Sumar 2 Fljótasigling á Rín

 

2. - 7. júní 2012    2 SÆTI LAUS!
Fararstjóri: Íris Sveinsdóttir

 
Rómantík, rólegheit og óviðjafnanleg fegurð lýsa þessari ferð í hnotskurn. Boðið verður upp á fljótasiglingu á Rín, einu af stærstu fljótum Evrópu, með viðkomu í fallegum borgum og bæjum. Ferðin byrjar á flugi til Frankfurt þaðan sem ekið verður að ferjustað í Strassborg í Frakklandi og farið um borð í fljótaskip þar sem gist verður í 5 nætur. Fyrst verður siglt í átt að gamla vínbænum Rüdesheim með fjörugu mannlífi, tónlist og fögru útsýni. Þar bíður okkar „Winzerexpress“ lestin, lítil lest, sem flytur okkur á tónlistarsafnið í bænum. Daginn eftir verður siglt áfram að þýska horninu (Deutsches Eck), þar sem Mósel og Rín mætast og þaðan um rómantíska Rínardalinn sem hefur að geyma fagrar hallir og Loreley klettinn. Ferðin heldur áfram til borgarinnar Nijmegen sem byggð var á fallegri hæð og er elsta borg Hollands. „Feneyjar norðursins“, Amsterdam, er næsti áfangastaður okkar. Farið verður í skoðunarferð um hina litríku og líflegu Amsterdam og um kvöldið verður farið í útsýnissiglingu um borgina. Flogið heim frá Amsterdam en einnig stendur til boða að framlengja ferðina og dvelja á eigin vegum í borginni.
 

 

 

 
2. júní               Flug til Frankfurt – Strassborg – MS Vivaldi
Flogið frá Keflavík kl. 07.25, mæting í Leifsstöð 2 klst. fyrir brottför. Lent í Frankfurt kl. 12.50 að staðartíma. Frá flugvellinum ökum við með rútu til hinnar fögru höfuðborgar Elsass-héraðsins í Frakklandi, Strassborgar, þar sem skipið MS Tomi Ungerer liggur við höfnina. Skipið verður gististaður okkar næstu 5 næturnar. Þegar við höfum komið okkur fyrir, hittum við ferðafélagana og áhöfn í móttökuathöfn og snæðum að lokum kvöldverð um borð. Í þessu glæsilega skipi er gist í þægilegum vel búnum káetum með tveimur rúmum og stórum útsýnisgluggum og uppi á sóldekki eru legustólar til reiðu. Í gestasalnum er bar og á veitingastaðnum eru máltíðirnar framreiddar, hlaðborð á morgnana en þjónað til borðs í hádegi og á kvöldin.
 
3. júní               Strassborg – Rüdesheim
Um nóttina leggur MS Tomi Ungerer frá bryggju í Strassborg og siglir í átt að Rüdesheim. Um það leyti sem við njótum morgunverðarins siglum við framhjá Speyer og Mannheim. Ferðin liggur áfram gegnum Mainz, Wiesbaden og Rínareyjarnar Rettbergsaue, Mariannenaue og Fulderaue. Í eftirmiðdaginn er akkeri varpað við höfn gamla fallega vínræktarþorpið Rüdesheim, sem m.a. er þekkt fyrir bindingsverkshús sín. Þar bíður okkar lítil lest „Winzerexpress“, sem fer með okkur á tónlistarsafnið sem er eitt sinnar tegundar í Evrópu. Eftir að hafa skoðað það er tilvalið að ganga eftir hinni frægu Drosselgasse aftur til skips. Þessi gata varð heimsfræg fyrir andrúmsloftið sem skapaðist þegar tónlistin ómaði frá hljómsveitum sem spiluðu á fjölmörgum veitingastofum.
 
4. júní               Rüdesheim – Köln
Snemma morguns leggur skipið af stað í siglingu á hinni rómantísku Rín um fallegustu svæði Rínardalsins. Leiðin liggur framhjá Ehrenfels-kastala, Pfalzgrafenstein-kastala og mörgum öðrum kastölum og höllum staðsettum inni á milli þekktra vínekra. Við munum einnig sjá Loreley-klettinn, sem er einkum þekktur fyrir þjóðsöguna um töfradísina Loreley sem sat uppi á klettinum og seiddi fiskimenn í dauðann. Þessi saga hefur verið yrkisefni margra skálda, m.a. Heinrich Heine. Við Koblenz, borgina sem staðsett er við ármót Mósel og Rínar, siglum við framhjá hinu svokallaða þýska horni eða „Deutsches Eck“. Á stuttri siglingu til Kölnar, höfuðstaðs Rínarsvæðisins, munum við áfram njóta útsýnis til ýmissa kastala og halla. Síðdegis leggjum við að í gamla hluta Kölnar og okkur gefst tækifæri til að rölta um áhugaverðan miðbæinn og skoða hina frægu Kölnardómkirkju sem er stærsta gotneska kirkja Norður-Evrópu. Kvöldverð snæðum við um borð.
 
5. júní               Köln – Nijmegen
Árla morguns siglir MS Tomi Ungerer af stað í átt til Hollands. Við Emmerich skarast landamærin og í eftirmiðdaginn komum við til Nijmegen. Hér gefst tækifæri til að rölta um þessa elstu borg Hollands, sem byggð er á hæðum og er rík af sögu. Hún var mennta- og menningarsetur, fyrrum aðsetur karlunga og síðar Hansaborg. Meðal þess markverðasta sem sjá má er karolingíska kapellan frá 11. öld, heilaga gotneska Stevenskirkjan og ráðhús í endurreisnarstíl. Þegar við komum aftur um borð bíður okkar hátíðlegur kvöldverður og í kjölfarið tónlist og dans í gestasal skipsins.
 
6. júní               Nijmegen – Amsterdam
MS Tomi Ungerer tekur akkerin upp árla morguns og fer framhjá Arnheim og Utrecht áður en við komum til Amsterdam um miðjan dag. Eftir hádegisverð er farið í skoðunarferð þar sem við munum sjá það markverðasta í „Feneyjum norðursins“, eins og borgin er gjarnan kölluð. Að henni lokinni er frjáls tími til að kynnast mörgum hliðum þessarar fallegu borgar upp á eigin spýtur, upplifa hin fögru síki, stórfengleg listaverk, sögulegar byggingar og fjölþjóðlegt andrúmsloftið. Svo er um að gera að gefa sér tíma fyrir kaffibolla á hinu þekkta Rembrandtplein þar sem eru ótal kaffihús, barir og veitingahús. Eftir kvöldverð um borð í MS Tomi Ungerer er farið í siglingu á útsýnisbát um síkin og borgin skoðuð, böðuð í ljósadýrð.
 
7. júní                   Amsterdam – Heimferð
Eftir morgunverð er haldið með rútu út á flugvöll í Amsterdam. Þaðan er flogið kl. 14.00 og lent í Keflavík kl. 15.10 að staðartíma.
 
Athugið
Í þessari ferð er upplagt að lengja ferðina og breyta heimferð. Breytingargjald fyrir breytta heimflug er 5.000 kr. á miða. Farþegar geta bókað gistingu í Amsterdam á eigin vegum svo dæmi sé tekið og notið þess að skoða borgina betur. Starfsfólk Bændaferða aðstoðar að sjálfsögðu þá farþega sem þess óska við að bóka gistingu á netinu. 
 
 


 
 
 
Verð: 208.400 kr á mann í tvíbýli              Mikið innifalið – Athugið sérstaklega!
Aukagjald fyrir einbýli 42.900 kr.
 
Aukagjald fyrir káetu á efra þilfari er 22.200 kr. á mann í tvíbýli.
Ekki er hægt að fá einbýli á efra þilfari.
 
Innifalið í þátttökugjaldinu:
• Flug með Icelandair og flugvallarskattar
• Rútuferð frá flugvellinum í Frankfurt og til Strassborgar þar sem farið er um borð í skipið
• 6 daga fljótasigling með MS Tomi Ungerer
• Gisting á skipinu MS Tomi Ungerer í káetum með sturtu / salerni í 5 nætur
• Móttökudrykkur á skipinu
• Morgun-, hádegis- og kvöldverður á MS Vivaldi 2 (fyrsta máltíð er kvöldverður þann 2. júní og síðasta máltíð morgunverður 7. júní áður en haldið er út á flugvöll). 
• Drykkir með máltíðum á skipinu, vín, bjór, vatn og kaffi espresso
• Hátíðarkvöldverður 5. júní á skipinu
• Ferð með Winzerexpress í Rüdesheim
• Aðgangur að tónlistarsafninu í Rüdesheim
• Bæjarferð í Amsterdam
• Sigling að kvöldi til með útsýnisbátum um síkin í Amsterdam
• Rútuferð frá höfninni í Amsterdam og út á flugvöll í Amsterdam
• Íslensk fararstjórn
 
Ekki innifalið:
Þær máltíðir sem ekki eru tilgreindar undir innifalið. Aðgangseyrir annar en nefndur er undir innifalið. Forfalla- og ferðatryggingar.

 

 
 
Bændaferðir starfa samkvæmt Almennum alferðaskilmálum SAF.
 

 


Flýtileiðir




Skipta um leturstærð