Sumar 6 Fegurð landsins fjalla

 

26. júlí – 6. ágúst 2012           2 SÆTI LAUS!
Fararstjóri: Hólmfríður Bjarnadóttir

 
Tign svissnesku og austurrísku Alpanna hrífa okkur í glæsilegri ferð um stórbrotið landslag, þar sem farið verður m.a. með Bernina-Express lestinni yfir svissnesku Alpana og endað við Comovatn. Flogið til München og þaðan ekið til Kitzbühel í Tíról, eins þekktasta vetraríþróttabæjar Austurríkis. Við berjum Krimmlerfossana í Salzachdalnum milli háu Tauernfjallanna og Kitzbühleralpanna augum og förum til hins fagra Mayerhofen í Zillerdal. Komum einnig til Fulpmes í Stubaidalnum, sem liggur í 937 m hæð. Þaðan förum við í gufulest frá Jenbach að Achensee og til Gramai-Alm, þjóðgarðs Karwendel-fjallanna sem er í 1263 m hæð. Förum líka í ævintýralega ferð upp á Stubaier-jökul með kláfi, en þetta er stærsta jöklaskíðasvæði landsins í 3210 m hæð. Áfram haldið til Ischgl í 1377 m hæð í Paznaundal við Silvretta skíðasvæðið. Farið um Silvretta-Hochalpenstraße, til Galtür að Silvretta stöðuvatninu, til St. Anton við Arlberg í Lechtaler-Ölpunum og til Lech og Zürs, sem eru heimsþekktir skíðabæir. Ökum svo til St. Moritz í Sviss, þar sem Bernina Express lestin bíður okkar og förum stórfenglega ferð um svissnesku Alpana til Tirano á Ítalíu. Þaðan haldið að Comovatni, til Cadenabbia, lítils þorps við vatnið. Siglum yfir til Bellagio, yndislegs bæjar úti á tanga vatnsins og njótum þess að vera við hið töfrandi Comovatn.
 

 

 

  
26. júlí               Flug til München og ekið til Kitzbühel í Tíról
Brottför frá Keflavík kl. 7.20. Mæting í Leifsstöð um 2 klst. fyrir brottför. Lending í München kl.13.05 að staðartíma (+ 2 klst. tímamismunur). Þaðan verður ekið til Kitzbühel í Tíról, sem er í dag einn af þekktari vetraríþróttabæjum Austurríkis. Á 16. og 17. öld blómstraði bærinn vegna kopar- og silfurvinnslu. Gamli bærinn hefur að geyma gömul bindingsverkshús, Katharinen-kirkjuna sem er í gotneskum stíl og mikið úrval af fínum verslunum. Þar verður gist í 2 nætur.
 
27. júlí               Krimmlerfossar – Mayrhofen – Stanglwirt
Við förum í ævintýralega ferð að Krimmlerfossum í Salzachdalnum milli háu Tauernfjallanna og Kitzbühleralpanna og sjáum glæsilegasta foss Austur-Alpanna. Þaðan verður ekið til Mayrhofen í Zillerdal, en dalurinn sem er við jöklasvæði Zillerdal-Alpanna, er rómaður fyrir fegurð. Hann er oftast kallaður „dalur söngsins“ og er þar bæði sungið og jóðlað. Á leiðinni til baka gætum við stoppað við rætur fjallsins Wilder Kaiser (Villti Keisarinn) á Stanglwirt hótelinu og fengið okkur kaffisopa og tertusneið.
 
28. júlí               Með gufulest að Achensee – Gramai Alm þjóðgarðurinn
Nú heldur ferðin áfram yfir til Fulpmes í Stubai-dalnum, eins þekktasta heilsu- og skíðabæjar í dalnum sem liggur í 937 m hæð umvafinn Stubaier-Ölpunum. Á leiðinni þangað verður boðið upp á ævintýraferð með gufulest frá Jenbach upp að Achensee vatninu sem er eitt fallegasta og jafnframt stærsta vatn Tíróls. Þaðan ekið til Gramai–Alm, þjóðgarðs Karwendel-fjallanna sem er í 1263 m hæð, en þar er tilvalið að fá sér léttan hádegisverð í osta- og pylsuseli frá 16. öld. Gistum í Fulpmes í 2 nætur.
 
29. júlí               Stubaier jöklaferð
Farið verður í ævintýraleg ferð með kláfi upp á voldugan og glæsilegan Stubaier-jökulinn, eitt stærsta jökulskíðasvæði landsins, á um 700 hektara svæði, sem liggur frá 1750 m upp í 3210 m hæð. Þaðan er stórglæsilegt útsýni yfir Alpana og stórbrotin náttúrufegurð. Þar til árið 2002 var hægt að skíða yfir sumartímann, en í dag er einungis hægt að vera á skíðum frá október fram í júní.
 
30. júlí               Ischgl
Kveðjum Fulpmes og er stefnan nú tekin á Ischgl sem er í 1377 m hæð í Paznaundal sem er einn af heimsþekktum skíðabæjum landsins. Bærinn er
aðalferðamannabær dalsins með óteljandi kláfum og lyftum upp á Silvretta skíðasvæðið. Ekin verður falleg leið um Sellraindalinn, Kühtai og Ötzdalinn. Gistum í Ischgl í 4 nætur.
 
31. júlí               Rólegheit í Ischgl
Nú verður rólegur dagur hjá okkur til að kanna umhverfið, nota aðstöðuna við hótelið, fara í gönguferð í þessum líflega bæ og njóta náttúrufegurðarinnar.
 
1. ágúst              Ischgl og Silvretta Hochalpenvegurinn
Við ökum um Silvretta-Hochalpen-veginn sem liggur frá Tiroler Paznaun, yfir Silvretta fjöllin, Bielerhöhe og Vermunt til Voralberger Monafon. Hluti leiðarinnar, milli Partenen og Galtür,  liggur í 1538 m hæð og er það einn vinsælasti og fallegasti fjallavegur Austurríkis. Á leiðinni munum við stoppa í fallegum fjallabæjum.
 
2. ágúst              Skíðabæirnir St. Anton, Lech og Zürs
Þetta verður ljúfur dagur hjá okkur í dag. Ekin verður falleg leið um Lechtaler Alpana til St. Anton við Arlberg, frægs skíðabæjar, þaðan svo til Lech og Zürs sumardvalarstaða göngumanna og þekktra skíðabæja, en þar er ein gatan upphituð fyrir glæsivagna gestanna yfir vetrartímann.
 
3. ágúst              Bernina Express – Cadenabbia við Comovatn
Nú kveðjum við Ischgl eftir yndislega daga og er stefnan tekin á Ítalíu, til Cadenabbia við Comovatn. Við stoppum í St. Moritz í Sviss þar sem Bernina-Express hraðlestin bíður okkar. Bernina Express liggur á milli Chur, elstu borgar í Sviss, og fallega bæjarins Tirano á Ítalíu, þar sem við endum, en á allri leiðinni eru um 55 göng, 196 brýr og um 70% halli. Það er ekki annað hægt en að dást að fegurðinni sem blasir við, fallegir bæir, jöklar, pálmatré og minnisvarðar. Þetta er 2 tíma ferð, en þegar komið er til Tirano bíður rútan okkar og þaðan verður ekið til Cadenabbia við Comovatn þar sem gist verður í 3 nætur alveg við vatnið. 
 
4. ágúst               Cadenabbia og sigling yfir til Bellagio
Tökum daginn rólega, eftir góðan morgunverð væri upplagt að fara í siglingu yfir til bæjarins Bellagio. Við vatnið er sama hvert litið er, fallegt landslag umlykur okkur, líkt og mynd á póstkorti.
 
5. ágúst              Rólegur dagur í Cadenabbia við Comovatn
Í dag er tilvalið að kanna yndislegt umhverfið og nota aðstöðuna við hótelið. Það skyldi engan furða að listamenn, skáld og stjórnmálamenn hafi sótt hingað. Giuseppe Verdi skrifaði hluta af óperunni „La Traviata“ hér í Cadenabbia, franska skáldið Stendhal skrifaði eina af bókum sínum hér, Konrad Adenauer fyrsti kanslari þýska sambandslýðveldisins sótti hingað í nær öllum fríum, svo einhverjir séu nefndir. Hægt er að taka bát frá höfninni, sem er rétt hjá hótelinu, og skreppa til Como og til fleiri staða við vatnið.
 
6. ágúst              Heimferð frá Mílanó
Eftir glæsilega ferð verður ekið til Mílanó. Brottför þaðan kl. 23.40 og lending í Keflavík kl. 01.55 eftir miðnætti að staðartíma.
 
Fararstjóri getur fært dagskrárliði á milli daga eftir þörfum þegar komið er á staðinn.
 


 
 
Verð: 259.400 kr. á mann í tvíbýli.                  Mikið innifalið – athugið sérstaklega!
Aukagjald fyrir einbýli er 24.400 kr. 
 
 
Innifalið í þátttökugjaldinu:
• Flug með Icelandair og flugvallarskattar
• Allar skoðunarferðir með rútu samkvæmt ferðalýsingu
• Gisting í 2ja manna herbergi með baði
• Morgun- og kvöldverður allan tímann á hótelum
• Jöklalestarferð með Bernina Express
• Gufulestarferð frá Jenbach til Achensee
• Íslensk fararstjórn
 
Ekki innifalið:
Aðgangseyrir inn á söfn, í hallir og kirkjur. Kláfar eða stólalyftur upp á fjöll. Siglingar og vínsmökkun. Hádegisverðir. Þjórfé.
 
Valfrjálst:
Kláfur Stubaier jökull ca. € 22,80 og sigling til Bellagio ca. € 7,50.
 
 

 Bændaferðir starfa samkvæmt Almennum alferðaskilmálum SAF.

 
 

 


Flýtileiðir




Skipta um leturstærð