18. ágúst Flug til Seattle og ekið til Vancouver
Brottför frá Keflavík kl. 17.00. Mæting í Leifsstöð í síðasta lagi 2 klst. fyrir brottför. Lending í Seattle kl. 16.45 að staðartíma (tímamismunurinn er -8 klst og flugið tekur 7 klst og 45 mín). Eftir lendingu í Seattle er ekið sem leið liggur til Vancouver þar sem gist er í 3 nætur á hóteli sem er vel staðsett í miðbænum. Gera má ráð fyrir að koma fremur seint á hótel þennan dag.
19. ágúst Frjáls dagur í Vancouver
Í dag er frjáls dagur í Vancouver og úr mörgu að velja. Það er hægt að taka því rólega og skoða til að mynda einhver af hinum fjölmörgu söfnum sem borgin hefur upp á að bjóða. Einnig væri tilvalið að fara til hinnar einstöku og sjarmerandi Granville eyju, sem er verslunar- og menningarhverfi, þar sem er að finna alls kyns gallerí, búðir, veitingastaði, leikhús og sérstaklega hinn þekkta markað fyrir sanna sælkera.
20. ágúst Dagur í Vancouver
Nú verður farið í skoðunarferð um Vancouver en þar er margt að sjá. Þar eru yfir 200 lysti- og skrúðgarðar og munum við skoða tvo af þeim, Elísabetargarð og Stanleygarð. Elísabetargarður, eða Queen Elizabeth Park, er þekktur fyrir framandi, suðrænar plöntur og litríkar fisk- og fuglategundir. Í Stanley Park, elsta almenningsgarði Vancouver, er meðal annars að finna einstök tré, fjölbreytt dýralíf, og fallega göngustíga. Þar sem garðurinn stendur við sjó, er einnig aðgangur að fjölmörgum ströndum, þar á meðal tveimur baðströndum. Í miðbæ Vancouver munum við svo heimsækja næststærsta Kínahverfi Norður-Ameríku, en þar eru fjölmörg söfn og markaðir.
21. ágúst Hell‘s Gate - Kamloops
Eftir morgunverð verður lagt af stað til Kamloops, 86 þúsund manna borgar, þar sem tvær greinar Thompson árinnar mætast. Margt fróðlegt er að sjá á þessari leið, m. a. „Hell’s Gate“ sem er í gljúfri hinnar öflugu ár Fraser. Fraser gljúfrið er 270 km langt og klettaveggirnir ná mikilli hæð, sérstaklega hjá Hell‘s Gate. Þetta er ákaflega fjölsóttur ferðamannastaður, en þangað verður að fara með kláfi og á bakka árinnar niðri í gljúfrinu er ágætur matstaður og minjagripaverslanir. Um síðir er komið til Kamloops, þar sem gist verður eina nótt.
22. ágúst Klettafjöll - Jasper
Nú verður ekin falleg leið upp í Klettafjöllin. Farið um fallega þjóðgarða til Jasper í Albertafylki sem er sannur fjallabær með skemmtilegri smábæjarstemningu í stórbrotnu umhverfi. Bærinn Jasper er staðsettur í samnefndum þjóðgarði sem er sá stærsti af fimm í kanadísku Klettafjöllunum. Bærinn er einmitt oft kallaður „litli bærinn í stóra garðinum.“ Stærð þjóðgarðsins spannar yfir heila 10 þúsund ferkílómetra. Fyrir utan stórbrotið umhverfið og fallegar náttúruperlur eins og vötn og fossa er þar að finna mikið og fjölbreytt dýralíf. Skógarbirnir, fjallaljón, úlfar, elgir og skallaernir eru dæmi um villt dýr sem eiga heimkynni í þessum þjóðgarði. Gist í Jasper í 1 nótt.
23. ágúst Markerville og Calgary
Nú er ekið nokkuð langt. Stefnan er tekin á Calgary en á leiðinni verður stoppað í Markerville og heimili Klettafjallaskáldsins. Stephan hét upphaflega Stefán Guðmundur Guðmundsson og var fæddur og uppalinn í Skagafirði. Hann fluttist ásamt fjölskyldu sinni til Bandaríkjanna 1873, þá 19 ára. Árið 1889 flutti hann svo til Kanada og bjó þar til dauðadags. Í Markerville er einnig áhugavert byggðasafn staðsett í gamla rjómabúinu. Þessum degi líkur í Calgary þar sem farið er í stutta skoðunarferð um borgina áður en farið er á hótelið. Gist þar í 2 nætur.
24. ágúst Frjáls dagur í Calgary
Í dag er frjáls dagur og því upplagt að eyða honum í að skoða Calgary sem er stærsta borg Alberta héraðs. Flestir tengja Calgary við nautgriparækt, olíu og vetrarólympíuleikana sem haldnir voru 1988. Engu að síður er saga bæjarins áhugaverð og gaman að skoða gamlar myndir frá þeim tíma þegar að vesturfarar settust hér að og bjuggu sig jafnvel fyrir hina hættulegu ferð yfir fjöllin. Hótelið er í miðbænum svo stutt er að fara í verslanir, á veitingastaði og fleira.
25. ágúst Calgary – Lake Minnewanka – Banff
Við ökum af stað frá Calgary til fjallabæjarins Banff sem er næsthæsti bær í Kanada með 7.500 íbúa. Á leiðinni til Banff verður ekinn stuttur útúrdúr að „vatni andanna“, Lake Minnewanka. Vatnið var stíflað 1912 og síðan aftur 1941 sem varð til þess að heilt indíánaþorp innst í dalnum fór undir vatn. Síðan verður farið í skoðunarferð um Banff áður en haldið er á hótel í bænum þar sem gist verður í 2 nætur.
26. ágúst Dagur í Banff 
Nú höfum við heilan dag til að anda að okkur fjallaloftinu og upplifa stemninguna í Banff. Ef veður er gott væri upplagt að taka kláfinn upp á fjallið Sulphur Mountain og njóta stórkostlegs útsýnisins þaðan yfir fjöllin, en þeir sem vilja geta gengið niður eftir skógarstígnum. Hér eru áhugaverð söfn, meðal annars um frumbyggja landsins og landnemana. Það er því tilvalið að taka því rólega, rölta um hinn fræga fjallabæ sem stundum er kallaður skíðabær ríka fólksins og jafnvel fá sér vísundasteik í kvöldmatinn.
27. ágúst Lake Louise - Golden
Eftir dýrðina í Banff heldur ferðin áfram og er næsti áfangastaður vatnið Lake Louise, sem er eitt fallegasta fjallavatn í heimi, en vatnið er við Banff þjóðgarðinn og er nefnt eftir fjórðu dóttir Viktoríu drottningar. Þarna er glæsilegt landslag og meðal annars frábær sýn á Viktoríujökul. Þessum degi lýkur í bænum Golden sem er við rætur Klettafjallanna þar sem við gistum í eina nótt. Góður veitingastaður er á hótelinu við hliðina.
28. ágúst Rogers Pass – Okanagan vatnið - Kelowna
Eftir morgunverð verður ekið í suðvesturátt eftir mjög fallegri leið. Farið verður um Rogers Pass sem er fallegur fjallvegur í 1.382 metra hæð og stefnan tekin á Okanagan vatnið og dalinn. Vatnið spannar 351 ferkílómetra og er mikið líf í kringum það, meðal annars borgirnar Vernon og Kelowna sem við munum heimsækja. Kelowna er einmitt heimaborg Auðar og Sumarliða sem hafa verið fararstjórar Bændaferða árum saman og ætla þau að sjálfsögðu að sýna hópnum sinn heimabæ. Gist í Kelowna í 2 nætur.
29. ágúst Frjáls dagur í Kelowna
Eigum daginn í dag frjálsan og gerum það sem okkur langar. Kelowna er falleg borg og mikið um að vera. Mikil afþreying er í kringum vatnið og einnig er tilvalið að fara í verslanir. Stutt er í bæinn þar sem eru veitingahús, kaffihús, söfn, og margt fleira. Á þessu svæði er mikil ávaxtarækt og hér er eitt stærsta vínræktarhérað Kanada. Síðan væri upplagt að hittast seinni partinn og borða saman.
30. ágúst Kelowna – Seattle
Eftir morgunverð verður ekið suður eftir Okanagan dalnum og farið yfir landamærin til Bandaríkjanna. Komum til Leavenworth sem er bær í tírólskum stíl og þar er einnig hægt að snæða hádegisverð. Ekið yfir Steven‘s skarð í áttina til Seattle. Gistum í stórborginni Seattle síðustu nóttina.
31. ágúst Seattle og heimferð
Heimsborgin Seattle hefur upp á margt að bjóða og eftir morgunverð er farið í stutta skoðunarferð áður en haldið er út á flugvöll. Höldum heim á leið með beinu flugi Icelandair kl. 16.30.
1. september Lending í Keflavík
Flugið heim tekur um 7 klst og 15 mín og áætluð lending á Keflavíkurflugvelli er kl. 06.45 að staðartíma.
Verð: 335.600 kr. á mann í tvíbýli
Aukagjald fyrir einbýli er 128.300 kr.
Innifalið í þátttökugjaldinu:
• Flug með Icelandair og flugvallarskattar
• Gisting í 2ja manna herbergi með baði
• 5 morgunverðir
• Allar skoðunarferðir með rútu samkvæmt ferðalýsingu
• Aðgangur að þjóðgarðinum í Jasper
• Aðgangur að þjóðgarðinum í Banff
• Íslensk fararstjórn
Ekki innifalið:
Aðgangseyrir inn í söfn og kirkjur. 7 morgunverðir. Hádegis- og kvöldverður. Forfalla- og ferðatryggingar.
Valfrjálst:
Aðgangseyrir Hell‘s Gate ca. $ 19. Aðgangseyrir í Markerville safnið ca. $ 3.
Athugið að máltíðir eru almennt séð ekki innifaldar í ferðinni, nema morgunverður 5 daga. Aðra daga er hægt að snæða morgunverð á veitingastöðum sem eru tengdir hótelunum og kostar hann u.þ.b. $ 10 á mann. Gott er að hafa með sér nasl í bílnum, ávexti og annað slíkt og í bílnum er til sölu vatn og gos gegn vægu gjaldi svo enginn þarf að vera þyrstur. Á ferðum milli borga er oft komið við í matvöruverslun að morgni dags og kaupir þá hver fyrir sig eitthvað gott fyrir lautarferð í hádeginu. Sum kvöld munu fararstjórinn panta sameiginlega máltíð eða taka frá borð á veitingastöðum þannig að hópurinn snæðir saman. Það er mjög mismunandi hvað kvöldverður kostar, allt miðað við hvort farþegar vilja fá sér einfalda máltíð eða fara flott út að borða. Sem viðmiðun má gera ráð fyrir að kvöldverður kosti ekki undir 15 dollurum á mann (nema skyndibitamáltíð er ódýrari).