Vor 3 Trítlað og Siglt

  

5. – 12. maí 2012     ÖRFÁ SÆTI LAUS!
Fararstjóri: Jens Ruminy

Trítlað og siglt er skemmtileg ferð sem naut mikilla vinsælda á síðasta ári, en færri komust að en vildu. Í þessari ferð siglum við á fljótunum Saar, Mósel og Rín og förum daglega í 8 - 10 km langar gönguferðir. Ferðin hefst á flugi til Frankfurt, þaðan sem haldið er inn í Rínardalinn til Rüdesheim, eins vinsælasta ferðamannabæjar Þýskalands. Gistum þar í 3 nætur. Þaðan verður farið í gönguferðir og gefst tækifæri til að skoða sig um, heimsækja söfn og fara í vínsmökkun. Því næst er ekið til Strassborgar og farið í skoðunarferð þar áður en haldið er til Saarlouis í Saardalnum, þar sem skipið MS Modigliani bíður okkar. Gistum á skipinu í 4 nætur. Á morgnana göngum við um fjölbreytt landsvæði, s.s. vínakra, skóglendi og á stígum eftir hamraveggjum. Við upplifum stórkostlegt landslag og njótum útsýnis yfir bæi, ár, dali, vínakra og kastala. Eftir hádegi njótum við þess að sigla og slaka á og virða fyrir okkur tilkomumikla fegurð þessara svæða. Eftir að skipsferðinni lýkur í Strassborg er komið að heimferð til Íslands. Þessi ferð er fyrir alla sem hafa gaman af að hreyfa sig daglega, sigla og njóta lífsins í góðum hópi í fagurri náttúru.

 

 

 
5. maí               Flug til Frankfurt – Strassborg - Rüdesheim
Brottför frá Keflavík kl. 07.25. Mæting í Leifsstöð 2 klst. fyrir brottför. Lending í Frankfurt kl. 12.50 að staðartíma (+2 klst). Á flugvellinum bíður okkar rúta sem keyrir okkur inn í Rínardalinn, til Rüdesheim, sem er einn vinsælasti ferðamannabær Þýskalands, en þar er gist í 3 nætur. Sameiginlegur kvöldverður.
 
6. maí               Skoðunarferð um Rüdesheim og létt gönguferð
Bærinn Rüdesheim er þekktur fyrir sín gömlu og fallegu bindingsverkshús og skemmtilegar þröngar götur (Drosselgassen) sem iða af mannlífi. Þar eru jafnframt skemmtilegar litlar verslanir og jólabúð sem er opin allt árið. Eftir morgunverð förum við í bæjarferð fram að hádegi og síðan í létta gönguferð seinni partinn. Sameiginlegur kvöldverður.
 
7. maí               Frjáls dagur í Rüdesheim
Frjáls dagur í Rüdesheim. Ef áhugi er fyrir hendi er hægt að fara á söfn, eins og t.d. á vínsafnið Brömserburg eða í Asbach bruggverksmiðjuna. Einnig væri hægt að taka ferjuna yfir til Bingen. Sameiginlegur kvöldverður.
 
8. maí               Ekið til Saarlouis – Sigling með MS Modigliani
Nú er komið að því að kveðja þennan yndislega bæ og halda í siglingu um árnar Saar, Mósel og Rín, en fyrst ökum við til Strassborgar í Frakklandi. Þar heimsækjum við dómkirkjuna og skoðum okkur um í þessari fallegu borg. Eftir það verður haldið til Saarlouis þar sem skipið MS Modigliani bíður okkar, en við dveljum um borð næstu 5 daga. Byrjum á því að koma okkur fyrir í klefunum, síðan er móttaka og fordrykkur þar sem við fáum að kynnast áhöfninni sem býður okkur svo til fyrsta kvöldverðar um borð. Á meðan á kvöldverði stendur leggur skipið frá höfn til Merzig en þangað verður komið seint um kvöldið.
 
9. maí               Merzig – Saarburg – Felsenweg
Um morguninn verður siglt frá Merzig til Saarburg, en meðan á morgunverði stendur njótum við siglingarinnar um frægu Saar-slaufuna sem myndar smáeyjar þar sem líf villtra fugla blómstrar. Komum síðan að landi í Saarburg. Þessi rómantíski bær liggur í Dreiländereck eða einmitt þar sem löndin Þýskaland, Frakkland og Lúxemborg mætast. Hér hefjum við fyrstu gönguferðina sem er ca. 10 km. Rúta keyrir okkur upp að rómversku virki að nafni Klause Kastel sem er staðsett á himinháum kletti yfir Saardalnum. Þaðan er gengið á stíg meðfram hamraveggjum, yfir tún og í gegnum skóglendi göngum við tilbaka til Saarburg en stoppum til að njóta útsýnisins yfir Saardalinn. Nú leggur skipið frá landi á meðan við njótum hádegisverðar og siglum í fögru landslagi Móseldalsins sem umvefur okkur þennan dag, í slökun upp á dekki fram að kvöldverði.
 
10. maí              Cochem – Valwiger Berg – Koblenz
Um morgunverðarleytið er komið að landi í Cochem, en þennan dag fáum við tækifæri til að skoða hið stórkostlega landslag miðju Móselsdalsins. Ganga dagsins er u.þ.b.10 km. Við fylgjum voldugum klettaveggjum Brauselay, vínökrum og fjölbreytileiki náttúrunnar kemur okkur oft á óvart, þröngir göngustígar umkringdum vínökrum og oft ægifagurt útsýni yfir dalinn. Komið að pílagrímskirkju heilagrar Maríu og Magdalenu, en þar er hæsti punkturinn, áfram að Valwiger Berg sem myndaðist í einni Mosel-slaufunni. Gengið eftir hryggnum Conder Berg, yfir ávaxtatún og í gegnum skóglendi til baka til Cochem. Stórfenglegt útsýni á Reichsburg kastalann og yfir Móseldalinn. Áfram haldið í gegnum vínakra tilbaka til skips. Hádegismatur á MS Modigliani. Eftir matinn fáum við tækifæri til að slaka á og njóta útsýnisins á meðan á siglingu stendur niður Mósel, en seint um kvöldið verður lagt að landi í Koblenz þar sem árnar Rín og Mósel mætast. Kvöldverður á skipinu.
 
11. maí              Rínardalurinn – Rheinsteig –Rüdesheim
Á meðan á morgunverði stendur, verður siglt áfram um eitt af fallegustu landsvæðum Evrópu, um Rínardalinn til Rüdesheim. Siglt er hjá Loreley klettinum, höllum og köstulum sem tróna upp á klettasyllum og hæðum. En eftir morgunverð skellum við okkur í gönguskóna. Við göngum Rínarveginn sem er ca. 9 km ganga. Gengið á mjóum stígum og svífum yfir vínökrum Rüdesheim í stólalyftu, upp að minnismerkinu Niederwald. Þaðan er fagurt útsýni yfir ána Rín. Göngum áfram meðfram skóginum og njótum útsýnisins. Gengið verður í gegnum skóginn Niederwald og niður til Rüdesheim og mætum til hádegisverðar á skipinu. Eftir hádegi njótum við siglingarinnar í rómantíska Rínardalnum og siglum framhjá virkjum og kastölum. Nú leggur MS Modigliani af stað í átt að Strassborg. En um kvöldið bíður ykkar hátíðarkvöldverður, tónlist og dans. 
 
12. maí              Heimferð
Eftir yndislega siglingu og gönguferðir kveðjum við áhöfnina í Strassborg þaðan sem ekið verður til Frankfurt. Brottför frá Frankfurt kl. 14.00 og lending í Keflavík kl. 15.35.
 
Forsendur:
Gönguferðir teljast auðveldar til miðlungserfiðar. Það eru gengnir 8 – 10 km á dag, sem eru
3-4 klst. á dag. Gaman fyrir alla sem eru í góðu formi og vilja fara í gönguferðir flesta daga í ferðinni. 
 
 


 
 
 
Verð: 214.950 kr. á mann.                    Mikið innifalið – athugið sérstaklega! 
Aukagjald fyrir einbýli er 31.700 kr.
 
Aukagjald fyrir káetu á efra þilfari er 16.900 kr. á mann í tvíbýli.
Ekki er hægt að fá einbýli á efra þilfari. 
 
 
Innifalið:
• Flug með Icelandair og flugvallarskattar
• Allar skoðunarferðir með rútu samkvæmt ferðalýsingu
• Gisting í tveggja manna herbergi í 3 nætur á 3* hóteli í Rüdesheim
• Morgun- og kvöldverður á hótelinu í Rüdesheim
• 5 daga fljótasigling með MS Modigliani
• Gisting á skipinu MS Modigliani í káetum með sturtu / salerni í 4 nætur
• Móttökudrykkur á skipinu
• Morgun-, hádegis- og kvöldverður á MS Modigliani
• Drykkir með máltíðum á skipinu, vín, bjór, vatn og kaffi espresso
• Hátíðarkvöldverður síðasta kvöldið á skipinu
• Íslensk fararstjórn
 
Ekki innifalið:
Aðgangseyrir inn á söfn, í hallir og kirkjur. Hádegisverðir. Forfalla- og ferðatryggingar. Þjórfé.

  
 
Bændaferðir starfa samkvæmt Almennum alferðaskilmálum SAF.

 


Flýtileiðir




Skipta um leturstærð