Sumar 4 Grikklandsævintýri

 

11. – 25. júní 2012
Fararstjóri: Þóra Valsteinsdóttir

 
Í Grikklandi mætast saga og náttúra á einstakan hátt. Hvar sem ferðalangurinn tyllir niður fæti, opnast fyrir honum mörg þúsund ára saga. Frá örófi alda ófu Grikkir þann örlagaþráð sem varð kveikjan að þeirri heimsmenningu sem við búum við enn þann dag í dag. Rammi þeirrar sögu er landið sjálft, sjórinn sem umlykur það, fólkið og náttúran sem skartar sínu fegursta á fyrstu mánuðum sumarsins. Í ferðinni er ætlunin að rekja þessa miklu sögu á meðan ferðast er um skógi vaxin fjöll sem steypast niður í túrkísbláan sjó, græna dali í fullum skrúða, stórfengleg gljúfur og falleg sveitaþorp. Sögufrægir staðir verða sóttir heim, þar á meðal Meteóra, Delfí, Aþena og Akrópólis, Mýkena, Epídárus og Ólympía, en einnig verður farið á staði sem þekktari eru fyrir náttúrufegurð, eins og Pelíonskagann og út í eyjuna Lefkada.
 

 

 

 

 
11. júní               Flug til Mílanó
Brottför frá Keflavík kl. 16.50. Mæting í Leifsstöð 2 klst fyrir brottför. Lending í Mílanó kl. 22.40. að staðartíma (+ 2 klst) og farið beint á hótel nálægt flugvellinum.
 
12. júní               Ancona – siglt til Igoumenitsa
Eftir morgunverð verður ekið til Ancona, með viðkomu í bæjum sem á leið okkar verða, eftir því sem tími leyfir. Frá Ancona verður siglt með ferju til Igoumenitsa í Grikklandi. Kvöldverður og gisting á skipinu.
 
13. júní               Igoumenitsa – Meteora
Snemma að morgni er keyrt upp í Pindos fjöllin til þorpsins Metsovo, þar sem upplagt er að smakka ekta sveitamat á meðan horft er á fagurt útsýni til fjallanna í kring. Eftir hádegi verður haldið áfram til Meteora. Þar er sérstakt náttúrufyrirbæri sem samanstendur af himinháum sandsteinsdröngum. Á miðöldum byggðu munkar og nunnur klaustur uppi á þessum dröngum og eru sum þeirra opin enn þann daginn í dag. Gisting í litlu þorpi í nágrenni Meteora.
 
14. júní               Meteora – Pelion
Eftir að hafa skoðað sandsteinsdrangana og eitt af klaustrunum sem þar standa, verður keyrt til Pelíonskagans. Pelíon er hálendur skagi í Þessalíusýslunni þar sem lítil hefðbundin þorp hanga í fjallshlíðunum. Dvalið verður 2 nætur í þorpinu Portaria, en þaðan er hægt að fara í göngur og skoðunarferðir um skagann. 
 
15. júní               Pelíon
Í dag verður farið í gamalli eimreið á milli þorpanna í Pelíon. Lestin fer frá þorpinu Ano Lehonia og ekur um yndisfagra náttúru á leið sinni til bæjarins Milies. Eftirmiðdagur frjáls. Kvöldmatur og gisting í Portaria.
 
16. júní               Pelíon – Delfí
Eftir morgunverð verður keyrt til Delfí, þar sem helgistaður Appolló var til forna. Appolló var guð ljóss, tónlistar og spádóma og í Delfí var véfréttin hans, þar sem spáð var fyrir gestum og gangandi. Kvöldmatur og gisting í þorpinu Arachova sem liggur hátt uppi í Parnassos-fjallinu.
 
17. júní               Delfí – Aþena
Eftir að hafa skoðað hof Appollós, leikhúsið og leikvanginn í Delfí, verður haldið til Aþenu, höfuðborgar Grikklands, þar sem gist verður í 2 nætur. Um kvöldið verður farið á gríska skemmtun þar sem boðið er upp á grískan mat, söngva og dansa. Gestirnir fá að taka sporið og dansa Zorbadansinn.
 
18. júní               Aþena
Aþena státar af mörgum fornminjum. Farið verður í skoðunarferð um borgina þar sem við sjáum háskólabyggingarnar, gömlu konungshöllina sem hýsir þingið í dag og ólympíuleikvanginn sem byggður var fyrir fyrstu ólympíuleika okkar tíma, árið 1896. Þar á eftir heimsækjum við nýja Akrópólissafnið sem geymir helstu dýrgripi Aþenu og að lokum göngum við upp á Akrópólishæðina til þess að skoða hið fræga Parþenonhof. Eftirmiðdagur frjáls.
 
19. júní               Aþena – Tolo
Snemma dags verður haldið til Tolo sem er lítill strandbær við austurströnd Pelópsskagans. Þar er tilvalið að njóta sólar og hita við ströndina og sjóinn. Gist verður í Tolo í 2 nætur.
 
20. júní               Tolo – Mýkena, Epídárus og Nafplíon
Eftir morgunmat verður farið í skoðunarferð um Argólisskagann. Við skoðum háborgina í Mýkenu frá 1200 f. Kr og leikhúsið í Epidárus sem er stærsta leikhús frá klassískum tíma í Grikklandi. Við endum ferðina í bænum Nafplíon, fallegum bæ við Argólisflóann. Eftirmiðdagur frjáls.
 
21. júní               Tolo – Olympía
Keyrt verður frá Tolo til bæjarins Diakofto, þar sem við ferðumst með lítilli tannalest upp Vouraikos gljúfrið til þorpsins Sachlorou. Þar stöldrum við við til að fá okkur hádegisverð, en höldum síðan ferðinni áfram til Olympíu. Kvöldverður og gisting í Olympíu.
 
22. júní               Olympía – Lefkada
Í 12 aldir, fjórða hvert ár, voru ólympíuleikar haldnir í Olympíu á Pelópsskaganum. Þeir voru haldnir til heiðurs Seifi, æðsta guði Olympushæða. Helgistaðurinn, þar sem við skoðum safnið og leikvanginn, er í lítilli vin innan um blómstrandi runna og ólífutré. Eftir skoðunarferðina í Ólympíu verður haldið til eyjunnar Lefkada, þar sem dvalið verður í 2 nætur.
 
23. júní               Lefkada - Sigling
Snemma dags verður stigið um borð í bát sem fer með farþega í siglingu um nokkrar eyjar í Adríahafinu. Fyrst er stoppað á einni af fegurstu ströndum í heiminum, Porto Katsiki á Lefkada. Þar er fólki gefinn kostur á að ganga í land á drifhvítri strönd og synda í túrkísbláum sjó. Þar á eftir er siglt til eyjunnar Íþaka, sem Hómer gerði fræga í kvæði sínu um Ódysseif. Síðan er siglt til eyjunnar Kefalonia þar sem staldrað er við í hinu fallega þorpi Fiskardo. Að lokum er siglt til eyjunnar Skorpios, sem er enn í eigu Onassis fjölskyldunnar. Á leiðinni er komið við í bláa hellinum á Meganissi. Komið til baka síðdegis.
 
24. júní               Lefkada – Igoumenitsa – Ítalía
Eftir hádegi verður keyrt til Igoumenitsa, þaðan sem ferjan fer um kvöldið yfir til Ancona á Ítalíu. Kvöldverður og gisting á skipinu.
 
25. júní               Ancona – Mílanó
Ekið verður frá Ancona til Mílanó með viðkomu í bænum Sirmione við Gardavatn. Brottför frá Mílanó kl. 23.40. og lending í Keflavík kl. 01.55 eftir miðnætti að staðartíma.
 
Fararstjóri getur fært dagskrárliði á milli daga eftir þörfum þegar komið er á staðinn.
 
 


 
 
Verð: 389.300  kr. á mann í tvíbýli.                       Mikið innifalið – athugið sérstaklega!
Aukagjald fyrir einbýli er  95.700 kr. 
 
 
Innifalið í þátttökugjaldinu:
• Flug  með Icelandair og flugvallaskattar
• Gisting í 2ja manna herbergi með baði
• Morgun- og kvöldverður allan tímann á hótelum/ferjum
• Allar skoðunarferðir með rútu samkvæmt ferðalýsingu
• Ferjusiglingar með gistingu samkvæmt ferðalýsingu
• Heimsókn í klaustur í Meteora
• Ferð í gamalli eimreið milli þorpanna í Pelíon
• Aðgangseyrir í Akrópólíssafnið
• Ferð í tannalest upp Vouraikos gljúfrið
• Aðgangseyrir í safnið og leikvanginn í Olympíu
• Íslensk fararstjórn
 
Ekki innifalið:
Hádegisverðir. Þjórfé. 
 
 


 
 


Flýtileiðir




Skipta um leturstærð