 |
30. mars – 8. apríl 2012 UPPSELT! Fararstjóri: Þóra Valsteinsdóttir
Vorblær ítölsku Rívíerunnar, pálmar, klettabjargir, fagrar strendur og töfrandi andrúmsloft bæjarins munu umvefja okkur í Sestri Levante, okkar aðaláfangastað í þessari glæsilegu ferð. Flogið er til Frankfurt og þaðan haldið til Weil am Rhein, þar sem gist verður fyrstu nóttina. Við ökum fallega leið til Sviss, um Luzernvatn, Gotthard göngin, að ítölsku Rívíerunni til Sestri Levante, þar sem gist verður í 6 nætur. Förum í ævintýralegar skoðunarferðir, m.a. í yndislega siglingu úti fyrir Cinqueterre-ströndinni, með viðkomu í nokkrum klettabæjum. Á meðal þeirra eru Rapallo, þekktasti ferðamannabærinn við ströndina og Santa Margherita sem hefur dregið að sér stjörnur úr listageiranum, t.d. Gretu Garbo. Förum þaðan í bátsferð til bæjarins Portofino, einnar af perlum strandarinnar. Heimsækjum ólífuolíugerð og njótum töfra Sestri Levante. Síðasti áfangastaður okkar er Offenburg í Svartaskógi þar sem gist er í 2 nætur, en þaðan verður Freiburg sótt heim, sem hefur að geyma eitt af meistaraverkum gotneska tímans. Ökum einnig um Klukkuveginn í Svartaskógi og komum við á verkstæði þar sem gauksklukkur eru búnar til. |