Sumar 16 Perlur Ungverjalands

 

25. ágúst – 6. september 2012
Fararstjóri: Soffía Halldórsdóttir

 
Rómantík og fegurð svífur yfir vötnum í ferð okkar um Austurríki og við Balatonvatn í Ungverjalandi, sem er rómað fyrir fagrar strendur og líflega bæi. Þessi glæsilega ferð byrjar í Mílanó, þaðan svo ekið til Veróna, þar sem við gistum eina nótt, en á leiðinni þangað verður stoppað við suðurenda Gardavatns. Ekið að Faaker vatni í Kärnten í Austurríki og þar gist í 2 nætur og síðan ekið um Ossiacher vatn til Velden, sem er aðalbærinn við Wörthersee, stærsta alpavatn Evrópu. Því næst er komið að Balatonvatni í Ungverjalandi sem er einn eftirsóttasti ferðamannastaður landsins og gist í hinum blómlega og skemmtilega bæ Siófok í 7 nætur. Farið í skoðunarferðir t.d. til höfuðborgarinnar Búdapestar, einnar af glæsilegustu borgum í heimi, siglt á Balatonvatni yfir til Tihany, komið til Balatonfüred, eins þekktasta heilsu- og ferðamannabæjar við vatnið og tekið þátt í sveitabrúðkaupi. Ekið um ungversku „Puszta“ sléttuna suður til Kecskemet og alþjóðlegt keramíkstúdíó heimsótt, þar sem Jóna Guðvarðardóttir tekur á móti okkur. Eftir það verður ekið til Lajosmizse á Tanyacsárda hestabúgarðinn, farið á hestasýningu, en þar eru þeir frægir fyrir tamningar sínar, og fáum okkur léttan hádegisverð. Einnig komið til bæjarins Hévíz, sem er þekktur fyrir fornan gýg og heimsækjum vínbónda. Síðustu 2 næturnar dveljum við í Deggendorf í Þýskalandi sem oft er nefndur „hliðið inn í Bæjaraskóg“.
 

 

 

 
25. ágúst               Flug til Mílanó og ekið til Veróna
Brottför frá Keflavík kl. 7.30. Mæting í Leifsstöð í síðasta lagi 2 klst. fyrir brottför. Lending í Mílanó kl. 13.20 að staðartíma.(+2 klst). Á leið okkar til Veróna verður stoppað í Sirmione við Gardavatn sem er yndislegur bær við suðurenda vatnsins, en elsti hluti bæjarins liggur úti á 4 km löngum tanga. Fyrstu nóttina gistum við svo í nágrenni Veróna. 
 
26. ágúst               Veróna – Faakersee vatn
Faakersee vatn er fimmta stærsta stöðuvatnið af yfir hundrað vötnum í hinu fagra Kärnten héraði í Austurríki, en það er okkar næsti áfangastaður þar sem gist verður í 2 nætur á hóteli við vatnið.
 
27. ágúst              Faakersee – Osiachersee – Wörthersee
Eftir morgunverð og slökun ætlum við að fara í skemmtilega ferð um sveitina þar sem ekið verður um Osiachersee og stoppað stutt í bænum Osiach, litlum og skemmtilegum bæ. Þaðan verður ekið að Wörthersee, stærsta alpavatns Evrópu, þar sem stoppað verður í Velden, einum aðalferðamannabænum í Kärnten héraðinu. Gefum okkur góðan tíma til að njóta náttúrufegurðarinnar sem umvefur okkur og fáum okkur hressingu. Einnig væri hægt að fara í skemmtilega siglingu á Wörthersee ef tími gefst til.
 
28. ágúst              Ekið frá Faaker vatni til Siófok við Balatonvatn
Næsti áfangastaður okkar er Balatonvatn í Ungverjalandi sem er sannkallaður draumastaður og einn vinsælasti ferðamannastaður landsins. Gistum þar næstu 7 nætur á góðu hóteli í Siófok, blómlegum bæ við Balatonvatn. Hótelið er á fögrum stað, 100 m frá Balatonvatni og 900 m frá miðbæ Siófok. 

29. ágúst              Dagur í Siófok og ungverskt sveitabrúðkaup
Í dag tökum við því rólega. Eftir morgunverð verður farið í skemmtilega göngu inn í miðbæ Siófok sem er stærsti bærinn við vatnið. Eftir stutta skoðunarferð gefst tími til að njóta dagsins á þessum fagra stað. Siófok er aðalmenningarstaðurinn við vatnið og yfir sumartímann iðar bærinn af lífi og mikið er um skemmtilegar uppákomur. En um kvöldið munum við taka þátt í ungversku sveitabrúðkaupi sem sett er upp með skemmtidagskrá, dansi og kvöldverði. 
 
30. ágúst              Dagur í Búdapest
Nú liggur leið okkar til höfuðborgarinnar Búdapestar, sem er með fallegustu borgum í heimi en þar búa um tvær milljónir manna. Farið verður í skoðunarferð með innlendum fararstjóra, m.a. upp á Gellért-hæðina, að Matthíasarkirkjunni, Halászbástya kirkju og hetjutorginu svo eitthvað sé nefnt. Einnig gefst frjáls tími til að skoða mannlífið.
 
31. ágúst              Kecskemet, keramíkstúdíó og Tanyacsárda (hestabúgarður)
Í dag verður óskaplega falleg leið ekin um suðurhluta landsins, á ungversku „Puszta“ sléttunni með ám og vötnum sem er paradís fiskveiða, vatnaíþrótta og hestaferða. Ekið verður til Kecskemet, stærsta bæjarins á svæðinu, með sögulegum minjum og blómlegu menningarlífi. Byrjað verður á því að heimsækja alþjóðlegt keramíkstúdíó, sem Jóna Guðvarðardóttir og János Probstner eiginmaður hennar reka. Jóna tekur á móti okkur og sýnir okkur staðinn. Eftir það verður ekið til Lajosmizse á Tanyacsárda, sem er veitingastaður og hestabúgarður og þar verður farið á hestasýningu, en búgarðurinn er einmitt þekktur fyrir sérstaka tamningatækni á hestum og einnig bjóða þeir upp á ferðir í hestakerrum um lágsléttuhæðir Puszta svæðisins. Eftir það fáum við okkur léttan hádegisverð á veitingastað búgarðsins.
 
1. september              Tihany og Balatonfüred
Eftir morgunverð siglum við með bílferju yfir til Tihany, sem er á litlu nesi sem gengur út í Balatonvatnið norðanmegin. Þetta er sögulegur staður með mörgum fallegum byggingum, m.a. gamalli klausturkirkju sem var upphaflega byggð árið 1055. Fallegt safn er í klausturbyggingunni sem byggð var á árunum 1719-1740 og einnig er þar byggðasafn með gömlum húsum. Í þorpinu sjálfu eru 64 hús úr móbergi með reyrþökum. Líf og fjör er í þessum litla bæ, t.d. mjög skemmtilegur útimarkaður. Eftir það verður ekið til Balatonfüred sem er einn þekktasti heilsu –og ferðamannabærinn við vatnið frá fornu fari og er lega bæjarins við vík eina norðan Tihanyskagans einstök. Þaðan verður síðan siglt yfir til Siófok.
 
2. september              Frjáls dagur í Siófok
Frjáls dagur í Siófok. Njótum þess sem staðurinn hefur upp á að bjóða og notum aðstöðuna við hótelið, upplagt að fara í gönguferðir en einnig er hægt að taka áætlunarbátinn og ferðast á milli bæja. 
 
3. september              Hévíz og vínsmökkun
Í dag verður ekið til Hévíz, lítils bæjar við vesturenda vatnsins, þar sem stærsta náttúrubað í heimi er og er það einstaklega vinsælt hjá ferðamönnum. Við endum ferðina á því að fara í skemmtilega vínsmökkun hjá vínbónda með söng og fjöri.
 
4. september              Kveðjum Siófok og ekið til Deggendorf
Nú kveðjum við þennan fagra stað eftir góða daga og ökum til bæjarins Deggendorf í Þýskalandi, en bærinn er oft nefndur „hliðið inn í Bæjaraskóg“. Gistum þar síðustu 2 næturnar á hóteli í miðbænum.
 
5. september              Frjáls dagur í Deggendorf
Í dag verður frjáls tími til að rölta um þennan fallega bæ, líta inn til kaupmanna og fá sér hressingu á einu af fjölmörgu veitinga – og kaffihúsum bæjarins.
 
6. september              Heimferð
Eftir indæla og skemmtilega ferð verður ekið til München. Brottför þaðan kl. 14.05 og lending í Keflavík kl. 16.00 að staðartíma.
 
Fararstjóri getur fært dagskrárliði á milli daga eftir þörfum þegar komið er á staðinn
 
 


 
 
 
Verð: 244.700 kr. á mann í tvíbýli.                  Mikið innifalið – athugið sérstaklega!
Aukagjald fyrir einbýli er 44.400 kr. 
 
 
Innifalið í þátttökugjaldinu:
• Flug með Icelandair og flugvallarskattar
• Gisting í 2ja manna herbergi með baði
• Morgun- og kvöldverður allan tímann á hótelum
• Allar skoðunarferðir með rútu samkvæmt ferðalýsingu
• Íslensk fararstjórn
 
Ekki innifalið:
Aðgangseyrir inn á söfn, í hallir og kirkjur. Kláfar eða stólalyftur upp á fjöll. Siglingar og vínsmökkun. Hádegisverðir. Þjórfé.
 
Valfrjálst:
Sigling á Wörthersee um ca. € 15. Aðgangseyrir á hestasýningu ca. € 11 og léttan hádegisverð ca. € 11 - 15. Sigling yfir til Tihany ca. € 7 og vínsmökkun ca. € 13. 
 
 
 

Bændaferðir starfa samkvæmt Almennum alferðaskilmálum SAF.
 

 


Flýtileiðir




Skipta um leturstærð