Sumar 15 Trítlað um Keisarafjöllin

 

23. - 30. ágúst 2012      UPPSELT!
Fararstjóri: Sigrún Valbergsdóttir

 
Tíról í Austurríki er aðaláfangastaður okkar í þessari ferð. Mikil náttúrufegurð einkennir þetta svæði og er einstakt að dvelja hér á þessum árstíma. Eftir flug til München liggur leið okkar til þorpsins Walchsee við Walchsee vatnið sem er í 668 m hæð við rætur Keisarafjallanna. Þar gistum við í 7 nætur á glæsilegu 4* hóteli í austurrískum stíl þar sem boðið er upp á góðan og heilsusamlegan mat ásamt heilsulind með sundlaug. Ferðin verður byggð upp með skemmtilegu samblandi af léttum gönguferðum á vel merktum göngustígum ásamt því að kynnast stafgöngu, vatnsleikfimi og léttum teygjuæfingum. Fararstjóri mun trítla með hópnum í skipulögðum gönguferðum frá hótelinu ásamt því að skipuleggja sjálfur gönguferðir um þetta einstaklega fallega og áhugaverða svæði. Walchsee er einstaklega snotur, lítill bær og er staðsettur við fallegt vatn þar sem hægt er að sóla sig og baða á heitum dögum.
 
  

 

 
 
Svæðið
Tírólabærinn Walchsee við samnefnt vatn er í hjarta Tíról, umkringdur austurrísku Ölpunum. Þessi fallegi bær er í einungis um 130 km fjarlægð frá München svo eftir lendingu í München tekur rétt um 2 klst að aka til Walchsee, en þar ætlum við að gista í 7 nætur. Þjóðsagan segir að hér áður fyrr hafi staðið stór skógur þar sem vatnið er nú og að ábúendurnir hafi stöðugt rifist um nýtingu skógarins. Þegar deilurnar voru komnar í óefni hafi æðri máttarvöld tekið í taumana, skógurinn hafi sokkið í jörðu niður og að reiði guðanna hafi verið svo mikil að allt svæðið fylltist af vatni, þar sem Walchsee er í dag.
Bæjarstæðið er ekki af verri endanum, á milli vatnsins Walchsee sem bærinn er nefndur eftir og hinna tignarlegu Keisarafjalla sem ramma inn svæðið. Fjöllin Kranzingerberg sem ná í 1016 m hæð, Harauerspitze 1117 m hæð, Miesberg 968 m og Ebersberg 1161 m umvefja bæinn. Í fjarska má síðan sjá „Wilder Kaiser“ eða Villta keisarann í 2344 m á hæð og „Zahmer Kaiser“ eða Tamda keisarann í 2000 m á hæð. Hér í sal Keisarafjallanna er einstök náttúrufegurð, sérstakt landslag og dýralíf með því fjölbreyttasta í Ölpunum.
 
Gönguferðirnar
Frá hótelinu okkar verður farið í skipulagðar gönguferðir með austurrískum  gönguleiðsögumanni, en hótelið býður upp á skipulagðar gönguferðir mánudaga til föstudaga. Íslenski fararstjórinn verður að sjálfsögðu með í för og hægt er að haga göngunum eftir getu hópsins, en jafnframt er hægt að skipta hópnum. Á svæðinu er mikið úrval af vel merktum göngustígum og götum og eru einnig í boði þemaferðir í nágrenni hótelsins. Hver og einn getur því valið sér leið fyrir hvern dag eða hópurinn haldið saman, allt eftir því sem hentar hverjum og einum. Suma daga er mögulegt að við þurfum að taka leigubíl/strætó á göngustað. Endanlegt yfirlit yfir þær gönguferðir sem verða í boði á hótelinu mun liggja fyrir áður en ferðin hefst, en yfirleitt er best að ákveða sig þegar komið er á staðinn. Svo er upplagt að prófa stafgöngu á meðan á dvölinni stendur.
 
Hótelið Schick
Hótelið ber nafn sitt vel en orðið Schick þýðir flott.  Hótelið er glæsilegt og notalegt fjölskyldurekið fjögurra stjörnu heilsuhótel í austurrískum stíl. Þar er boðið upp á íþróttadagskrá, gönguferðir, kynningu á Nordic-Walking, náttúruskoðunarferðir, vatnsleikfimi, bakleikfimi og teygjuæfingar. Jafnframt er hjólaleiga á hótelinu, ef einhver vill skella sér í hressandi hjólatúr. Eftir góða gönguferð og útivist er síðan kærkomið að slappa af í innisundlauginni eða prófa eitt af hinum mismunandi gufuböðum sem boðið er upp á en aðgangur að heilsulindinni er innifalinn. Morgunverðarhlaðborðið er fjölbreytt, sultur úr ávöxtum ræktuðum á svæðinu, brauðmeti frá bakaríi bæjarins ásamt eggjaréttum, vöfflum og fleiri kræsingum. Kvöldverðurinn er síðan ekki af verri endanum, forréttur, súpa, aðalréttur og eftirréttur ásamt salathlaðborði. Máltíðin endar svo á innlendu og alþjóðlegu ostahlaðborði. Hótelið býður síðan upp á tírólska sérrétti sem eru einstaklega góðir og er tilvalið að nota tækifærið og smakka á þeim. VITA Beauty Plus og Spa bíður uppá ýmsar heilsu- og snyrtimeðferðir. Þar má nefna meðferðir eins og steina- og hunangsnudd, þara-, kalk- og saltnuddsmeðferðir sem eru mjög vinsælar og sérstaka jurtaheilsumerðferð sem er sú vinsælasta. Heilsulindin hefur starfað í 30 ár, en greiða þarf aukalega fyrir meðferðir og nudd.
 
Flugið
Flogið verður með Icelandair til München þann 23. ágúst. Brottför frá Keflavík kl. 7.20 en mæting í Leifsstöð í síðasta lagi 2 klst fyrir brottför. Lending í München kl. 13.05 að staðartíma (+2 klst), en flugið tekur um 4 klst. Frá flugvellinum í München eru um 130 km til Walchsee svo gera má ráð fyrir að rútuferðin taki því rúmlega 2 klst. Þegar við förum aftur heim þá leggjum við af stað út á flugvöll eftir morgunverð og síðan flogið heim kl. 14.05 frá München. Lending á Íslandi kl. 16.00. 
 
 


 
 
 
Verð: 166.600 kr. á mann í tvíbýli.                   Mikið innifalið – athugið sérstaklega!
Aukagjald fyrir einbýli er 23.800 kr.
 
 
Innifalið:
• Flug með Icelandair og flugvallarskattar
• Ferðir á milli flugvallarins í München og hótelsins við Walchsee
• Gisting í tveggja manna herbergi með baði á fjögurra stjörnu hóteli í Walchsee
• Morgunverðarhlaðborð
• Vel útilátinn kvöldverður
• Aðgangur að öllu því sem heilsulindin hefur upp á að bjóða
• Sloppur á herbergjum
• Íþróttadagskrá
• Leiðsögn staðarleiðsögumanns í gönguferðum
• Íslensk fararstjórn
 
Ekki innifalið:
Aðgangseyrir inn á söfn, í hallir og kirkjur. Kláfar eða stólalyftur upp á fjöll, leigubílaakstur, hádegisverður og þjórfé.
 
 

 Bændaferðir starfa samkvæmt Almennum alferðaskilmálum SAF.

 
 
 


Flýtileiðir




Skipta um leturstærð