Sumar 18 Pétursborg & Tallinn

 
1. - 8. september 2012      UPPSELT!
Fararstjóri: Pétur Óli Pétursson

 
Spennandi ferð til hinnar stórfenglegu Pétursborgar sem var höfuðborg Rússlands á árunum 1712 – 1918 og hét um tíma Leníngrad, til minningar um Lenín og bar hún það nafn þar til árið 1991 eða þar til eftir fall Sovétríkjanna. Pétursborg er án efa miðstöð menningar og lista og hafa bókmenntir, tónlist og leiklist hennar mikla þýðingu um heim allan. Margir telja borgina eina þeirra fallegustu í heimi, en miðbær hennar er til að mynda á heimsminjaskrá UNESCO. Flogið verður til Helsinki og þaðan haldið til Pétursborgar. Farið verður í áhugaverðar skoðunarferðir um borgina þar sem við kynnumst sögu og menningu landsins. Skoðum m.a. virki heilags Péturs og Páls, dómkirkju heilags Ísaks og Vetrarhöllina. Undir lok ferðar verður farið til Tallinn, höfuðborgar Eistlands, en borgin er ein best varðveitta miðaldaborg í N-Evrópu. Hér er því margt sem gleður augað og margir hápunktar í þessari einu og sömu ferð!
 
 

 

 

 
1. september               Flug til Helsinki
Brottför frá Keflavík kl. 7.55. Mæting í Leifsstöð um 2 klst. fyrir brottför. Lending í Helsinki kl. 14.20 að staðartíma en flugið tekur rúma þrjá tíma. Ekið yfir landamærin til Pétursborgar þar sem gist verður á Hotel Moskvu í 4 nætur.
 
2. september               Pétursborg
Við hefjum daginn á skoðunarferð um miðbæinn. Því næst verður haldið að virki heilags Péturs og Páls þar sem allir meðlimir Rómanov fjölskyldunnar eru grafnir, en í raun og veru má rekja upphaf borgarinnar til virkisins sem Pétur mikli lét reisa. Einnig skoðum við dómkirkju heilags Ísaks sem tók 40 ár að byggja og 18 ár að skreyta. Byggingu hennar lauk árið 1858. Í kvöld snæðum við glæsilegan kvöldverð í Síðustu höllinni.
 
3. september               Leníngrad minnismerkið – Peterhoff
Við byrjum á að skoða minnismerkið um 900 daga umsátrið um Leníngrad, en þar er magnþrungið andrúmsloft og snertir marga mjög djúpt að koma þangað. Næsti áfangastaður er Peterhoff. Þar er hinn frægi og einstaklega fallegi gosbrunnagarður sem oft hefur verið borinn saman við garðana við Versali. Höllin í Peterhoff var ein af uppáhaldssumardvalarstöðum keisaranna og garðarnir hreint ólýsanlegir. Endum daginn í stórveislu á veitingastaðnum Podvorija þar sem boðið verður upp á 5-rétta rússneskan málsverð.
 
4. september               Hermitage safnið og frjáls tími
Vetrarhöllin var byggð á árunum 1754–1762 og var heimili rússnesku keisaranna. Höllin hýsir í dag Hermitage safnið sem er annað mesta listaverkasafn í heimi á eftir Louvre safninu í París, en Hermitage geymir um 3 milljónir hluta. Að sjálfsögðu förum við í safnið sem státar m.a. af verkum eftir Rembrandt, Picasso og marga fleiri þekkta listamenn. Eftir hádegi gefst frjáls tími til að skoða Pétursborg á eigin vegum.
 
5. september               Tallinn
Eftir morgunverð ökum við til Tallinn í Eistlandi sem er í um 380 km fjarlægð frá Pétursborg, en þar gistum við næstu 3 nætur. Á leiðinni munum við snæða saman hádegisverð.
 
6. september               Skoðunarferð um Tallinn
Í dag verður farið í skoðunarferð um höfuðborg Eistlands, Tallinn. Þessi fallega og rómantíska borg er um 800 ára gömul, með þröngum steinlögðum götum og vel varðveittum byggingum frá 11. – 15. öld. Tallinn er ein best varðveitta miðaldaborg í Norður-Evrópu og er á heimslista UNESCO, en þrátt fyrir ríkan miðaldablæ hennar er hún einnig með alþjóðlegt yfirbragð, enda hefur borgin tekið miklum breytingum á síðustu tíu árum.
 
7. september               Frjáls dagur í Tallinn
Tallinn hefur upp á margt að bjóða og hér gefst tækifæri til að kynnast borginni enn betur. Hún telur u.þ.b. 400.000 íbúa og er flatarmál borgarinnar 159,2 km². Hér er hægt að nýta tímann til að kíkja á veitinga- og kaffihús, líta inn til kaupmanna eða einfaldlega slaka á og njóta þess sem fyrir augum ber.
 
8. september               Heimferð
Nú er komið að heimferð. Eftir morgunverð tökum við ferjuna yfir til Helsinki. Brottför frá Helsinki er kl. 15.30 og lending í Keflavík kl. 15.55 að íslenskum tíma.

Fararstjóri getur fært dagskrárliði á milli daga eftir þörfum þegar komið er á staðinn.

 


 
 
 
Verð: 197.100 kr á mann í tvíbýli.                   Mikið innifalið – athugið sérstaklega!
Aukagjald fyrir einbýli er 31.620 kr. 
 
 
Innifalið í þátttökugjaldinu:
• Flug með Icelandair og flugvallarskattar
• Gisting í 7 nætur í 2ja manna herbergi með baði.
• Allar skoðunarferðir samkvæmt ferðalýsingu
• 7 morgunverðir
• 2 hádegisverðir
• 2 kvöldverðir – stórveislur með skemmtiatriðum og drykkjum
• Aðgangseyrir að 5 söfnum, byggingum eða öðrum stöðum sem skoðaðir verða
• Staðarleiðsögn
• Íslensk fararstjórn
• Vegabréfsáritun til Rússlands
 
Ekki innifalið:
Aðrar máltíðir en þær sem nefndar eru undir innifalið. Þjórfé.

 

 

 Bændaferðir starfa samkvæmt Almennum alferðaskilmálum SAF.

 
 

 


Flýtileiðir




Skipta um leturstærð