Sumar 11 Eyjaperlur Króatíu

 

6. - 18. ágúst 2012 
Fararstjóri: Hólmfríður Bjarnadóttir

 

Ævintýraferð um eyjaperlur Kvarnervíkur í Króatíu, en Krk eyjan og Dalmatíuströndin taka á móti okkur í allri sinni dýrð. Ferðin hefst á flugi til Mílanó og gistum þar fyrstu nóttina. Höldum áfram inn til Króatíu, nánar tiltekið til hinnar fögru eyju Krk, í norðurhluta Kvarner-víkur og gistum í 6 nætur í Malinska, vinsælum ferðamannabæ á eyjunni. Þaðan verður farið í skemmtilegar skoðunarferðir, m.a. ökum við um Krk og siglum yfir til eyjunnar Cres, sem er ásamt Krk stærsta eyja Adríahafsins, en Cres er tengd við eyjuna Lošinj, sem er blóma- og furuparadís króatísku eyjanna. Heimsækjum Hum, fámennasta bæjarfélag í heimi, aðeins með 23 íbúum og borðum saman hádegisverð hjá vínbónda í Pazin. Eftir yndislega daga ökum við suður meðfram Dalmatíuströndinni til Biograd og gistum þar næstu 4 nætur, umvafin náttúruperlum Dalmatíustrandarinnar. Þaðan verður farið til Split, þeirrar sögufrægu borgar sem telst með fallegustu borgum landsins. Einnig skoðum við Krka þjóðgarðinn og hina frægu Krka fossa með sinni ólýsanlegu náttúrufegurð og borgina Zadar. Eftir yndislega daga og afslöppun í Króatíu verður ekið frá Biograd til Vicenza á Ítalíu og gistum þar síðustu nóttina.

 

 

 
6. ágúst              Flug til Mílanó
Brottför frá Keflavík kl. 16.50. Mæting í Leifsstöð í síðasta lagi 2 klst. fyrir brottför. Lending í Mílanó kl. 22.40 að staðartíma, þar sem gist verður fyrstu nóttina.
 
7. ágúst              Ekið til eyjunnar Krk í Króatíu
Eftir góðan morgunverð heldur ferð okkar áfram inn til Króatíu að Kvarner-vík og út í eyjuna Krk, þar sem gist verður á hóteli í bænum Malinska í 6 nætur, en bærinn sem er einn aðalferðamannabær landsins er líflegur og skemmtilegur. Hótelið er í 5 mín. göngufæri frá miðbænum, með fallegum garði, einkaströnd og á hótelinu er einnig heilsulind, gufubað og sólpallur.
 
8. ágúst              Skoðunarferð í Malinska og frjáls tími
Tökum morguninn rólega. Eftir morgunverð göngum við saman inn í miðbæ Malinska sem er með 1.700 íbúa. Bærinn er einn vinsælasti ferðamannabærinn á eyjunni, með yfir 2000 sólarstundir á ári. Árið 1905 var bærinn valinn perla eyjanna í Kvarner-vík, af prófessor við háskólann í Vínarborg. Eftir skoðunarferð með heimamanni gefst frjáls tími það sem eftir er dags.
 
9. ágúst              Ævintýraferð um Krk eyjuna
Ævintýraferð um Krk með heimamanni sem fræðir okkur um líf eyjarskeggja, menningu og listir. Á eyjunni búa um 17.000 íbúar og er hún 470 ferkílómetrar, stærst eyja Adríahafsins ásamt eyjunni Cres sem er jafnstór. Nafn höfuðborgarinnar ber nafn eyjunnar, Krk. Eyjan er tengd meginlandinu með hinni 1,3 km löngu Krk-brú eða hinni svokallaðri Tito-brú, en hún var byggð stuttu eftir lát forseta landsins árið 1980 og nefnd eftir honum, honum til heiðurs. Heimsækjum helstu staði eyjunnar í dag og njótum gestrisni eyjarskeggja.
 
10. ágúst              Hum og vínbóndi í Pazin
Hum er fámennasta bæjarfélag í heimi, með 23 íbúum. Hum stendur í 349 m hæð og er með fallegri stöðum sem maður kemur á, en íbúar bæjarins lifa á landbúnaði, snafsagerð og ferðaþjónustu. Hér ætlum við að byrja daginn, innan virkisveggja frá 11 öld, en ekki hefur verið byggt innan þeirra síðan þá. Hum var áður menningarmiðstöð glagólítísku skriftarinnar, en elsta dæmi um skriftina frá miðri 12. öld í Króatíu hefur varðveist hér í kirkju bæjarins. Eftir góðan tíma í Hum verður ekið til Pazin, þar sem vínbóndi tekur á móti okkur með kræsingum, góðum mjöð og harmonikkuspili.
 
11. ágúst              Eyjarnar Cres og Lošinj
Í dag ætlum við að heimsækja eyjarnar Cres og Lošinj. Byrjum á því að aka til Valbiska á Krk þar sem við tökum ferju yfir til Merag á Cres sem er ein af landbúnaðareyjunum, ekið verður suður með eyjunni yfir á eyjuna Lošinj sem er blóma- og furuparadís eyjanna í Króatíu. Hér á eyjunni er að finna suðrænan gróður, s.s. pálma- og furutré, agave-plöntuna, lárviðarrós, sítrónutré, salvíu og lofnarblóm (lavender). Eyjan státar af yfir 2500 sólarstundum á ári, sem þýðir að það eru um 300 nánast skýjalausir dagar á ári, en eyjan telst til sólríkustu staða Evrópu. Komum til Veli Lošinj, sem var upphaflega fyrsta byggð eyjunnar, en tilheyrir nú Mali Lošinj, höfustaðar hennar, en við ætlum að skoða það helsta sem þessi undurfagra eyja hefur upp á að bjóða sem töfrar þúsundir ferðamanna til sín.
 
12. ágúst              Frjáls dagur í Malinska
Nú tökum við lífinu með ró, könnum umhverfið, notum aðstöðuna við hótelið og slökum á. Hægt er að skoða Malinska betur og einfaldlega njóta náttúrufegurðarinnar sem umvefur okkur.
 
13. ágúst              Ekið frá Malinska til Biograd
Nú heldur ferð okkar áfram suður með Dalmatíuströndinni til Biograd. Á leiðinni þangað verður komið í Krka þjóðgarðinn. Við skoðum hina frægu Krka fossa og fylgjumst með 73 km löngu Krka ánni líða um þjóðgarðinn. Náttúrufegurðin sem við upplifum í dag er ólýsanleg. Í Biograd gistum við í 4 nætur á hóteli við ströndina. Hótelið býður upp á einkaströnd, heilsulind, lifandi tónlist á kvöldin, fallegan garð og líkamsræktarherbergi og svo má nú ekki gleyma sjálfum bænum sem er mjög blómlegur.
 
14. ágúst              Dagur í Split
Í dag verður farin skoðunarferð um Split þessa sögufrægu borg sem telst með fallegustu borgum landsins. Glæsilegar byggingar og minjar frá tímum Rómverja prýða borgina og fór elsti hluti borgarinnar á heimsminjaskrá UNESCO árið 1979, en borgin er eins og lifandi safn. Einn merkilegasti minnisvarði byggingarlistar frá tímum Rómverja við Dalmatíuströndina er Diokletian-höllin í Split sem var byggð á árunum frá 295 – 305 f.kr, á mettíma! Höllin iðar af mannlífi og er hjarta borgarinnar.
 
15. ágúst              Frjáls dagur í Biograd
Frjáls dagur í Biograd og hægt verður að kanna umhverfið betur og njóta aðstöðunnar við hótelið. Upplagt væri að taka göngu með ströndinni.
 
16. ágúst              Hálfur dagur í Zadar
Tökum daginn rólega fram að hádegi, eftir það verður ekið til Zadar sem er aldagömul menningar- og listaborg og þaðan er einnig einstakt útsýni yfir hinar rúmlegu 1000 króatísku eyjar. Frjáls tími gefst til að kanna líf bæjarbúa og líta inn til kaupmanna borgarinnar ef vill.
 
17. ágúst              Ekið frá Biograd til Vicenza
Nú er komið að því að kveðja þetta yndislega land, ekið verður frá Biograd til Vicenza á Ítalíu þar sem gist verður síðustu nóttina.
 
18. ágúst              Heimferð
Eftir glæsilega og skemmtilega ferð verður ekið til Mílanó. Brottför þaðan kl. 14.20 og lending í Keflavík kl. 16.35 að staðartíma.
 
Fararstjóri getur fært dagskrárliði á milli daga eftir þörfum þegar komið er á staðinn.
 


 
 
 
Verð: 279.900 kr. á mann í tvíbýli.                  Mikið innifalið – athugið sérstaklega!
Aukagjald fyrir einbýli er 32.800 kr. 
 
 
Innifalið:
• Flug með Icelandair og flugvallarskattar
• Gisting í 2ja manna herbergi með baði
• Morgun- og kvöldverður allan tímann á hótelum
• Allar skoðunarferðir með rútu samkvæmt ferðalýsingu
• Íslensk fararstjórn
 
Ekki innifalið:
Aðgangseyrir inn á söfn, í hallir og kirkjur. Siglingar og vínsmökkun. Hádegisverðir. Þjórfé.


Valfrjálst:

Sigling til eyjarinnar Cres ca. € 5. Hádegisverður hjá vínbónda í Pazin ca. € 13. Krka þjóðgarðurinn ca. € 15.
 
 

 Bændaferðir starfa samkvæmt Almennum alferðaskilmálum SAF.

 
 

 


Flýtileiðir




Skipta um leturstærð