Sumar 14 Albanía & Króatía

 
18. ágúst - 1. september 2012     UPPSELT!
Fararstjóri: Hólmfríður Bjarnadóttir

 
Austurlenskur blær, strandperlur, hefðir, minjar og ólýsanleg náttúrufegurð Albanía & Króatíahrífa okkur í glæsilegri ferð til Albaníu og á Dalmatíuskagann í Króatíu. Ferðin hefst á flugi til Mílanó, þaðan ekið til Parma, sem er í einu mikilvægasta héraði Ítalíu, Emilia – Romagna, og gist fyrstu 2 næturnar. Siglt frá Ancona og yfir til Durrës í Albaníu og gist við baðströnd Durrës í 4 nætur. Spennandi ferðir á dagskrá, t.d. um Durrës, til Tirana, höfuðborgar Albaníu sem er að hálfu leyti austurlensk og skemmtileg með sínum litríku húsum. Tökum kláf upp á fjallið Dajti í 1050 m hæð, þar sem einn aðalþjóðgarð landsins er að finna. Förum í skoðunarferð til Vlora, en um 1912 var þingið kallað þar saman og Albanía lýsti yfir sjálfstæði. Skoðum fornminjar Apollonia, á einu mesta fornminjasvæði landsins. Kveðjum Albaníu og á leið okkar til Króatíu verður komið við í gamla virkisbænum Budva í Svartfjallalandi, sannkallaðri náttúruperlu landsins. Gistum í 2 nætur í Dubrovnik sem er glæsileg menningar- og listaborg í Króatíu. Eftir það verður gist í 3 nætur í Tucepi, yndislegum bæ við Makarska Rívíeruna. Á leiðinni þangað verður komið til Mostar í Bosníu, þar sem gamla brúin eða Stari Most er sögulegt tákn, en í Bosníustríðinu 1993 var henni eytt með spengjuárásum frá króatísku hliðinni, svo endurbyggð og frá árinu 2005 á heimsminjaskrá UNESCO og tákn fyrir friðsamlegri sambúð mismunandi þjóðflokka í Mostar. Skoðum UNESCO borgina Split sem er líkt og lifandi safn, m.a. með Diokletian höll. Siglum til Ancona og gistum eina nótt í Cremona á Ítalíu áður en flogið verður heim á leið. 

 

 
 
18. ágúst                  Mílanó – Parma
Brottför frá Keflavík kl. 7.30. Mæting í Leifsstöð í síðasta lagi 2 klst. fyrir brottför. Lending í Mílanó kl. 13.20 að staðartíma (+2 klst). Þaðan er ekið rakleiðis til Parma í Emilia Romana héraðinu þar sem við gistum fyrstu 2 næturnar í miðborg Parma.

19. ágúst                   Dagur í Parma        
Parma er ein af lista- og menningarborgum landsins. Förum í skemmtilega skoðunarferð um helstu staði borgarinnar og kynnum okkur menningu hennar. Eftir hádegi verður frjáls tími til að taka því rólega og skoða sig betur um. Um kvöldið gætum við byrjað á því að fá okkur fordrykk á Lundarkaffihúsi Höllu Margrétar söngkonu og Paolo, fyrir kvöldverð.
 
20. ágúst                  Parma, Ancona og Jóníska hafið
Eftir morgunverð kveðjum við borgina. Nú verður ekin falleg leið til Ancona við Adríahaf, höfuðborgar héraðsins Marche. Sögu hennar má rekja aftur til 5. aldar f. Kr. þegar Grikkir flúðu frá Sýrakúsa og settust að hér og gáfu borginni nafnið Ancona (olnbogi). Um kvöldið verður siglt frá Ancona til Durrës í Albaníu. Gisting með morgun- og kvöldverði um borð í skipinu.

21. ágúst                  Komið til Durrës í Albaníu
Eftir morgunverð komum við að landi í Durrës í Albaníu sem er með elstu borgum landsins frá 627 f. Kr., og er ein mikilvægasta borg landsins. Við byrjum á því að fara í skoðunarferð um borgina með heimamanni til að kynnast menningu og lífi bæjarbúa. Í miðri nútímaborginni eru fornminjar frá rómversku hringleikahúsi, einnig er mjög áhugavert fornminjasafn sem þeir eiga með minjum úr borginni og nágrenni. Auðvitað gefst frjáls tími til að fá sér hressingu áður en haldið er á hótelið sem er í útjaðri Durrës við baðströnd borgarinnar. Þar gistum við í 4 nætur.
Albanía & Króatía Sumar 14 Bændaferðir
22. ágúst                  Höfuðborgin Tirana
Í dag verður ekið til Tirana sem er höfuðborg landsins og Tirana-héraðs við ána Ishm. Hún er stærsta borg landsins og miðstöð viðskipta, iðnaðar og menningarlífs í landinu, en íbúar eru um 600.000. Á undanförnum árum hafa ópússaðar framhliðar húsanna verið málaðar í björtum litum og skrautlegum mynstrum og minna sum húsin óneitanlega á hús listamannsins austurríska, Hundertwasser. Einnig er gamla íbúðahverfið mjög líflegt, skrautlegar verslanir, kaffi- og veitingahús. Fagrar byggingar eru á víð og dreif um alla borg og við Skënderbeu torgið sem er í hjarta borgarinnar. Einnig er borgin rík af galleríum og listasöfnum. Við förum í ævintýralega skoðunarferð með heimamanni sem kynnir okkur menningu og líf borgarbúa. Eftir það gefst frjáls tími til að kynna sér líf bæjarbúa á eigin vegum. Nú verður ekið að útjaðri borgarinnar, að heimafjalli borgarbúa, og förum með kláf upp á fjallið Dajti sem er í 1050 m hæð og þar sem einn aðalþjóðgarður landsins byrjar.

23. ágúst                  Frjáls dagur í rólegheitum
Nú er frjáls dagur, því er upplagt að taka daginn rólega og nota aðstöðuna við hótelið, fara í gönguferð og njóta náttúrufegurðarinnar við Jóníska hafið.

24. ágúst                  Dagur til Vlora og rómverskar fornminjar í ApolloniaAlbanía & Króatía Sumar 14 Bændaferðir
Vlora er með fallegri strandborgum landsins. Þar er ekki bara ein af mikilvægustu höfnum landsins heldur gegnir borgin einnig sögulegu hlutverki.  Árið 1912 var þingið kallað saman í Vlora, Albanía lýsti yfir sjálfstæði sínu og var frumkvæði haft að stofnun fyrstu innlendu ríkistjórnarinnar undir stjórn Ismail Qemali. Vlora var fyrsta höfuðborg Albaníu eftir sjálfstæði þeirra. Farið verður í skoðunarferð um borgina með heimamanni sem kynnir okkur sögu borgarinnar, menningu, byggingar og minjar frá Rómverjum, en í borginni búa um 110.000 íbúar. Jafnframt verða rómverskar fornminjar í Apollonia skoðaðar.

25. ágúst                  Durrës – Svartfjallaland – Budva – Dubrovnik
Nú kveðjum við Albaníu eftir góða daga. Ekin verður falleg leið með ströndinni í gegnum Svartfjallaland til Dubrovnik. Á leiðinni verður stoppað í Budva sem er með fallegri bæjum í Svartfjallalandi, en það er gamall virkisbær með um 11.000 íbúa. Budva var eyja sem er búið að tengja við meginlandið og er elsti bærinn við Adríahafið, samkvæmt fornum goðafræðum. Bærinn fór mjög illa í jarðskjálfta árið 1979, en í dag er Budva ein af perlum Svartfjallalands. Við stöldrum við í Budva, þar sem mikil náttúrufegurð ríkir og skoðum mannlífið. Við gistum í Dubrovnik í Króatíu í 2 nætur.
Albanía & Króatía Sumar 14 Bændaferðir
26. ágúst                  Skoðunarferð um Dubrovnik
Dubrovnik er ein aðal menningar- og listaborg landsins og gamall virkisbær. Förum í skoðunarferð um þessa líflegu og sögufrægu borg, sem hefur að geyma glæstar byggingar og brunna frá endurreisnar- og barokktímanum. Borgin iðar af mannlífi og hefur upp á margt skemmtilegt að bjóða.

27. ágúst                  Dubrovnik – Mostar í Bosníu – Tucepi
Kveðjum Dubrovnik og ökum fallega leið til Tucepi, sem hefur byggst upp sem einn eftirsóttasti ferðamannabærinn við Makarska Rívíeruna og er mjög líflegur. Á leiðinni þangað verður komið til Mostar í Bosníu þar sem gamla brúin eða Stari Most er sögulegt tákn, en í Bosníustríðinu 1993 varð henni eytt með gríðalegum spengjuárásum frá króatísku hliðinni, svo endurbyggð 2005 og er nú á heimsminjaskrá UNESCO og er tákn fyrir friðsamlegri sambúð mismunandi þjóðflokka í Mostar. Yndisleg miðaldaborg þar sem verður farið í skoðunarferð með heimamanni um borgina. Gistum í Tucepi í Króatíu í 3 nætur.

28. ágúst                  Frjáls dagur í Tucepi
Frjáls dagur, slökun og rólegheit þar sem við getum notið aðstöðunnar við hótelið. Hægt er að nota daginn til að skoða sig betur um í Tucepi sem er yndislegur bær með 5.500 íbúum.
Albanía & Króatía Sumar 14 Bændaferðir
29. ágúst                  Dagur í slökun
Tökum annan dag í slökun á þessum fagra stað. Við erum á góðu hóteli og öll aðstaða framúrskarandi á þeirra vísu en þess má geta að síðasti hópur sem gisti í Tucepi vildi helst ekki yfirgefa staðinn.

30. ágúst                  Tucepi – Split – Ancona
Í dag förum við til Split, hinnar sögufrægu borgar sem telst með fallegustu borgum landsins. Þar má finna glæsilegar byggingar og minjar frá tímum Rómverja en elsti hluti borgarinnar er á heimsminjaskrá UNESCO síðan árið 1979. Borgin er því eins og lifandi safn með Diokletian höllinni sem iðar af mannlífi. Upplagt er að rölta um bæinn áður en haldið verður að ferjustað þar sem skipið bíður okkar. Frá Split verður siglt yfir til Ancona. Gisting með morgun- og kvöldverði um borð í skipinu.

31. ágúst                  Komið til Ancona og ekið til CremonaAlbanía & Króatía Sumar 14 Bændaferðir
Eftir morgunverð á skipinu komum við til Ancona. Nú verður stefnan tekin á Cremona sem er í Langbarðalandi (Lombardia) á Ítalíu. Borgin er þekkt fyrir fiðlusmíði, en blómaskeið borgarinnar var frá 16. fram á 18. öld. Stradivarius fiðlusmiður og fleiri frægir fiðlusmiðir voru búsettir í borginni. Við höfum tíma til að kanna líf borgarbúa og skoða okkur um, en þar gistum við síðustu nóttina.

1. september                  Cremona – Heimferð frá Mílanó
Eftir glæsilega ferð verður ekið frá Cremona til Mílanó. Brottför þaðan kl. 14.20 og lending í Keflavík kl. 16.35 að staðartíma.

Fararstjóri getur fært dagskrárliði á milli daga eftir þörfum þegar komið er á staðinn.




 

Verð: 333.300 kr. á mann í tvíbýli.                  Mikið innifalið – athugið sérstaklega!
Aukagjald fyrir einbýli er 68.950 kr.

Innifalið í þátttökugjaldinu: Albanía & Króatía Sumar 14 Bændaferðir
•    Flug með Icelandair og flugvallarskattar
•    Gisting í 2ja manna herbergi með baði
•    Morgun- og kvöldverður allan tímann á hótelum
•    Allar skoðunarferðir með rútu samkvæmt ferðalýsingu
•    Sigling frá Ancona til Durres með gistingu um borð
•    Kvöld- og morgunverður á skipi frá Ancona til Durres
•    Sigling frá Split til Ancona með gistingu um borð
•    Kvöld- og morgunverður á skipi frá Split til Ancona
•    Íslensk fararstjórn

Ekki innifalið:
Aðgangseyrir inn í söfn, hallir og kirkjur. Kláfar eða stólalyftur upp á fjöll. Siglingar og vínsmökkun. Hádegisverðir. Þjórfé.

Valfrjálst: Kláfur upp á fjallið Dajti ca. € 5, Rómverskar fornminjar í Apollona ca. € 5. 

 
 

Bændaferðir starfa samkvæmt Almennum alferðaskilmálum SAF.
 
 

 


Flýtileiðir




Skipta um leturstærð