Sumar 9 Blómálfar & vatnadísir

 

2. – 9. ágúst 2012 
Fararstjóri: Þórhallur Vilhjálmsson

 
Bodensee telst með fallegustu vötnum Evrópu og á landamæri sín að Þýskalandi, Austurríki og Sviss. Þessi töfrandi ferð sem hefst á flugi til München, þaðan sem haldið verður til Füssen, en í námunda við bæinn eru hallirnar Neuschwanstein og Hohenschwangau, og gistum við þar í eina nótt. Síðan verður ekið til Friedrichshafen við Bodensee þar sem gist verður í 4 nætur á hóteli alveg við vatnið. Farið verður í skemmtilegar skoðunarferðir, t.d siglt með ferju frá Meersburg yfir til Konstanz, stærstu borgar við vatnið, þaðan ekið að blómaeyjunni Mainau, en heiðurinn að þessum stórglæsilega lystigarði á Bernadotte greifi, meðlimur sænsku konungsfjölskyldunnar. Ekið inn í Sviss til Urnäsch við Säntis fjall, þar sem hægt er að komast upp í 2502 m hæð með kláfi þar sem stórkostlegt útsýni er yfir til 6 landa, en þetta telst með fallegustu náttúrusvæðum Evrópu. Komið til Lindau sem er mjög heillandi bær og sá stærsti við vatnið. Ferðin endar í þriðju elstu borg Þýskalands, Augsburg þar sem gist verður í 2 nætur, m.a. skoðum við fyrstu verkamannabústaði í heimi, sem Fugger kaupmannaættin reisti á 15. öld og enn er búið í, en leigan hefur ekki hækkað síðan þá!

 

 

 
2. ágúst              Flug til München – Füssen
Brottför frá Keflavík kl.7.20. Mæting í Leifsstöð 2 klst. fyrir brottför. Lending í München kl. 13.05 að staðartíma (+ 2 klst. tímamismunur). Ekið verður til Füssen í Þýskalandi, þar sem gist verður fyrstu nóttina. Í námunda við bæinn eru hallirnar Neuschwanstein og Hohenschwangau, sem eru eitt vinsælasta aðdráttarafl ferðamanna þar í landi. Margt er vert að skoða í Füssen fyrir utan óviðjafnanlegt landslag Alpanna. Borgin á langa og merka sögu, sem nær allt til daga Rómverja. Við förum í bæjarferð og skoðum m.a. einn af frægustu dauðadönsum í heimi í Magnúsarkirkjunni.
 
3. ágúst               Neuschwanstein höllin - Bodensee
Byrjum daginn á því að skoða Neuschwanstein-höllina sem Ludwig II Bæjarakonungur lét byggja á árunum 1869 – 1886 og er með glæsilegustu höllum Evrópu. Síðan verður ekið til Friedrichshafen við hið geislandi fagra Bodensee vatn, svæði ávaxta- og vínræktar, en landamæri þriggja ríkja, Þýskalands, Sviss og Austurríkis liggja að því. Við gistum í 4 nætur í Friedrichshafen, á hóteli við vatnið.
 
4. ágúst              Blómaeyjan Mainau og Konstanz
Nú verður byrjað á því að aka með vatninu til Meersburg þar sem við tökum ferju yfir til Konstanz og þaðan ekið til blómaeyjunnar Mainau sem er 45 hektara eyja í Bodensee. Fyrir 2000 árum var eyjan virki Rómverja en á 9. öld tilheyrði hún Reichenau klaustrinu.
Meðlimur sænsku konungsfjölskyldunnar, Bernadotte greifi, sem er búsettur á eyjunni, á allan heiðurinn af mjög glæsilegum lystigarði sem þarna er. Eftir heimsókn í Mainau verður stoppað í Konstanz, stærstu borginni við vatnið og einum aðalferðamannastaðnum við vatnið. Tökum síðar ferjuna tilbaka til Meersburg.
 
5. ágúst              Kláfur upp á Säntis fjall og Lindau
Í dag verður ekið inn í Sviss til Urnäsch við Säntis fjall, þar sem hægt er að komast upp í 2502 m hæð með kláfi þar sem stórkostlegt útsýni er yfir til 6 landa og telst til fallegustu náttúrusvæða Evrópu. Eftir góðan tíma þar verður ekið til Lindau sem er einn mest heillandi bærinn við Bodensee og er jafnframt einn þeirra stærstu við vatnið. Gamli hluti borgarinnar er úti í eyju á vatninu, sem tengd er landi með brú og járnbrautarvarnargarði. Upprunalega var þarna lítið fiskiþorp sem fyrst var getið um árið 882. Núna er þetta mjög líflegur og skemmtilegur bær með mörgum fallegum byggingum í gotneskum, endurreisnar- og barokkstíl. Gengið verður með fararstjóranum inn í miðbæ, en síðan gefst frjáls tími til að rölta um og skoða mannlífið.
 
6. ágúst              Frjáls dagur við Bodensee
Slökun og rólegheit í dag. Njótum þess að vera á þessum fagra stað við Bodensee og nýtum okkur jafnvel aðstöðuna við hótelið. Nú er hægt að fá sér göngu inn í miðbæ Friedrichshafen og kanna líf bæjarbúa, einnig væri hægt að fara saman í siglingu á vatninu, eða líta inn á Zeppelin safnið sem er mjög áhugavert að skoða og er í um 500 m frá hótelinu.
 
7. ágúst              Kveðjum Bodensee og ökum til Augsburg
Nú er komið að því að kveðja Bodensee eftir yndislega daga. Ökum til Augsburg, þriðju elstu borgar Þýskalands og einnar af stóru háskólaborgunum. Gist verður þar í 2 nætur á hóteli inni í miðborg. 
 
8. ágúst              Höfuðborg Rómverja
Augsburg, er sögulega merk borg sem eitt sinn var ein höfuðborga Rómverja, en hún ber einmitt nafn frá tímum þeirra eða eftir „Augusta Vindelicorum“. Þessi héraðshöfuðstaður var stofnaður af keisaranum Augustusi sem herstöð „Castra“. Þar er margt mjög áhugavert að skoða og skoðum við m.a. fyrstu verkamannabústaði í heimi sem voru reistir af Fugger kaupmannaættinni á 15. öld og er enn búið í þeim. Það merkilega við þá er að leigan hefur ekki hækkað síðan á 15. öld!
 
9. ágúst              Heimferð
Eftir indæla og skemmtilega ferð verður ekið til München. Brottför þaðan kl. 14.05 og lending í Keflavík kl. 16.00 að staðartíma.
 
Fararstjóri getur fært milli daga eftir því sem þörf þykir þegar komið er á staðinn.
 
 
 


 
 
 
Verð: 179.700 kr. á mann í tvíbýli.              Mikið innifalið – athugið sérstaklega!
Aukagjald fyrir einbýli er 30.400 kr. 
 
 
Innifalið í þátttökugjaldinu:
• Flug með Icelandair og flugvallarskattar
• Gisting í 2ja manna herbergi með baði
• Morgun- og kvöldverður allan tímann á hótelum
• Allar skoðunarferðir með rútu samkvæmt ferðalýsingu
• Ferjan yfir til Konstanz og til baka
• Íslensk fararstjórn
 
Ekki innifalið:
Aðgangseyrir inn á söfn, í hallir og kirkjur. Kláfar eða stólalyftur upp á fjöll. Siglingar og vínsmökkun. Hádegisverðir. Þjórfé.
 
Valfrjálst:
Blómaeyjan Mainau ca. € 17, kláfur upp á Säntis fjall ca. € 21 og
Zeppelinsafnið ca. € 3.
 

 

 

Bændaferðir starfa samkvæmt Almennum alferðaskilmálum SAF.
 

 


Flýtileiðir




Skipta um leturstærð