Vor 2 Eyjaperlur Króatíu

  

1. - 13. apríl 2012     UPPSELT! 
Fararstjóri: Hólmfríður Bjarnadóttir

 
Eyjan Krk og hinar eyjaperlur Kvarner-víkur í Króatíu taka á móti okkur í allri Eyjaperlur Króatíusinni dýrð í þessari glæsilegu páskaferð. Ferðin hefst á flugi til Frankfurt þaðan sem haldið verður til München, höfuðstaðar Bæjaralands, en þar gistum við fyrstu nóttina. Þaðan höldum við áfram til Króatíu, til eyjunnar Krk sem er í norðurhluta Kvarner-víkur, en eyjarnar og víkin eru rómaðar fyrir fegurð sína. Gistum í 9 nætur í bænum Malinska sem er einn aðalferðamannabær eyjunnar. Þaðan verður farið í skemmtilegar skoðunarferðir, m.a. ökum við um Krk og siglum yfir til eyjunnar Cres, sem er ásamt Krk stærsta eyja Adríahafsins, en Cres er tengd við eyjuna Lošinj, sem er blóma- og furuparadís króatísku eyjanna. Göngum um vatnaþjóðgarðinn Plitvicka jezera, með sínum16 sjáanlegu vötnum sem bjóða upp á eina af glæsilegustu náttúruleiksýningum Austur-Evrópu. Einnig verður komið til Opatija, heilsubæjarins sem kallaður er „Stóra dama“ króatísku strandarinnar og eins heimsækjum við Hum, fámennasta bæjarfélag í heimi með 23 íbúum, borðum saman hádegisverð hjá vínbónda í Pazin og komum til Baska á Krk. Eftir yndislega daga verður ekið til gömlu ríkisborgarinnar Nürnberg þar sem við gistum 2 síðustu næturnar áður en haldið er heim á leið.
 

 

 
 
1. apríl             Flug til Frankfurt og ekið til München
Brottför frá Keflavík kl.7.25. Mæting í Leifsstöð 2 klst. fyrir brottför. Lending í Frankfurt kl. 12.50 að staðartíma. Þaðan er ekið til München höfuðborgar Bæjaralands og gist fyrstu nóttina í nágrenni við borgina.

2. apríl             Ekið frá München til eyjunnar Krk í Króatíu
Eftir góðan morgunverð heldur ferð okkar áfram inn til Króatíu að Kvarner-vík og út í eyjuna Krk, þar sem gist verður á hóteli í bænum Malinska í í 9 nætur, en bærinn sem er einn af aðalferðamannabæjum landsins er mjög líflegur og skemmtilegur. Hótelið er í 5 mín. göngufæri frá miðbænum með fallegum garði við ströndina. Á hótelinu er einnig heilsulind, gufubað og sólpallur.

3. apríl              Skoðunarferð í Malinska og frjáls tími
Tökum morguninn rólega. Eftir morgunverð göngum við saman inn í miðbæ Malinska sem er með 1.700 íbúa. Bærinn er einn vinsælasti ferðamannabærinn á eyjunni, með yfir 2000 sólarstundir á ári, en árið 1905 var bærinn valinn perla eyjanna í Kvarner-vík, af prófessor við háskólann í Vínarborg. Eftir skoðunarferð með heimamanni gefst frjáls tími það sem eftir er dags.

4. apríl             Ævintýraferð um Krk eyjuna
Ævintýraferð um Krk með heimamanni sem fræðir okkur um líf eyjarskeggja, menningu og listir. Á eyjunni búa um 17.000 íbúar og er hún 470 ferkílómetrar, stærst eyja Adríahafsins ásamt eyjunni Cres sem er jafnstór. Nafn höfuðborgarinnar ber nafn eyjunnar, Krk. Eyjan er tengd meginlandinu með hinni 1,3 km löngu Krk-brú eða hinni svokallaðri Tito-brú, en hún var byggð stuttu eftir lát forseta landsins árið 1980 og nefnd eftir honum, honum til heiðurs. Heimsækjum helstu staði eyjunnar í dag og njótum gestrisni eyjarskeggja.

5. apríl              Eyjurnar Cres og Lošinj
Í dag ætlum við að taka smá eyjahopp. Byrjum á því að aka til Valbiska á Krk þar sem við tökum ferju yfir til Merag á Cres sem er ein af landbúnaðareyjunum. Ekið verður suður með eyjunni yfir á eyjuna Lošinj sem er blóma- og furuparadís eyjanna í Króatíu. Hér á eyjunni er að finna suðrænan gróður, s.s. pálma- og furutré, agave-plöntuna, lárviðarrós, sítrónutré, salvíu og lofnarblóm (lavender). Eyjan státar af yfir 2500 sólarstundum á ári, sem þýðir að það eru um 300 nánast skýjalausir dagar á ári, en eyjan telst til sólríkustu staða Evrópu. Komum til Veli Lošinj, sem var upphaflega fyrsta byggð eyjunnar, en tilheyrir nú Mali Lošinj, höfuðstaðar hennar, en við ætlum að skoða það helsta sem þessi undurfagra eyja, sem töfrar þúsundir ferðamanna til sín, hefur upp á að bjóða.
Eyjaperlur Króatíu
6. apríl             Dagur í Opatija
Nú verður ekin fögur leið til Opatija sem kölluð er „ Stóra Dama“ króatísku strandarinnar með 10.000 íbúum. Bænum er oft líkt við Nice við frönsku Rívíeruna, en þar má finna glæsileg hótel, blómaskreytta garða og fallega strönd. Njótum þess að kanna bæinn á eigin vegum og fá okkur hressingu á einum af fjölmörgu veitingastöðum borgarinnar og einnig gefst tími til að líta inn til kaupmanna.

7. apríl             Frjáls dagur í Malinska
Nú tökum við lífinu með ró, könnum umhverfið, notum aðstöðuna við hótelið og slökum á. Hægt er að skoða Malinska betur og einfaldlega njóta náttúrufegurðarinnar sem umlykur okkur.

8. apríl             Stutt ferð til Baška
Baška er bær syðst á Krk eyjunni við hæstu hæð eyjunnar, fjallinu Obzova í 568 m hæð, á tanga við fallega vík. Skemmtilegur bær með þröngum, litlum götum og lítilli höfn sem setur fallegan svip á mynd bæjarins. Fegurðin umvefur okkur í einum litríkasta bæ eyjunnar og hér er upplagt að fá sér hádegishressingu. Á leiðinni til baka verður farið í vínsmökkun, en eyjarskeggjar eru frægir fyrir vínframleiðslu sína.

9. apríl             Vatnaþjóðgarðurinn Plitvička jezeraEyjaperlur Króatíu
Í dag verður ekið að Þjóðgarðinum Plitvička jezera, með sínum 16 sjáanlegu vötnum, sem bjóða upp á eina af glæsilegustu náttúruleiksýningum Austur-Evrópu. Það er ekki að undra að þessi staður sé kominn á heimsminjaskrá UNESCO síðan árið 1979. Þetta er göngudagur og því gott að vera með góða skó með sér.

10. apríl             Hum og vínbóndi í Pazin
Hum er fámennasta bæjarfélag í heimi, með 23 íbúum. Hum stendur í 349 m hæð og er með fallegri stöðum sem maður kemur á, en íbúar bæjarins lifa á landbúnaði, snafsagerð og ferðaþjónustu. Hér ætlum við að byrja daginn, innan virkisveggja frá 11 öld, en ekki hefur verið byggt innan þeirra síðan þá. Hum var áður menningarmiðstöð glagólítísku skriftarinnar, en elsta dæmi um skriftina frá miðri 12. öld í Króatíu hefur varðveist hér í kirkju bæjarins. Eftir góðan tíma í Hum verður ekið til Pazin, þar sem vínbóndi tekur á móti okkur með kræsingum, góðum mjöð og harmonikkuspili.

11. apríl              Kveðjum Krk eyjunna, ekið til Nürnberg
Nú kveðjum við þessa glæsilegu eyju eftir góða daga, en þaðan verður ekið rakleiðis til gömlu ríkisborgarinnar Nürnberg og gist þar síðustu 2 næturnar á hóteli inni í miðborginni. Þetta er ein af borgunum sem kemur verulega á óvart og býður upp á margt skemmtilegt.

12. apríl             Dagur í Nürnberg
Eftir góðan morgunverð, förum við í áhugaverða skoðunarferð um borgina, byrjum á að aka að Zeppelin-vellinum, þar sem fyrsta loftskipið lenti og sem síðar var notað sem ríkisþingstaður Hitlers og frjálsíþróttavöllur. Þessi blómlega borg er með um 550.000 íbúa og er þar býsna margt að skoða, t.d. borgarmúrinn, kirkjur, söfn og höllin Kaiserburg. Einnig gefst frjáls tími til að kanna borgina á eigin vegum og ekki má gleyma pylsunum sem þeir eru frægir fyrir og tréhandverkinu, m.a. hnetubrjóta og spiladósir.

13. apríl             Heimferð
Nú er komið að heimferð eftir yndislega daga og ökum við nú til Frankfurt. Brottför þaðan kl. 14.00 og lending í Keflavík kl. 15.35 að íslenskum tíma.

Fararstjóri getur fært dagskrárliði á milli daga eftir þörfum þegar komið er á staðinn.
 
 

 


Verð: 218.700 kr. á mann í tvíbýli.                  Mikið innifalið – athugið sérstaklega!
Aukagjald fyrir einbýli er 21.500 kr.

Eyjaperlur Króatíu
Innifalið í þátttökugjaldinu:
•    Flug með Icelandair og flugvallarskattar
•    Gisting í 2ja manna herbergi með baði
•    Morgun- og kvöldverður allan tímann á hótelum
•    Allar skoðunarferðir með rútu samkvæmt ferðalýsingu
•    Íslensk fararstjórn

Ekki innifalið:
Aðgangseyrir inn á söfn, í hallir og kirkjur. Siglingar og vínsmökkun. Hádegisverðir. Þjórfé.

Valfrjálst: Sigling til eyjunnar Cres ca. € 11. Hádegisverður hjá vínbónda í Pazin ca. € 13, Vatnaþjóðgarðurinn Plitvička jezera ca. € 15. Vínsmökkun ca. € 8.

 
 
Bændaferðir starfa samkvæmt Almennum alferðaskilmálum SAF.
 

 


Flýtileiðir




Skipta um leturstærð