum og fjallaskíðum en undanfarin ár hafa gönguskíðin heillað meir og meir. Þegar ekki viðrar til skíðaiðkunar hleypur hún um borg og bý eða gengur til fjalla.
 
 
 
 

  
Árið 2012 fer Anna Sigríður í ferðina: Á gönguskíðum við Achensee í Tíról 21. – 28. janúar 2012
 

 


Flýtileiðir




Skipta um leturstærð