Fararstjórar

 
Anna Sigríður Vernharðsdóttir

  Anna Sigríður Vernharðsdóttir fæddist árið 1969 og bjó í Kópavoginum fyrstu 37 ár ævinnar. Hún er hjúkrunarfræðingur og ljósmóðir og starfar á fæðingardeild Landspítala. Hún hefur verið félagi í Hjálparsveit skáta Kópavogi frá 1991 og var um tíma yfirleiðbeinandi Björgunarskólans í fyrstu hjálp. Anna Sigríður var ekki há í loftinu þegar hún steig fyrst á skíði en skíðamennska hefur verið áhugamál hennar síðan. Mest hefur hún verið á svigskíðum og fjallaskíðum en undanfarin ár hafa gönguskíðin heillað meir og meir. Þegar ekki viðrar til skíðaiðkunar hleypur hún um borg og bý eða gengur til fjalla.

Lesa meira >>


 

Árni Ingólfsson

  Árni Ingólfsson er  fæddur 1961 í Kópavogi, vélvirki og þúsundþjalasmiður. Hann hefur verið félagi í Hjálparsveit skáta Kópavogi um 30 ára skeið og starfar þar með rústaflokki sem er hluti af íslensku alþjóðasveitinni. Útivist hefur hann stundað alla tíð og fyrstu gönguskíðin eignaðist hann fyrir 25 árum.  

Hann hefur farið í allar gönguskíðaferðir Bændaferða og oft tekið að sér það hlutverk að vera aftasti maður hópsins, hefur séð til þess að allir skili sér heim eftir góðan dag í brautunum.

Lesa meira >>


 

Einar K. Stefánsson

  Einar K. Stefánsson er verkfræðingur og reyndur fjallgöngumaður. Auk þess að hafa klifið Mont Blanc hefur hann klifið mörg há fjöll um heim allan, þ.á.m. Mt.Everest í 8.848 m hæð. Einnig hefur hann um árabil starfað með Hjálparsveit Skáta m.a. við fjallabjörgunarstörf. Einar fór fyrir hóp Ferðaþjónustu bænda árin 2007 og 2008 á topp Mont Blanc og tókust þær ferðir einstaklega vel. Sökum þess hversu brött leiðin er á Monte Rosa er einn leiðsögumaður fyrir hverja þrjá þátttakendur. Með okkur í för verða því einnig þrautþjálfaðir fjallaleiðsögumenn með sérþekkingu á þessu svæði.
.

Lesa meira >>

 

 
Guðmundur K. Einarsson

 
  Guðmundur K. Einarsson hefur allt frá unglingsárunum verið virkur félagi í Hjálparsveit skáta í Kópavogi  flest árin hefur hann setið í stjórn sveitarinnar. Einnig hefur hann sinnt trúnaðarstörfum fyrir Rauðakross Íslands.

Guðmundur hefur starfað sem fararstjóri í svigskíðaferðum Ferðaþjónustu bænda síðan 2004, en þess má geta að hann gengur alltaf undir viðurnefninu Guðmundur góði.

Lesa meira >>

 

 
Guðrún Sigurðardóttir


Guðrún Sigurðardóttir er fædd og uppalin í Hlíðunum, Reykjavík. Hún kom fyrst til Ítalíu 1980 í framhaldsnám og hefur verið þar að mestu leyti síðan og býr hún við Como vatn ásamt eiginmanni sínum. Hún hefur verið fararstjóri með Íslendinga víðs vegar um Ítalíu og víðar í fjölda ára. Einnig hefur hún unnið sem leiðsögumaður með Ítali á Íslandi. Guðrún er útskrifuð úr leiðsögumannaskólanum hér á Íslandi. Eftir Masterspróf frá Bocconi viðskiptaháskólanum í Mílano í hagfræði ferðamála hefur hún unnið að skipulagningu ferða til Íslands og er eigandi helstu ferðaskrifstofu í Íslandsferðum á Ítalíu.

 
Hanna Marteinsdóttir

  Hanna Marteinsdóttir er 62 módel, útskrifuð sjúkraþjálfari frá HÍ 1986 og síðan MA úr uppeldis- og menntunarfræðum 2006. Hefur starfað við ýmis störf sjúkraþjálfunar frá útskrift, að mestu hérlendis en einnig í Noregi. Starfsvettvangur hefur verið á ýmsum sjúkrahúsum og víðar en sl. ár með fötluðum börnum og fjölskyldum þeirra á Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins. 

Hanna hefur lengi haft áhuga á útivist og hreyfingu og ferðast víða um fáfarnar slóðir á Íslandi, jafnt að sumri sem vetri og þá ýmist gangandi eða á gönguskíðum.

 

Ingi Hlynur fæddist árið 1983 á sjúkrahúsinu á Selfossi en ólst upp á Hellu. Hann fór 16 ára í Menntaskólann að Laugarvatni. Að honum loknum var dvölin framlengd og farið beint í íþróttafræði við ÍKHÍ á Laugarvatni. Ingi hefur frá blautu barnsbeini stundað hestamennsku, íþróttir og útivist. Hann er íþróttafræðingur að mennt og hefur starfað við þjálfun barna og fullorðinna.
 
Ingi mun bjóða farþegum upp á skíðakennslu á meðan á ferðinni stendur og er gert ráð fyrir að þeir sem vilja geti fengið skíðakennslu í um 2 klst á morgnana.


 
Íris Marelsdóttir

 

 

 

Íris Marelsdóttir er 48 ára sjúkraþjálfari. Hún útskrifaðist frá HÍ 1986 og hefur starfað sem sjúkraþjálfari  hér heima og í Bandaríkjunum,  meðal annars sem yfirsjúkraþjálfari á Reykjalundi og á Hjarta- og lungnastöðinni  í Reykjavík.

Árið 2006 hóf hún störf hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og vinnur þar að áætlanagerð vegna heimsfaraldurs inflúensu í náinni samvinnu við embætti sóttvarnalæknis. 
Yfir sumartímann  hefur hún starfað sem  landvörður á Rangárvallaafrétti með aðsetur í Hvanngili á Syðra – fjallabaki og á námsárunum var hún landvörður í Þórsmörk.

 

 

 

Jón Hálfdanarson


Jón Hálfdanarson er fæddur í Reykjavík 1947, þar sem hann ólst upp og gekk í skóla. Eftir stúdentspróf frá Menntaskólanum í Reykjavík hélt hann til náms í Þýskalandi. Við Háskólann í Göttingen tók hann diplómpróf í eðlisfræði og síðar doktorspróf. Síðan vann hann nokkur ár við kennslu og rannsóknir við Eðlisefnafræðistofnun Háskólans í Göttingen áður en hann réðst til starfa hjá Íslenska járnblendifélaginu á Grundartanga sem þá var að hefja rekstur. Hjá því fyrirtæki sem nú heitir Elkem Ísland vann Jón í aldarfjórðung, lengst af sem forstöðumaður rannsókna. 
 


 

Julia Böttger


Julia Böttger er 35 ára íþróttafræðingur og einkaþjálfari.
 
Áður tilheyrði ég þeim hópi fólks sem fannst leiðinlegt að hlaupa. Þar til ég sameinaði ástríðu mína til fjallanna og hreyfiþörf mína og hóf að hlaupa upp og niður fjöll. Því þrengri, tæknilega erfiðari og brattari stígarnir eru, því skemmtilegri eru hlaupin og er auðvelt að gleyma stund og stað og erfiðinu sem fylgir. Ég hóf að hlaupa á malbiki árið 2001 og tók þátt í hinu og þessu borgarmaraþoni (t.d. í München, Berlín og Vín), en á milli þess tók ég þátt í nokkrum ólympískum þríþrautum. Síðan frá árinu 2006 hef ég hlaupið á fjöll. 


 
Rúnar Helgason


Rúnar Helgason
Rúnar Helgason er fæddur árið 1959, hann er Suðunesjamaður og hefur starfað sem Slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður frá árinu 1988. Hann er nú aðstoðar varðstjóri hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins. Rúnar hefur ferðast mikið um Ísland akandi, gangandi og að sjálfsögðu hjólandi, en þess má geta að hann hjólar oft í vinnuna af Suðurnesjunum. Það er því óhætt að segja að hann sé mikið fyrir ýmiss konar útivist. Frá árinu 2006 hefur Rúnar farið sem fararstjóri í margar hjólaferðir og fengið mikið lof fyrir. Hann er þægilegur í samskiptum og vanur að vinna í hópi...

 
Sigurður Pétursson


   Sigurður Pétursson er fæddur 1960 í Reykjavík. Hann er rannsóknarlögreglumaður og menntaður golfkennari frá sænska golfkennaraskólanum og hefur stundað golf í nær 40 ár. Sigurður var í landsliði Íslands frá 1976 – 1990, gerðist  svo atvinnumaður 1990 og kenndi golf í fullu starfi frá 1991 – 2000.

Hann hefur þrisvar orðið Íslandsmeistari í golfi eða árin 1982, 84 og 85 og einnig nokkrum sinnum verið valinn golfmaður ársins ásamt því að vera valinn íþróttamaður Reykjavíkur 1985.
Sigurður hefur verið fararstjóri í golfferðum til Túnis frá því að fyrsta ferðin var farin árið 1999, fyrst fyrir Ferðaskrifstofu Vesturlands og síðan fyrir Bændaferðir síðan 2007.

Lesa meira >>

 

 
 

Steingrímur Birgisson

 

Steingrímur Birgisson er eftir því sem best er vitað fæddur í Reykjavík 1964, ættaður frá Akureyri og Ísafirði og með smá Siglfirðing í sér líka. Hann er viðskiptafræðingur að mennt og fæddur og uppalin á skíðum í Hamragili. Hann sparkaði líka tuðru langt frameftir aldri en helstu áhugamálin í dag eru almenn útivera, fjallgöngur, hlaup og skíði. Steingrímur hefur starfað við ferðaþjónustu í rúma tvo áratugi og hefur farið í fjölmargar svigskíðaferðir með Ferðaþjónustu bænda undanfarin ár.

Lesa meira >>



 
Steinunn H. Hannesdóttir

 


Steinunn H. Hannesdóttir
er M.Sc. íþróttafræðingur að mennt. Hún hefur kennt íþróttir á grunnskóla- og framhaldsskólastigi en þó hefur áherslan verið fyrst og fremst á íþróttir fyrir almenning. Hefur starfað á líkamsræktarstöðvum, bæði með hóptíma og einkaþjálfun og einnig stýrt leikfimi og hreyfingu fyrir aldraða.

Steinunn starfar við heilsuþjálfun fólks í endurhæfingu á Reykjalundi og hefur auk þess verið þjálfari Trimmklúbbs Seltjarnarness síðastliðin 12 ár.

Áhugi á útivist og hreyfingu hefur verið sameinaður í skíða- og gönguferðum um landið, jafnt að sumri sem vetri.

Lesa meira >>

 

 

 
Sverrir Gíslason

 

 

Sverrir Gíslason er fæddur í Reykjavík uppúr miðri síðustu öld. Hann er rafeindavirkjameistari og Þúsundþjalasmiður, starfar sem verktaki í fjarskiptum og við annað sem tengist byggingaframkvæmdum. Þess má  geta að í 13 ár vann hann sem tæknimaður hjá Ríkisútvarpinu.
 
Hann hefur frá blautu barnsbeini ferðast mikið í frístundum og vegna starfa sinna dvalið töluvert í Frakklandi og Sviss og einnig búið um eins árs skeið í Suður – Þýskalandi.
 
Sverrir hefur hjólað víða um Ísland og leiðsagt erlendum ferðamönnum í hjóla-,  göngu- og jeppaferðum um landið. Hann hefur meðal annars leiðsagt breskum hjólahópum um hálendi Íslands fyrir hópadeild Ferðaþjónustu bænda við góðan orðstýr.
 
Sverrir er einstaklega laginn við að takast á við óvæntar aðstæður og getur gert við nánast hvað sem er. Hann á auðvelt með mannleg samskipti og hefur góða nærveru.

 

Lesa meira >>

 


 

 
Sævar Skaptason

  Sævar Skaptason hefur alla tíð verið mikið fyrir útivist. Hann byrjaði að starfa við ferðaþjónustu árið 1981 og var þá skálavörður í skála Ferðafélagsins í Langadal, Þórsmörk, til ársins 1986. Yfir sumartímann árin 1989 og 1990 starfaði hann einnig sem skálavörður í Landmannalaugum. 
Sævar hefur verið virkur félagi í Hjálparsveit Skáta í Kópavogi síðan 1975. Hans helstu áhugamál er útivist af ýmsu tagi, eins og gönguferðir, skíðaferðir, hjólaferðir, skokk og fleira í þeim dúr. Hann hefur farið sem fararstjóri í fleiri ssvigkíðaferðir og gönguferðir, en auk þess er hann mikill hlaupari og hefur m.a. tekið þátt í maraþoninu á Kínamúrnum, Tíbetmaraþoninu í 3.800 m hæð yfir sjó og Boston maraþoninu.

Lesa meira >>

 

 

Vernharður Anton Aðalsteinsson

  Vernharður Anton Aðalsteinsson er fæddur árið 1947 og er alinn upp á Siglufirði. Hann er bifvélavirki að mennt og hefur starfað við þá iðn í yfir 40 ár. Vernharður byrjaði að stunda skíði löngu áður en skíðalyfturnar komu sem skýrir kannski þetta endalausa þrek sem hann hefur. Þetta þrek hefur hann m.a. notað til að hlaupa um borg og bý sem og til fjalla síðast liðin 20 ár. Hann hjólar hvort sem er á mótorhjóli eða reiðhjóli, skíðar á svigskíðum sem gönguskíðum og stundar bæði skotveiði og stangveiði. Vernharður er mikill hundavinur og sést oft til hans á göngu með einn eða tvo í bandi.

Lesa meira >> 
 


  

Þórður Höskuldsson

 

  Þórður Höskuldsson er fæddur árið 1966, er viðskiptafræðingur en ferðalög hafa lengi verið áhugamál hans. Eitt af þeim farartækjum sem nýst hafa á þessum ferðalögum er reiðhjólið, en þar fara saman hæfilegur hraði, snerting við umhverfið og þægilegur ferðamáti.

Þórður á að baki fjölda ferða sem  hjólandi fararstjóri í ferðum með erlenda gesti á Íslandi  og með íslendinga á framandi slóðum. Hann hefur lagt að baki þúsundir kílómetra á hjólhesti á hjólastígum og sveitavegum í Skandinavíu, Þýskalandi, Frakklandi, á Spáni og víðar. Það er því varla vafi á því að hjólahópurinn verður í góðum höndum og ekki skemmir fyrir að Þórður er sleipur í þýskunni.

Lesa meira >>

 


Flýtileiðir




Skipta um leturstærð