8. ágúst Flug til Frankfurt og ekið áfram til Eisenach
Brottför frá Keflavík kl. 7.25 Mæting í Leifsstöð í síðasta lagi 2 klst. fyrir brottför. Lending í Frankfurt kl. 12.50 að staðartíma (+2 klst. tímamismunur). Ekið sem leið liggur til Eisenach þar sem gist er í 2 nætur.
9. ágúst Dagur í Eisenach
Eisenach er ekki stór miðaldaborg (44.000 íbúar), en mjög falleg og á sér merka sögu. Eisenach er fæðingarborg bæði Martins Luthers og Johanns Sebastians Bachs og það er mjög áhrifaríkt að heimsækja fæðingarborg þeirra. Miðbærinn í Eisenach hefur verið fallega endurbyggður eftir að hann fór illa í stríðinu. Hópurinn skoðar einnig Wartburg-virkið, sem telst til merkustu miðaldavirkja í Þýskalandi og er á heimsminjaskrá UNESCO. Luther sat þar í gæsluvarðhaldi og þýddi á meðan Nýja testamentið. Hægt er að skoða fæðingarhús Luthers og Bachs. Í Eisenach er einnig stórskemmtilegt bílasafn, en hér voru einmitt Wartburgbílarnir framleiddir á dögum austurþýska alþýðulýðveldisins.
10. ágúst Ekið til Weimar og síðan Leipzig
Nú kveðjum við Eisenach að morgni og ökum áleiðis til Leipzig. Á leiðinni verður komið
við í borginni Weimar, sem skipar stóran sess í þýskri sögu. Weimar-lýðveldið, stjórnarskrá millistríðsáranna, var stofnað í borginni og er kennt við hana. Í borginni bjuggu og störfuðu nokkrir af ástsælustu listamönnum Þýskalands, s.s. rithöfundarnir Johann Wolfgang von Goethe og Friedrich Schiller. Tónskáldið Franz Liszt samdi einnig mörg sinna mikilvægustu tónverka í Weimar. Í þessari litlu fallegu borg er hægt að skoða húsin þar sem þessir miklu snillingar bjuggu og unnu að listsköpun sinni. Listastefnan „Bauhaus“ varð til í Weimar og þar er víðfrægt Bauhaus-safn. Ökum áfram til Leipzig þar sem gist verður í 4 nætur.
11. ágúst Dagur í Leipzig
Stórskáld Þjóðverja, Goethe, kallaði Leipzig „litlu París“. Miðborg Leipzig er einstaklega falleg og í skoðunarferð verður farið um alla helstu sögustaði borgarinnar. Skoðum m.a. Tómasarkirkjuna, þar sem Johann Sebastian Bach var lengst af organisti og tónlistarstjóri. Einnig skoðum við hinn stórkostlega minnisvarða „Völkerschlachtdenkmal“ um bardagann mikla milli hers Napóleons og herja Rússa og Prússlands. Hin þekkta Nikolai-kirkja sem var miðstöð andófshreyfingarin
nar er heimsótt en þar er hægt að skoða ýmsa muni sem minna á dagana fyrir fall múrsins.
12. ágúst Þjóðgarðurinn Sächsische Schweiz
Sächsische Schweiz eða „demanturinn við Saxelfi“ er stórfengleg náttúruperla sem samanstendur af risavöxnum klettum úr sandsteini og mörgum einstaklega snotrum smábæjum með höllum og virkjum frá miðöldum. Landslagið í Sächsische Schweiz hefur í gegnum aldirnar verið vinsæll viðkomustaður landslagsmálara, en það eru margir sem telja þetta svæði til fallegustu staða á jörðinni. Hægt verður að fara í siglingu á Saxelfi.
13. ágúst Dagsferð til Dresden
Dresden (íb. 480 þús.), höfuðborg Saxlands, var stofnuð í upphafi 13. aldar en á 15. öld varð hún aðalsetur Wettiner-furstanna. Dresden, sem fór illa í seinni heimsstyrjöldinni, hefur hægt en örugglega verið að öðlast sína upprunalegu mynd og er í dag ein sú fallegasta í Evrópu. Borgin er þekkt fyrir stórkostleg listasöfn,
hallir og hið fræga Semper-óperuhús. Við skoðum markverðustu byggingarnar og listaverk í 4 klst. skoðunarferð, en síðan er frjáls tími til að kanna umhverfið og njóta lífsins.
14. ágúst Spreewald og Berlín
Eftir morgunverð kveðjum við Leipzig og nú verður haldið til Berlínar, en leiðin þangað liggur í gegnum Spreewald, sem er mjög fallegt skóglendi. Þar er upplagt að fara í skemmtilega bátsferð frá Lübbenau. Gistum í 3 nætur á hóteli á Alexanderplatz, sem var miðbær Austur – Berlínar.
15. ágúst Skoðunarferð um Berlín
Berlín, höfuðborg Þýskalands, stendur við ána Spree og með sínum 3,6 milljónum íbúa er hún fjölmennasta borg Þýskalands. Hún er miðstöð menningar og einnig mikilvægasta iðnaðarborgin. Upphaf borgarinnar má rekja aftur til ársins 1443 þegar Hohenzollergreifinn Friðrik II lét reisa sér höll á þessum stað og síðan hefur Berlín verið aðalsetur þjóðhöfðingjans hverju sinni. Árið 1871 varð Berlín svo höfuðborg hins nýstofnaða keisaradæmis. Berlínarmúrinn var reistur 1961 en felldur aftur á árunum 1989 – 1990. Það eru margar sögufrægar byggingar í Berlín og margt athyglisvert að sjá, þannig að það verður að velja og hafna. Við förum í skoðunarferð um borgina og heimsækjum helstu staði og kennileiti.
16. ágúst Frjáls dagur í Berlín
Í dag er frjáls dagur, þar sem upplagt er að skoða borgina upp á eigin spýtur, fara á söfn, setjast inn á kaffihús og skoða mannlífið.

17. ágúst Kveðjum Berlín og ökum til Fulda
Eftir morgunverð kveðjum við Berlín og ökum rakleiðis til Fulda sem er gamall biskupabær. Stolt þeirra er borgarhöllin eða Stadtschloss sem tengd er dómkirkjunni og Michaeliskirkjunni sem er með elstu kirkjum Þýskalands frá árinu 822. Gistum hér síðustu nóttina á hóteli sem má segja að sé í hallargarðinum og einn matsalur hótelsins var hér áður vetrargarður hallarinnar. Nú er upplagt að ganga saman inn í hjarta Fulda og líta á töfrandi mannlíf borgarinnar.
18. ágúst Heimferð
Eftir ánægjulega ferð verður ekið til Frankfurt. Brottför þaðan kl. 14.00 og lending í Keflavík kl. 15.35 að staðartíma.
Fararstjóri getur fært dagskrárliði á milli daga eftir þörfum þegar komið er á staðinn.
Verð: 212.200 kr. á mann í tvíbýli. Mikið innifalið – athugið sérstaklega!
Aukagjald fyrir einbýli er 41.200 kr.
Innifalið:
• Flug með Icelandair og flugvallarskattar
• Gisting í 2ja manna herbergi með baði
• Allar skoðunarferðir með rútu samkvæmt ferðalýsingu
• Morgun- og kvöldverður allan tímann á hótelum
• Íslensk fararstjórn
Ekki innifalið:
Aðgangseyrir inn á söfn, í hallir og kirkjur. Siglingar og vínsmökkun. Hádegisverðir. Þjórfé.
Valfrjálst:
Aðgangseyrir inn í Wartburg-virkið ca. € 10. Hús Martins Luthers € 4 og hús Johanns Sebastians Bach € 6. Sigling á Saxelfi ca. € 12 og í Spreewald ca. € 10.