2. ágúst Flug til Minneapolis
Brottför frá Keflavík kl. 16.45. Mæting í Leifsstöð í síðasta lagi 2 klst. fyrir brottför. Lending í Minneapolis kl. 18.05 að staðartíma (-5 klst). Flugið tekur um 6 ½ klst. Ekið beint á hótelið í Minneapolis og gist þar í eina nótt.
3. ágúst Grand Forks í Norður-Dakóta
Ekið frá Minneapolis í norðurátt til borgarinnar Grand Forks í Norður-Dakóta. Á leiðinni verða skoðuð tvö skemmtileg en ólík söfn, Rúnasteinasafnið í borginni Alexandria og Minjasafnið í Moorhead. Gist verður í 2 nætur í Grand Forks. Hótelið er á góðum stað og stutt að fara á veitingastaði.
4. ágúst Íslendingahátíðin í Mountain
Til bæjarins Mountain er um klukkustundar akstur og þar hefst Íslendingahátíð með skrúðgöngu klukkan tíu. Hátíðardagskráin hefst klukkan tvö með ræðuhöldum og söng. Síðdegis bjóða heimamenn upp á ferð um sögustaði í nánasta umhverfi Mountain. Fram að þeim tíma er upplagt að ganga um og njóta veðurblíðunnar, koma við í ættfræðistofnun staðarins og grennslast fyrir um ættingja, bragða á vínartertu, kleinu eða rúllupylsusneið í sölutjaldi, eða líta inn í bjórgarðinn. Dvölinni í Mountain lýkur með kvöldverði á flötinni fyrir framan Elliheimilið Borg. Síðan verður ekið aftur til Grand Forks.
5. ágúst Íslenski fylkisgarðurinn og Winnipeg í Kanada
Eftir morgunverð verður lagt af stað í átt til landamæra Bandaríkjanna og Kanada. Á leiðinni verður komið við í byggðasafni í Icelandic State Park eða Íslenska fylkisgarðinum í Norður-Dakóta. Þar er glæsileg upplýsingamiðstöð sem veitir svör við mörgum spurningum sem vakna á þessum slóðum. Einnig munum við skoða íslenska kirkju, skólahús, félagsheimili, hús Gunnlaugsson fjölskyldunnar, dæmigert bjálkahús eins og landnemarnir byggðu sér á fyrstu árum landnámsins og margt fleira. Frá landamærunum er um það bil klukkustundar akstur til Winnipeg. Gist á góðu hóteli í hjarta borgarinnar. Þinghúsið, ráðhús borgarinnar og fleiri merkir staðir eru í göngufæri frá hótelinu. 
6. ágúst Íslendingadagur í Manitoba
Lagt af stað snemma morguns til Gimli til að taka þátt í lokadegi hátíðar Íslendingadagsins, þriggja daga hátíðar sem haldin er árlega á Gimli. Það er margt um manninn á Gimli á Íslendingadeginum, fólk kemur víða að og er margskonar skemmtun í boði. Hátíðarskrúðgangan hefst klukkan tíu. Eftir hana er upplagt að ganga um bæinn, skoða íslenska minjasafnið, handverks- og listasýningar, rölta um höfnina eða tylla sér á ströndina. Sjálf hátíðardagskráin hefst klukkan tvö. Síðdegis verður haldið aftur til Winnipeg.
7. ágúst Frjáls dagur í Winnipeg
Frjáls dagur. Síðdegis geta þeir sem vilja, farið með fararstjórum á safnið The Manitoba Museum, margverðlaunað safn sem fjallar um frumbyggja Kanada, innflytjendur, náttúru og dýralíf. Eftir ferðina á safnið verður gengið um svæðið þar sem Íslendingar bjuggu fyrst í Winnipeg.
8. ágúst Skoðunarferð um Nýja Ísland
Lagt af stað snemma og ferðast fram undir kvöld um Nýja Ísland. Við heimsækjum m.a. þjóðgarðinn á Heklueyju (áður Mikley), Árborg, Riverton, Gimli, Víðines og fleiri staði. Kynnumst landbúnaði í héraðinu og fiskveiðum í Manitobavatni. Einnig gefst gott tækifæri til að hitta heimamenn og leita fróðleiks hjá þeim.
9. ágúst Skoðunarferð um Winnipeg
Í Winnipeg eru ótal staðir sem tengjast fyrstu byggð Íslendinga í borginni og ekki síður lífi þeirra nú í dag. Í skoðunarferð dagsins verður m.a. komið við í íslenskudeild bókasafns Manitobaháskóla, sem er stærsta safn sinnar tegundar í Norður-Ameríku. Einnig verður komið við á skrifstofum blaðsins Lögbergs-Heimskringlu, Betelstöðum, þar sem eldri borgarar af íslenskum ættum búa, Norræna húsinu, fyrstu lútersku kirkjunni og víðar.
10. ágúst Minnesota – Duluth
Ekið í austur frá Winnipeg til Ontario-fylkis og gert stutt stans í bænum Kenora sem stendur við vatnið Lake of the Woods. Síðan er haldið í suðurátt til borgarinnar Duluth við Lake Superior, en þar bjuggu Íslendingar forðum. Frumbyggjar og skinnkaupmenn eiga sér einnig mikla og merkilega sögu á þessum fallegu skóga- og vatnasvæðum. Gist í tvær nætur á hóteli í Duluth. Þar eru fallegar gönguleiðir meðfram vatninu og góðir veitingastaðir.
11. ágúst Dagur í Duluth
Skoðunarferð um borgina og hæðirnar fyrir ofan hana. Þaðan er glæsilegt útsýni yfir hafnarsvæðið sem gegnir lykilhlutverki í verslun og viðskiptum Bandaríkjamanna.
12. ágúst Duluth – Minneapolis
Ekið frá Duluth til Minneapolis. Um hádegisbil komum við til Stillwater, fallegs 17 þúsund manna bæjar í skógi vöxnum hæðum við ána St. Croix. Þar minnir andrúmsloftið svolítið á Viktoríutímabilið og gaman að líta inn hjá fornbókasölum og í antíkbúðir á rölti um miðbæinn, þar sem margir merkisatburðir í sögu Bandaríkjanna áttu sér stað. Síðan verður ekið til Minneapolis þar sem gist verður í tvær nætur.
13. ágúst Frjáls dagur í Minneapolis
Þennan dag gæti verið upplagt að skoða sig um í miðborg Minneapolis og heimsækja e.t.v. stærstu verslunarmiðstöð Bandaríkjanna „Mall of America“.
14. ágúst Heimferð
Um hádegi verður lagt af stað í skoðunarferð um tvíburaborgirnar (the Twin Cities), Minneapolis og St. Paul, og lýkur henni á flugvellinum þaðan sem lagt verður af stað heim kl. 19.30.
15. ágúst Lending í Keflavík
Lending að morgni miðvikudags kl. 6.30 á Keflavíkurflugvelli, en flugið heim tekur um 6 klst.
Fararstjóri getur fært dagskrárliði á milli daga eftir þörfum þegar komið er á staðinn.
Verð: 284.700 kr. á mann í tvíbýli.
Aukagjald fyrir einbýli er 118.800 kr.

Innifalið í þátttökugjaldinu:
• Flug með Icelandair og flugvallarskattar
• Gisting í 2ja manna herbergi með baði
• Morgunverður í Grand Forks og Winnipeg
• Allar skoðunarferðir með rútu samkvæmt ferðalýsingu
• Íslensk fararstjórn
Ekki innifalið:
Aðgangseyrir inn á söfn og í siglingar. Fimm morgunverðir. Hádegis - og kvöldverðir. Þjórfé.
Athugið að máltíðir eru almennt séð ekki innifaldar í ferðinni, nema morgunverður 7 daga og er hann vel úti látinn og af mörgu að taka. Aðra daga er hægt að snæða morgunverð á veitingastöðum sem eru tengdir hótelunum og kostar hann u.þ.b. $ 10 á mann. Gott er að hafa með sér nasl í bílnum, ávexti og annað slíkt og í bílnum er til sölu vatn gegn vægu gjaldi svo enginn þarf að vera þyrstur. Á ferðum milli borga er oft komið við í matvöruverslun að morgni dags og kaupir þá hver fyrir sig eitthvað gott fyrir lautarferð í hádeginu. Verði á mat og öðru á Íslendingahátíðunum er mjög stillt í hóf. Sum kvöld munu fararstjórar panta sameiginlega máltíð eða taka frá borð á veitingastöðum þannig að hópurinn snæðir saman. Það er mjög mismunandi hvað kvöldverður kostar, allt miðað við hvort farþegar vilja fá sér einfalda máltíð eða fara flott út að borða. Sem viðmiðun má gera ráð fyrir að kvöldverður kosti ekki undir 15 dollurum á mann (nema skyndibitamáltíð er ódýrari).