Sumar 19 Sardinía & Korsíka

 

1. – 13. september 2012     UPPSELT!
Fararstjóri: Hólmfríður Bjarnadóttir

 

Í þessari glæsilegu eyjaferð sem hefst í Mílanó er boðið upp á sumarævintýri á Korsíku og Sardiníu, gróðursæld og stórbrotna fegurð. Höldum til Lucca í Toskana héraðinu og gistum þar í eina nótt áður en við siglum frá Livorno yfir á frönsku eyjuna Korsíku til Bastía. Stefnum á höfuðborgina Ajaccio, fæðingarborg Napóleons Bonaparte, þar sem íbúar fullyrða að þeir eigi fallegasta flóa í heimi. Gistum þar í 3 nætur. Farið verður í ævintýraferðir m.a. um Les Calanche strandhéraðið sem er í yfir 350 m hæð yfir sjó, til Porto við fallegustu vík Korsíku og sannur töfraheimur í rauða Spelunca-gilinu með 2000 m háum fjöllum. Haldið suður til Bonifacio sem er ein af perlum Miðjarðarhafsins en  borgin trónir uppi á 80 m háum kalksteinskletti. Önnur ævintýraferð verður farin er við siglum yfir á ítölsku eyjuna Sardiníu, og gistum í 3 nætur hjá Porto Cervo. Þaðan er farið í siglingu á Maddalena eyju, sem er höfuðeyjan í Maddaleníska eyjaklasanum. Farið er til Porto Rotondo einnar af bæjarperlum Costa Smeralda strandar og upp í fjallaþorpið San Pantaleo, sem er þekkt sem listamannaþorp. Síðan siglt frá Sardiníu yfir til Korsíku, haldið til Bastía sem er töfrandi borg og gist þar í 2 nætur. Þaðan er ekið um Capa Cors tangann sem er annálaður fyrir fegurð. Siglt til Livorno á Ítalíu, gist í eina nótt í nágrenni Bologna á leiðinni til Seefeld í Tíról sem er með aðalferðamannabæjum Tíróls og gist þar í 2 nætur. Á leiðinni þangað verður stoppað í Riva del Garda við Gardavatn og farið á skómarkað í Dro.
  

 

 

 
1. september               Flug til Mílanó og ekið til Lucca
Brottför frá Keflavík kl.7.30. Mæting í Leifsstöð í síðasta lagi 2 klst. fyrir brottför. Lending í Mílanó kl. 13.20 að staðartíma(+2 klst). Þaðan verður haldið rakleiðis til Lucca í Toskanahéraðinu og gist þar fyrstu nóttina.
 
2. september               Korsíka – Les Calanche – Spelunca – Ajaccio
Eftir morgunverð verður ekið til Livorno, en þaðan verður siglt yfir á frönsku eyjuna Korsíku og til Bastía. Þá verður farið í ævintýraferð um Les Calanche, en í þessu magnaða strandhéraði sem er í yfir 350 m hæð yfir sjó hafa sól, rigning og vindur myndað sannkallaðan töfraheim. Þarna er yndislegt að fara í smá gönguferð og njóta hins fallega útsýnis yfir Porto-flóann. Þegar við erum búin að skoða okkur um í Porto, sem stendur við fallegustu vík Korsíku, förum við um rauða Spelunca-gilið með sínum 2000 m háum fjöllum og fáum við að upplifa ólýsanlega fegurð. Þaðan verður ekið til Ajaccio, fæðingarborgar Napóleons Bonaparte, þar sem gist verður í 3 nætur í nágrenni borgarinnar.
 
3. september               Skoðunarferð um Ajaccio – frjáls tími
Eftir góðan morgunverð, verður farið inn í höfuðborgina Ajaccio, fæðingarborg Napóleons
Bonaparte, þar sem farið verður í skoðunarferð og frjáls tími gefinn til að kanna borgina á eigin vegum og fá sér hressingu. Borgin er mjög lífleg og fegurðin við Ajaccio flóann laðar ferðamenn að sér, en íbúarnir fullyrða að þeir eigi fallegasta flóa í heimi.
 
4. september               Frjáls dagur í Ajaccio
Nú ætlum við að njóta þess að vera í rólegheitum við hótelið. Nota daginn við sundlaugina eða fara í gönguferð með ströndinni. Einnig er hægt að taka strætisvagn inn í miðbæ Ajaccio.
 
5. september               Perlan Bonifacio og sigling yfir til Sardiníu
Ferðin heldur áfram suður með vesturströndinni sem er umvafin vín- og kívíökrum. Komum til Bonifacio, einnar af perlum eyjunnar. Borgin trónir upp á 80 m háum kalksteinskletti og yfir borginni, mjóum götum hennar, virkisveggjum og gömlum turnhúsum er heillandi miðaldablær. Förum til borgarinnar með smálest, skoðum okkur um og fáum okkur hressingu. Síðan verður ferja tekin yfir til Sardiníu, sem tilheyrir Ítalíu, þar sem gist verður í 3 nætur.
 
6. september               Ævintýraferð um norðurhluta eyjunnar
Í dag verður farið í sannkallaða ævintýraferð. Við tökum ferju frá Palau yfir á  La Maddalena, sem er höfuðeyja Maddaleníska eyjaklasans sem samanstendur af samtals 7 eyjum. Þegar komið er til baka frá eyjunum verður ekið um Costa Smeralda. Þessi heimsþekkta strönd hefur upp á allt að bjóða, gullinn sand, sægrænt haf og ilminn frá Macchia gróðrinum. Við endum síðan daginn á að koma við í fallega bænum Porto Cervo og þar skoðum við hina undurfögru litlu kirkju Stella Maris.
 
7. september               Porto Rotondo og San Pantaleo
Eftir góðan morgunverð, verður ekið til bæjarins Porto Rotondo, sem er ein af perlum Costa Smeralda strandarinnar en bærinn liggur við eina af fögru víkum Olbía. Upphafsmaður bæjarins var greifinn Donà dalle Rose og bærinn í dag einn sá þekktasti á Sardiníu. Eftir það verður ekið til fjallabæjarins San Pantaleo, töfrandi listamannabæjar með rómverskum minjum, fallegri kirkju, miðaldahúsum sem kölluð eru „stazzi“ en það eru híbýli hirðingja.  Ekki má heldur gleyma listamönnum bæjarins sem eru þekktir fyrir fallegt handverk.
 
8. september               Sigling yfir til Korsíku og ekið til Bastía
Kveðjum Sardiníu, siglum yfir til Korsíku þar sem ferð okkar heldur áfam norður með ströndinni til Bastía en Bastía var höfuðborg eyjunnar til ársins 1811. Gist í 2 nætur í Bastia. 
 
9. september               Cap Corse tanginn
Í dag verður ekið um Cap Corse tangann, þar sem margt fallegt er að sjá. Fyrst komum við til Erbalunga, lítils hafnarbæjar með dæmigerðum korsískum húsum og höldum svo áfram með ströndinni framhjá fögrum víkum. Þá förum við eftir svartri sandströnd til Nonza, sem stendur á þverhníptum klettum í 200 m hæð yfir sjávarmáli. Á leiðinni tilbaka til Bastía höfum við sérlega fallegt útsýni yfir St. Florent flóa.
 
10. september               Sigling frá Bastía til Livorno
Eftir morgunverð verður farið í stutta skoðunarferð í Bastía áður en við kveðjum þessa yndislegu eyju en þaðan verður siglt yfir til Livorno á Ítalíu þar sem  gist verður í eina nótt nágrenni Bologna.
 
11. september               Riva del Garda og Seefeld í Tíról
Nú kveðjum við þennan fallega stað og höldum til Austurríkis. Á leiðinni verður stoppað í Riva del Garda við Gardavatn. Þar gætum farið í siglingu yfir til Limone sem er ein af perlum svæðisins. Ekið verður yfir Brennerskarðið, komið við á skómarkaði í Dro áður en haldið er áfram inn Sarca dalinn til Seefeld,  hins yndislega bæjar í Tíról þar sem við gistum í 2 nætur.
 
12. september               Frjáls tími Seefeld
Frjáls dagur í Seefeld sem er með eftirsóttustu ferðamannabæjum Tíróls. Bærinn er umkringdur fjöllum, en hér áður var þetta mikið vatnasvæði og ber nafn bæjarins það með sér. Eftir stutta göngu með farastjóranum er frjáls tími það sem eftir er dags. Hér er margt hægt að gera, t.d. fara með hestvagni um bæinn, í gönguferð hringinn í kringum vatnið eftir þægilegri gönguleið og svo er hægt að fara upp á Rosshütte fjallið með kláfi sem fer upp í 1784 m hæð, en þar er gott veitingahús og upplagt að fá sér kaffi og tertusneið.
 
13. september               Heimferð frá München
Eftir yndislegt sumarævintýri verður ekið til München. Brottför þaðan kl. 14.05 og lending í Keflavík kl.16.05 að staðartíma.
 
Fararstjóri getur fært milli daga eftir því sem þörf þykir þegar komið er á staðinn.
 
 


 
 
 
Verð: 288.800 kr. á mann í tvíbýli.                  Mikið innifalið – athugið sérstaklega!
Aukagjald fyrir einbýli er 53.700 kr. 
 
 
Innifalið í þátttökugjaldinu:
• Flug með Icelandair og flugvallarskattar
• Gisting í 2ja manna herbergi með baði
• Morgun- og kvöldverður allan tímann á hótelum
• Allar skoðunarferðir með rútu samkvæmt ferðalýsingu
• Ferja frá Livorno til Bastia og tilbaka
• Ferja frá Bonifacio til Sardiníu og tilbaka
• Íslensk fararstjórn
 
Ekki innifalið:
Aðgangseyrir inn í söfn, hallir og kirkjur. Kláfar eða stólalyftur upp á fjöll. Siglingar og vínsmökkun. Hádegisverðir. Þjórfé.
 
Valfrjálst:
Smálest upp í Bonifacio ca. € 7 og ferja yfir á eyjuna La Maddalena ca. € 8. 

 
 
Bændaferðir starfa samkvæmt Almennum alferðaskilmálum SAF.
 

 


Flýtileiðir




Skipta um leturstærð