30. mars Flug til Frankfurt og ekið til Weil am Rhein
Brottför frá Keflavík kl. 7.25 og lending í Frankfurt kl. 12.50 að staðartíma þaðan sem ekið verður til Weil am Rhein þar sem gist verður fyrstu nóttina.
31. mars Weil am Rhein – Sestri Levante
Nú kveðjum við Þýskaland og er stefnan nú tekin á ítölsku Rívíeruna, til Sestri Levante þar sem gist verður í 6 nætur. Ekin verður falleg leið inn í Sviss, um Luzernvatn, Gotthard göngin, að ítölsku Rívíerunni. Hótelið er vel staðsett við strandgötuna, stutt frá aðalverslunargötunni og ströndinni og á þaki hótelsins er verönd.

1. apríl Santa Margherita – Sigling til Portofino
Byrjum á því að aka til Santa Margherita, sannkallaðrar perlu Tigullio flóans sem hefur dregið að sér ferðamenn úr kvikmynda- og listageiranum, t.d. Gretu Garbo. Við tökum því rólega og njótum þess að vera við þennan fagra flóa. Þaðan verður svo farið í siglingu til Portofino, yndislegs lítils bæjar, með fallegustu höfnum Ítalíu.
2. apríl Rólegur dagur í Sestri Levante
Bærinn Sestri Levante er þekktur fyrir sérlega fallega staðsetningu, úti á mjóum tanga. Norðan megin er Baia della Favole (vík þjóðsagnanna) og sunnan er Baia del Silenzio (vík þagnarinnar). Eftir morgunverð verður farið í u.þ.b. 1 klst. skoðunarferð kl. 9.30 með heimamanni til að kynnast lífi bæjarbúa betur, en eftir það gefst frjáls tími til að kanna staðinn á eigin vegum og nota aðstöðuna við hótelið. Í dag er útimarkaður í bænum til kl. 13.

3. apríl Sigling við Cinqueterre ströndina
Í dag verður ævintýraleg sigling úti fyrir Cinqueterre ströndinni, einu fallegasta svæðinu við ítölsku Rívíeruna. Siglt verður til Porto Venere, Riomaggiore, Manarola, Corniglia, Vernassa og Monterosso. Ástarbrautin svokallaða, Via dell‘Amore, verður gengin, en hún er rúmur 1 km. Fegurðin er ólýsanleg í þessum klettabæjum með turnhúsum sínum sem eru einkennandi fyrir Lígúraströndina.
4. apríl Dagur í Rapallo - ólífuolíugerð og safn
Eftir góðan morgunverð verður ekin fögur leið með ströndinni til Rapallo, sem er einn þekktasti bærinn við Levante ströndina. Þessi töfrandi bær er með 17 þúsund íbúa og er einn aðalverslunarbærinn við ströndina. Auk verslunargatna er einnig að finna skemmtileg kaffi- og veitingahús. Förum í skoðunarferð með heimamanni og auðvitað gefst frjáls tími, t.d. til að líta inn til kaupmanna borgarinnar. Á leiðinni heim verður stoppað til að kynna sér ólívuolíusafn og ólívuolíugerð sem er í Sestri Levante.
5. apríl Frjáls dagur í Sestri Levante
Dagur í rólegheitum. Upplagt að ganga út á Portobello tangann þar sem höllin Palazzo Negrotto Cambiaso er, ein sögulegra bygginga lígúrísku strandarinnar frá 17. öld, síðar varð hún sumarhöll aðalsættanna frá Genúa, en höllin var gerð upp á 19. öld, en þá var hún notuð sem spítali og síðan sem menntasetur. Þaðan er hægt að ganga upp á Castello hæðina þaðan sem er fagurt útsýni yfir á flóann og Sestri Levante.
6. apríl Sestri Levante – Offenburg
Kveðjum Sestri Levante eftir yndislega daga. Ökum nú til Þýskalands, nánar tiltekið til Offenburg í Svartaskógi, þar sem gist verður í 2 nætur.
7. apríl Freiburg og Klukkuvegurinn
Eftir morgunverð liggur leið okkar til Freiburgar, hliðið inn í suðurhluta Svartaskógar. Freiburg eða hin frjálsa borg er einnig borg skógarins, gotneskrar listar og víns. Eftir gott stopp í Freiburg ökum við hluta af Klukkuveginum þar sem tækifæri gefst til að skoða margt skemmtilegt, en þessi leið er aðallega þekkt fyrir frægar klukkuverslanir. Hér væri hægt að fara á gauksklukkuverkstæði til að sjá hvernig klukkurnar eru búnar til.
8. apríl Heimferð
Eftir indæla og skemmtilega ferð verður ekið til Frankfurt. Brottför þaðan kl. 14 og lending í Keflavík kl. 15.35 að staðartíma.
Fararstjóri getur fært dagskrárliði á milli daga eftir þörfum þegar komið er á staðinn.
Verð: 209.800 kr. á mann í tvíbýli. Mikið innifalið – athugið sérstaklega!
Aukagjald fyrir einbýli er 33.200 kr.
Innifalið í þátttökugjaldinu: 
• Flug með Icelandair og flugvallarskattar
• Gisting í 2ja manna herbergi með baði
• Morgun- og kvöldverður allan tímann á hótelum
• Allar skoðunarferðir með rútu samkvæmt ferðalýsingu
• Íslensk fararstjórn
Ekki innifalið:
Aðgangseyrir inn í söfn, hallir og kirkjur. Siglingar og vínsmökkun. Hádegisverðir. Þjórfé.
Valfrjálst:
Sigling til Portofino ca. € 15, sigling við Cinqueterre ströndina ca. € 24, Ástarbrautin ca. € 3,50, ólífuolíusafn og ólívuolíugerð ca. € 8.
Bændaferðir starfa samkvæmt Almennum alferðaskilmálum SAF.