4. ágúst Flug til München og ekið til Český Krumlov
Brottför frá Keflavík kl. 7.20. Mæting í Leifsstöð um 2 klst. fyrir brottför. Lending í München kl. 13.05 að staðartíma (+ 2 klst. tímamismunur). Þaðan verður ekið til borgarinnar Český Krumlov í Böhmen við Moldau í Tékklandi þar sem gist verður í 2 nætur.
5. ágúst Dagur í Český Krumlov
Í dag verður farið í skoðunarferð um Český Krumlov sem er með 14.500 íbúa. Töfrandi miðaldaborg með litlum þröngum götum og gömlum byggingum og var elsti hluti borgarinnar skráður á heimsminjaskrá UNESCO árið 1992. Förum í skoðunarferð um borgina og skoðum m.a. höll frá 13. – 16. öld ásamt hallargarðinum. Góður tími gefst til að skoða sig um og líta í verslanir. Endum daginn á að fara í Eggen bjórbrugghúsið, en upphaf bjórframleiðslu þar var árið 1336.
6. ágúst Gullborgin Prag – Hluboká höllin
Nú verður sagt skilið við Český Krumlov og ekið í áttina að gullborginni Prag. Stoppum í borginni Hluboká nad Vltavou við höllina Hluboká, glæsilegustu höll landsins. Eftir það verður ekið að Zvikova vatni sem er rómað fyrir fegurð. Þar verður farið í siglingu á vatninu áður en ekið verður til Prag. Prag í Tékklandi er ein af fegurstu borgum Evrópu. Menning, listir og dulúð miðalda setur svip sinn á borgina sem iðar af mannlífi. Gistum í 3 nætur á hóteli í hjarta borgarinnar.
7. ágúst Skoðunarferð um Prag
Fyrri part dags verður farið í skoðunarferð um Prag, höfuðborg Tékklands og eina af fallegustu borgum Evrópu. Íbúar borgarinnar eru 1,2 milljón en Prag hefur verið ein helsta menningarmiðstöð Evrópu um aldir. Farið verður að Karlsbrúnni, ráðhúsinu með stjörnuklukkunni og Wenzeltorginu svo eitthvað sé nefnt. Frjáls tími gefst eftir hádegi til að njóta borgarinnar á eigin vegum.
8. ágúst Hradčany kastali
Fyrri part dags verður farið í skoðunarferð um Hradčany kastalann, sem hefur verið bústaður forseta lýðveldisins síðan 1918. Þarna byrjaði að byggjast upp á 9. öld og fursta- og biskupsdæmið í Prag var þar frá 973. Þetta svæði er einn mikilsverðasti og sérstakasti hluti Prag. Eftir það gefst frjáls tími, en um kvöldið væri upplagt að fara saman í kvöldsiglingu á Moldau.
9. ágúst Třebíč – Luhačovice í Morava
Nú er komið að því að kveðja Prag eftir yndislega daga og halda ferðinni áfram. Komum til borgarinnar Třebíč, en þar er eitt merkilegasta gyðingahverfi Tékklands og má þess geta að hverfið var skráð á heimsminjaskrá UNESCO árið 2003. Nú komum við til smábæjarins Luhačovice í Morava sem telst með aðalheilsubæjum landsins. Þar verður gist í 4 nætur á hóteli með heilsulind.
10. ágúst Skoðunarferð um Luhačovice
Eftir góðan morgunverð verður bærinn skoðaður með fararstjóranum, en vegna steinefnaauðlinda þeirra og hagstæðs veðurfars, er þetta með stærstu og elstu heilsulindum Moraviu. Í bænum búa um 6.000 íbúar, en upp úr 19. öld fór að að byggjast upp ferðaþjónusta í kringum þessar auðlindir bæjarins. Það sem eftir er dagsins er upplagt að njóta þess sem hótelið hefur upp á að bjóða og þeirrar náttúrufegurðar sem umvefur okkur, fá sér hressingu og rölta um bæinn.
11. ágúst Modrá – Basílikan í Velehrad og Uherske Hradiste
Í dag verður farið aftur í aldir til Skanzen Modrá þar sem mjög áhugavert byggðar -og fornminjasafn er og komum við til með að skoða og kynnast sögu landsins betur. Förum til Velehrad sem er einn helsti pílagrímabær landsins þar sem dómkirkjan Minor verður skoðuð. Efir það verður ekið til bæjarins Uherske Hradiste sem byggður var út á eyju með mjög sérstöku bæjarstæði og heillandi miðaldablæ, en allur bærinn er orðinn friðaður.
12. ágúst Frjáls dagur – Vínsmökkun og grillveisla
Rólegheitadagur hjá okkur í dag, en eftir morgunverð býður farastjórinn þó upp á létta gönguferð um þetta fagra svæði, en annars er frjáls dagur fram að grillveislu um kvöldið.
13. ágúst Kitzbühel í Tíról
Nú kveðjum við Tékkland eftir yndislega daga og stefnan nú tekin á Kitzbühel í Tíról, Austurríki, eins þekktasta vetraríþróttabæjar landsins. Á leiðinni verður stoppað í Dürnstein í Wachau vínhéraðinu, sem er með fallegustu landsvæðunum við Dóná árfarveginn í Austurríki. Þar verður farið í skemmtilega gönguferð um Dürnstein en upplagt væri síðan að fá sér hádegishressingu, skoða mannlífið og njóta náttúrufegurðar Wachau héraðsins áður en haldið er áfram.
14. ágúst Skoðunarferð um Kitzbühel
Kitzbühel er í dag einn af þekktari vetraríþróttabæjum landsins. Á 16. og 17. öld blómstraði bærinn vegna kopar –og silfurvinnslu. Gamli bærinn hefur að geyma gömul bindingsverkshús, Katharinen-kirkjuna sem er í gotneskum stíl og mikið úrval af fínum verslunum. Eftir góðan morgunverð förum við í skemmtilega skoðunarferð með heimamanni um þennan fagra bæ, en eftir það verður frjáls tími til að fá sér hressingu og skoða líf bæjarbúa.
15. ágúst Frjáls dagur í Kitzbühel
Í dag ætlum við að njóta fjallafegurðar og eiga rómantískan dag í þessum fallega bæ. Mikil upplifun er að taka kláf upp á Kitzbüheler Horn sem er í 1998 m hæð yfir sjávarmáli. Þar er veitingahús, kapella og stórkostlegt útsýni.
16. ágúst Heimferð
Eftir indæla og skemmtilega ferð verður ekið til München. Brottför þaðan kl. 14.05 og lending í Keflavík kl. 16.00 að staðartíma.
Fararstjóri getur fært dagskrárliði á milli daga eftir þörfum þegar komið er á staðinn.
Verð: 259.400 kr. á mann í tvíbýli. Mikið innifalið – athugið sérstaklega!
Aukagjald fyrir einbýli 28.600 kr.
Innifalið: • Flug með Icelandair og flugvallarskattar
• Gisting í 2ja manna herbergi með baði
• Morgun- og kvöldverður allan tímann á hótelum
• Grillveisla í stað kvöldverðar á hóteli
• Allar skoðunarferðir með rútu samkvæmt ferðalýsingu
• Íslensk fararstjórn
Ekki innifalið: Aðgangseyrir inn á söfn, í hallir og kirkjur. Kláfar eða stólalyftur upp á fjöll. Siglingar og vínsmökkun. Hádegisverðir. Þjórfé.
Valfrjálst: Eggen bjórbrugghúsið ca, € 3,8. Skanzen í Modra, byggðar- og fornminjasafn ca. € 2. Hluboká höllin € 6 – 20 (fer eftir því hve stór hluti hallarinnar er skoðaður). Sigling á Zvikova vatni € 15. Aðgangur í gullgötuna og Hradčany kastalann ca. € 6. Vínsmökkun ca. € 8. Sigling á Moldau € 12. Kláfur á Kitzbüheler Horn ca. € 17,50.