Sumar 17 Trítlað um töfraheima Tíróls

 
30. ágúst – 6. september 2012     UPPSELT!
Fararstjóri: Jón Hálfdanarson

 
Héraðið Tíról í Austurríki er þekktast fyrir einstaka fjallafegurð, tírólabúninga og hatta, fjölbreyttan landbúnað þar sem bændur reka ennþá í sel og ekki má gleyma öllum útivistarmöguleikunum. Ferðinni er að þessu sinni heitið til bæjarins Gerlos í fjallaríki Kitzbühel og Zillertaler Alpanna. Í þessum áhrifamikla fjallaheimi Tíról teygja sig hvorki meira né minna en 5 hliðardalir með ótal gönguleiðum en ferðin samanstendur af blöndu léttra gönguferða sem henta vel fyrir alla þá sem njóta þess að stunda útivist. Eftir flug til München er ekið sem leið liggur til Gerlos en bærinn liggur í 1250 m hæð í Zillerdalnum, þar sem sumarnæturnar eru ferskar og dagarnir hæfilega heitir. Gist verður á rómantísku 3* fjallahóteli í 7 nætur. Næstu daga gefst göngugörpum tækifæri til að stunda hressandi hreyfingu og fyllast krafti og ánægju í sannkölluðum töfrum Tíróls. Trítlað verður eftir fjölbreyttum gönguslóðum þessa einstaka alpasvæðis í skipulögðum ferðum frá hótelinu og inn á milli stundaðar léttar æfingar og teygjur. Flestar skíðalyftur og kláfar svæðisins eru opnar yfir sumartímann, sem eykur möguleikann á því að haga dagleiðunum eftir getu hvers og eins. Eftir ánægjulega útiveru er síðan upplagt að láta þreytuna líðu úr sér í heilsulind hótelsins.
 

 

 
 
Svæðið
Áfangastaður þessarar nýju ferðar er bærinn Gerlos en um hann liggja fjallkambar Kitzbühel Alpanna í norðri og Zillertaler Alpanna í suðri. Bærinn liggur í 1250 m hæð í hinum heillandi Zillerdal. Elstu heimildir um Zillerdal eru frá 889 þar sem sagt frá því þegar Arnulf frá Carinthiu gaf erkibiskupinum í Salzburg land í dalnum. Notuðu landeigendur í dalnum ánna Ziller til að afmarka eignarskiptinguna og má enn greina merki þessarar skiptingar, því kirkjur við hægri bakka árinnar hafa flestar græna turna og tilheyra biskupadæmi Salzburgar en kirkjur á vinstri bakkanum eru með rauða turna og tilheyra biskupadæmi Innsbruck. Dalurinn teygir sig frá bænum Strass til Mayerhofen þar sem hann skiptist í fjóra minni dali: Tux-dalinn, Gründe-Samsergrund, Zillergrund og Stilluppgrund. Gerlos liggur hæst allra bæja í Zillerdalum en á þessu fallega alpasvæði má finna tignarlega tinda, tær vötn, ár, skóga og Gerlos hásléttuna, sem er sannkölluð útivistarparadís.
 
Gönguferðirnar
Náttúruunnendur fá svo sannarlega eitthvað fyrir sinn snúð á svæðinu í kringum Gerlos því þeirra bíða 850 km af mismunandi gönguleiðum við allra hæfi. Frá bænum Gerlos liggja margar fallegar gönguleiðir en það er t.d. hægt að trítla meðfram Gerlosánni inn í dalinn
Schöntal, enda í Lackenalm og njóta þar dásamlegs útsýnis yfir dalinn og Schöntaljökul. Eins er dalurinn Wimmertal ákjósanlegur fyrir heilsusamlegar göngur og upplagt er að enda á því að láta vatnið í Wimmerbach læknum leika um fæturnar. Göngurnar eru skipulagðar frá hótelinu og mun austurrískur gönguleiðsögumaður leiða hópinn, ásamt íslenska fararstjóranum. Göngunum verður hagað eftir getu hópsins og mögleiki er á að skipta hópnum til að koma betur til móts við þarfir hvers og eins. Einnig er hægt að velja sér leiðir á eigin spýtur allt eftir því hvað hentar hverjum og einum. Eftir ánægjulega útivist er upplagt að slaka á í heilsulind hótelsins, láta þreytuna líða úr sér og dreyma alpadrauma!
 
Hótelið
Hotel Tirolerhof er huggulegt þriggja stjörnu alpahótel í austurrískum stíl. Hótelið er heimilislegt með 40 herbergjum og eru öll herbergin með sturtu/baðkeri, sjónvarpi, öryggishólfi, hárþurrku og síma. Öll herbergin eru með svölum. Á hótelinu er einnig nýleg 300 m² heilsulind með mismunandi gufuböðum og svæði þar sem gott er að slaka á og fá sér te eða ávaxtasafa eftir gönguferðir. Einnig er þar hlýlegur veitingastaður ásamt bar og sólstofu. Hótelið er staðsett í bænum Gerlos sem liggur í 1250 m hæð yfir sjávarmáli. Stutt ganga er í bæinn þar sem finna má verslanir, pósthús og fleira.
Heimasíða hótelsins er: www.tirolerhof-gerlos.at
 
Flugið
Flogið verður með Icelandair til München þann 30. ágúst. Brottför frá Keflavík kl. 7.20 en mæting í Leifsstöð í síðasta lagi 2 klst fyrir brottför. Lending í München kl. 13.05 að staðartíma (+2 klst), en flugið tekur um 4 klst. Frá flugvellinum í München eru um 200 km til Gerlos svo gera má ráð fyrir að rútuferðin taki um 3 klst. Þegar við förum aftur heim þá leggjum við af stað út á flugvöll eftir morgunverð og fljúgum heim kl. 14.05 frá München. Lending á Íslandi kl. 16.00 að staðartíma.
 
 
 

 
 
 
Verð: 163.800 kr. á mann í tvíbýli.                 Mikið innifalið – athugið sérstaklega!
Aukagjald fyrir einbýli 23.800 kr.
 
 
Innifalið:
• Flug með Icelandair og flugvallaskattar
• Ferðir á milli flugvallarins í München og hótelsins í Gerlos
• Gisting í tveggja manna herbergi með baði á þriggja stjörnu hóteli í Gerlos
• Morgunverðarhlaðborð
• Vel útilátinn kvöldverður ásamt salathlaðborði
• Aðgangur að öllu því sem heilsulindin hefur upp á að bjóða
• Leiðsögn staðarleiðsögumanns í gönguferðum
• Íslensk fararstjórn
 
 
Ekki innifalið:
Aðgangseyrir inn á söfn og kirkjur. Kláfar eða stólalyftur upp á fjöll, leigubílaakstur, hádegisverður og þjórfé. Forfalla- og ferðatrygging.
 
 

 Bændaferðir starfa samkvæmt Almennum alferðaskilmálum SAF.

 
 
 


Flýtileiðir




Skipta um leturstærð